Morgunblaðið - 22.03.2014, Qupperneq 23
FRÉTTIR 23Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MARS 2014
Konur eru ekki hræddar við áhættu,
heldur eru þær meðvitaðar um hana.
Þetta segir Barbara Stewart hjá
Eignastýringunni Cumberland í
Kanada og sérfræðingur í fjárfest-
ingum kvenna, en hún var með erindi
á morgunfundi Kauphallarinnar og
VÍB í Hörpu í gærmorgun. Stewart
hefur á undanförnum árum talað við
hundruð kvenna varðandi fjárfest-
ingar og hvað hafi áhrif á þær í því
samhengi.
Konur fjárfesta mun minna en
karlmenn í hlutabréfum í dag, en að-
eins 30% fjárfesta í Kauphöll Íslands
eru konur.
Stewart sagði að miklu púðri hefði
verið eytt í að segja að konur væru
ekki jafndjarfar og karlar og fylgdu
frekar öðrum fjárfestum en að taka
ákvarðanir fyrstar. Hún sagði þetta
vera í andstöðu við það sem hún
hefði upplifað úr sinni vinnu þar sem
margar konur væru mjög öflugir
fjárfestar. Hún ákvað því að skoða
málið nánar og gaf niðurstöður úr
rannsókn sinni nýlega út.
Stewart telur að með fjölgun
kvenna í hlutahafahópi fyrirtækja
aukist líkurnar á að þær verði kosn-
ar í stjórnir fyrirtækja.
Nánar á mbl.is
Morgunblaðið/Þórður
Sérfræðingur Barbara Stewart starfar hjá eignastýringunni Cumberland í
Kanada. Hún hefur sérstaklega rannsakað fjárfestingar kvenna.
Konur eru meðvit-
aðar um áhættu
Rannsakar fjárfestingar kvenna
Engar breytingar voru gerðar á stjórn Trygginga-
miðstöðvarinnar (TM) á aðalfundi félagsins síðdegis í
fyrradag. Sjö sóttust eftir fimm stjórnarsætum en þau
Linda Björk Bentsdóttir lögmaður og Oddgeir Ágúst
Ottesen hagfræðingur náðu ekki kjöri.
Stjórn TM skipa því þau Andri Þór Guðmundsson,
forstjóri Ölgerðarinnar, Bjarki Már Baxter lögmaður,
Elín Jónsdóttir, lögfræðingur og stjórnarformaður TM,
Kristín Friðgeirsdóttir verkfræðingur og Örvar Kær-
nested, fjárfestir og ráðgjafi.
Samþykkt var á fundinum að greiða út 1,5 milljarða
króna arð til hluthafa.
Fram kom í ávarpi Elínar að öllum hagnaði síðastlið-
ins árs yrði skilað til hluthafa, að stærstum hluta, eða
70%, í formi arðgreiðslu en einnig með framkvæmd
endurkaupaáætlunar sem nemur allt að 30% af hagnaði
síðasta árs.
Hún sagði að kostir endurkaupaáætlunar væri ýmsir
fyrir félagið.
Nánar á mbl.is
Engar breytingar voru gerðar á
stjórn Tryggingamiðstöðvarinnar
!!
"#"
$$!
$$%
"#"%
!#
$% %
!$
&'()* (+(
,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5
!
$ #
#!
"#$
%%!
$%"
"!
#!
$! "
!%!!
$!
"!
"
$"
$$
"#
"$
$!
!%##
"$ "
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Þrotabúið greiði 10,6 ma
Í frétt á viðskiptasíðu Morgunblaðs-
ins í gær um að Hæstiréttur hefði
staðfest þann dóm Héraðsdóms
Reykjavíkur að
krafa sem Síminn
gerði í þrotabú
Glitnis yrði sam-
þykkt sem almenn
krafa í búið, mis-
ritaðist í fyrirsögn sú upphæð sem
þrotabúið þarf að greiða Símanum.
Hið rétta er að þrotabú Glitnis þarf
að greiða Símanum 10,6 milljarða
króna, sem var þrautavarakrafa
Símans, en ekki 19,6 milljarða, eins
og ranglega stóð í fyrirsögn fréttar-
innar. Beðist er velvirðingar á þess-
um mistökum.
LEIÐRÉTT
UMBÚÐIR
NÁTTÚRULEGA
BETRI
Það er lítið mál að endurvinna nýju Smjörva umbúðirnar.
Þú tekur bara pappann af plastöskjunni og setur í pappírstunnuna.
Gámar fyrir plastumbúðir eru á næstu grenndarstöð eða
endurvinnslustöð.
NÚ Í400gUMBÚÐUM
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
61
3
27
OG
NORSKIR BRJÓSTDROPAR
KRÖFTUG HÓSTAMIXTÚRA
SEM RÓAR HÓSTA, DREGUR
ÚR SÁRSAUKA Í HÁLSI OG
LOSAR UM Í ENNIS- OG
KINNHOLUM.
DANSKIR BRJÓSTDROPAR
KRÖFTUG HÓSTAMIXTÚRA
SEM MÝKIR HÁLSINN OG
STILLIR ÞRÁLÁTAN HÓSTA.
FÁST Í NÆSTA APÓTEKI
BRJÓSTDROPAR
NORSKIR
DANSKIR