Morgunblaðið - 22.03.2014, Qupperneq 25
FRÉTTIR 25Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MARS 2014
E-60
Klassísk hönnun frá 1960
Hægt að velja um lit og áferð að eigin vali
Verð frá kr. 24.300
Íslensk hönnun og framleiðsla
Gylfaflöt 16-18 •112 Reykjavik • Sími 553 5200 • solo.iswww.facebook.com/solohusgogn
A81
Hönnuðir: Atli Jensen og Kristinn Guðmundsson
Verð frá kr. 27.800
Íslensk húsgögn og hönnun
í Hörpu 27. - 30. mars
Frumsýnum nýjar vörur
á sýningunni
HönnunarMa
rs
DesignMarch
Reykjavík
Karl Blöndal
kbl@mbl.is
Mikil reiði ríkir í Tyrklandi vegna
ákvörðunar stjórnar Receps Tayyips
Erdogans forsætisráðherra um að
loka félagsvefnum Twitter og reyndi
fólk að komast fram hjá banninu við
notkun vefjarins.
Vefurinn þar sem hægt er birta
örskilaboð hefur verið mikið notaður
til að birta ásakanir um spillingu á
hendur þeim, sem eru í innsta hring
Erdogans. Seint á fimmtudagskvöld
var slökkt á Twitter í Tyrklandi.
Ákvörðunin hefur verið tengd við
það að 30. apríl eru sveitarstjórnar-
kosningar í Tyrklandi.
Meðal þeirra, sem hafa mótmælt
aðgerðinni, er Abdullah Gul, forseti
Tyrklands. Hann notar félagsvefi
mikið. „Ekki er hægt að samþykkja
algert bann við félagsvefjum,“ tísti
Gul undir nafni sínu á Twitter,
@cbabdullahgul, og bætti við að ekki
væri „tæknilega hægt að hindra að-
gang að þjónustunni um allan heim“.
Tíu milljónir manna nota Twitter í
Tyrklandi. Síðdegis á föstudag hafði
tyrkneskum tístum fjölgað um 138%
miðað við miðvikudag, semkvæmt
Brandwatch, sem fylgist með notkun
félagsvefja.
Þingmaðurinn Aykan Erdemir,
sem er í stjórnarandstöðu sagði að
flokkur sinn, Lýðræðisflokkur þjóð-
arinnar, myndi leita til dómstóla til
að hnekkja banninu og varaði við því
að með því skipaði Tyrkland sér á
bekk með ólýðræðislegum ríkjum á
borð við Kína.
Leiðbeiningar framhjá banni
Stjórnendur Twitter brugðust við
með því að birta leiðbeiningar um
hvernig Tyrkir gætu komist hjá
banninu með því að tísta í gegnum
smáskilaboðaþjónustu farsíma
sinna.
Leiðtogar í Evrópu gagnrýndu
Erdogan, sögðu að aðgerðin væri
brot á málfrelsi borgaranna og gæti
haft áhrif á umsókn Tyrkja um inn-
göngu í Evrópusambandið. Angela
Merkel, kanslari Þýskalands, sagði
að bannið samræmdist „ekki okkar
hugmyndum um skoðanafrelsi“.
Sendiherra Breta í Ankara skoraði á
stjórnina að falla frá banninu.
Bannið er enn ein aðgerð stjórnar
Erdogans til að herða tökin á netinu.
Þegar hafa þúsundir vefsíðna verið
bannaðar.
Fjöldi Tyrkja hefur notað Twitter
og Facebook til að koma skoðunum
sínum á stjórninni á framfæri eftir
mótmælin gegn henni í fyrra. Hvergi
eru stjórnvöld jafn ötul að setja
blaðamenn í fangelsi og í Tyrklandi
og tugir blaðamanna hafa verið
reknir eða neyddir til að hætta störf-
um eftir mótmælin, að sögn stéttar-
félaga tyrkneskra blaðamanna.
Gagnrýni Guls forseta á Erdogan
ber vitni valdabaráttu þeirra. Þeir
deildu einnig fyrir tveimur vikum
þegar Erdogan gaf í skyn í spjall-
þætti að til greina kæmi að banna
Facebook og YouTube eftir kosning-
arnar. Sagði Gul Erdogan að hann
væri andvígur slíku banni.
Gul og Erdogan stofnuðu saman
íslamska íhaldsflokkinn AK og hafa
verið samherjar í pólitík. Upp á síð-
kastið hefur hins vegar nokkrum
sinnum komið upp ágreiningur á
milli þeirra. Forsetakosningar verða
í ágúst og Erdogan hefur hug á að
taka við af Gul. Gul sýnir hins vegar
ekki á sér neitt fararsnið.
Gul er þó ekki andvígur Erdogan
að öllu leyti og uppskar forsetinn
harða gagnrýni þegar hann undirrit-
aði umdeild lög um netið í febrúar.
Samkvæmt lögunum má stjórnin
loka á ákveðið efni á netinu án sam-
þykkis dómara.
Uppnám út af upptökum
Bakgrunnur málsins er að and-
stæðingar stjórnarinnar settu, nafn-
laust, símaupptökur á vefinn You-
Tube þar sem heyra má rödd
Erdogans. Þar virðast Erdogan og
sonur hans meðal annars tala um
hvernig eigi að fela peningaslóð.
Einnig talar Erdogan um að hafa
áhrif á viðskiptasamninga, dómsmál
og umfjöllun fjölmiðla. Erdogan seg-
ir upptökurnar falsaðar.
Tyrkir reið-
ast banni
á Twitter
Kröftug mótmæli við tilraun forsætis-
ráðherrans til að hefta umræðu
AFP
Reiði Mótmælendur komu saman í Ankara í gæri til að mótmæla ákvörðun tyrkneskra stjórnvalda um að banna og
loka félagsvefnum Twitter. Á einu spjaldinu er Recep Erdogan forsætisráðherra kallaður Twitler.
Recep Tayyip Erdogan, for-
sætisráðherra Tyrklands, sagði
á útifundi á fimmtudag að hann
ætlaði að þurrka Twitter út í
landinu og sér stæði á sama
hvað alþjóðasamfélagið segði.
Seinna um daginn komu þær
skýringar frá skrifstofu for-
sætisráðherrans að ástæðan
væri sú að Twitter hefði neitað
að fjarlægja tengingar við efni,
sem dæmt hefði verið ólöglegt,
þrátt fyrir tilskipun dómstóla.
Erdogan bannaði Facebook í
tvö ár, en aflétti banninu 2010.
Vill þurrka
Twitter út
BANNAÐI FACEBOOK