Morgunblaðið - 22.03.2014, Page 29
UMRÆÐAN 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MARS 2014
Vatnagörðum 12 - 104 Reykjavík - Sími: 588 5151 - Fax: 588 5152 - glerslipun.is
Glerslípun & Speglagerð ehf.
Speglar Flotgler Öryggisgler Hert gler Bílspeglar Sandblástur
Álprófílar Máltöku- og uppsetningaþjónusta
Sjáðu sjálfan þig
í nýju ljósi
Við leggjum metnað okkar
í að bjóða sérhæfðar og
vandaðar lausnir á
baðherbergi. Við bjóðum
upp á sérsmíðaða spegla,
sturtuklefa og sturtuskilrúm.
Þá erum við komnir með
nýja útgáfu af ljósaspeglunum
okkar vinsælu.
Á nýrri heimasíðu okkar
glerslipun.is er gott yfirlit yfir
það sem er í boði. Auk þess
bjóðum við alla velkomna
í Vatnagarða 12 þar sem
fagfólk veitir góða þjónustu
og allar þær upplýsingar sem
þarf.
Þegar Wisvanathan Anandtapaði einvígi sínu umheimsmeistaratitilinnfyrir Magnúsi Carlsen
var eins og skákskýrendur og sér-
fræðingar afskrifuðu hann og ekki
að ástæðulausu. Á örlagastundu
missti hann yfirleit af bestu leið-
inni og lokaniðurstaðan, 3:6, benti
til þess að hann hefði sungið sitt
síðasta. Anand mun hafa und-
irbúið sig vel fyrir einvígið en sá
undirbúningur komst aldrei til
skila. Hann fékk ekki upp þær
stöður sem hann hafði rannsakað
sérstaklega fyrir einvígið. Þar
kom til skjalanna sá einstæði
hæfileiki Norðmannsins að sneiða
hjá alfaraleiðum en komast samt
á áfangastað. Að þessu leyti til
minnir hann á einhvern van-
metnasta heimsmeistara allra
tíma, Emanuel Lasker, sem þó
hélt heimsmeistaratitlinum í 27
ár.
Þessa dagana fer áskor-
endamótið fram á „slóðum loðfíl-
anna“ í Khanty Manyisk í Síberíu
og margt bendir til að hin mikla
vinna sem Anand innti af hendi á
síðasta ári sé nú farin að skila
sér. Eftir sex umferðir af 14 er
staðan þessi:
1. Anand 4 v. (af 6) 2. Aronjan
3½ v. 3.-6. Topalov, Kramnik,
Svidler og Mamedyarov 3 v. 7.
Karjakin 2½ v. 8. Andreikin 2 v.
Það er svolítil rússnesk slagsíða
á þessu áskorendamóti og loft er
lævi blandið; minnugur einvígisins
í Elista haustið 2006 náði Topalov
fram hefndum er hann sigraði
Kramnik í 6. umferð og getur með
góðum endaspretti náð efsta sæti.
Armeninn Aronjan og Aserinn
Mamedyarov talast ekki við en
skærur þjóða þeirra setja mark
sitt á viðureignir þeirra. Anand
hefur aldrei svo vitað sé blandast
deilum af slíku tagi og gengur um
sali í Khanty Manyisk æðrulaus
og spakur. Magnús Carlsen hefur
sent keppendum kveðjur sínar og
óskað þeim öllum góðs gengis.
Hvílíkt drenglyndi. Hvenær í
skáksögunni hefur heimsmeistari
sent keppinautum sínum slíkar
kveðjur? Garri Kasparov lét svo
um mælt þegar hann kom hingað
til lands á dögunum að Kramnik
og Aronjan væru báðir mun
hættulegri mótstöðumenn en An-
and. Er það nú alveg víst? Lítum
á sigur Indverjans í 3. umferð:
Shakriyar Mamedyarov –
Wisvanathan Anand
Slavnesk vörn
1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rf3 Rf6 4.
Dc2
Róleg leið til þess fallin að
sneiða hjá langri teóríu.
4. … dxc4 5. Dxc4 Bg4 6. Rbd2
Rbd7 7. g3 e6 8. Bg2 Be7 9. Re5
Bh5 10. Rxd7 Rxd7 11. 0-0 0-0 12.
Rb3 a5 13. a4 Bb4!
Staða riddarans á b3 er heldur
ólánleg og biskupar svarts eru til
alls vísir.
14. e4 e5 15. Be3 exd4 16. Bxd4
Kh8 17. e5 He8 18. f4 f6 19. exf6
Rxf6
Svartur hefur gert meira en að
jafna taflið og hótar nú 20. … Be2.
20. Bf3 Bxf3 21. Hxf3 He4 22.
He3?
Eftir þennan eðlilega leik fær
hvítur ekki rönd við reist, nauð-
synlegt var 22. Dd3 sem heldur í
horfinu.
22. … Hxe3 23. Bxe3 De8! 24.
Bb6?
Valdar d8-reitinn en betra var
24. Bd4. Kannski hefur hann bDh5
25. Bd4 He8 26. Hf1 óttast lepp-
unina 24. … De4 sem á að svara
með 25. Rc5.
24. … Dh5 25. Bd4 He8!
Hvítur er aðeins of seinn með
–Bd4-leikinn. Nú strandar á 26.
Bxf6 á 26. … gxf6 27. Hf1 He2
o.s.frv.
26. Hf1
26. … Rg4! 27. Dc2
Eða 27. h4 Re3! 28. Bxe3 Hxe3
29. Kh2 Dg4 30. Hg1 Be1! og
vinnur.
27. … c5! 28. Rxc5 Hc8! 29.
Hd1 Bxc5 30. Bxc5 h6 31. Kh1
– og hvítur gafst upp um leið,
svartur á tvo leiki sem vinna báð-
ir, 31. … Rf2+ eða 31. … Re3
Endurkoma Anands –
efstur í áskorendakeppninni
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Í drögum að frum-
varpi um nátt-
úrupassa til Alþingis
er fjallað um aðrar
gjaldtökuleiðir og
koma þær fram sem
athugasemdir með
frumvarpinu.
Ég hef gagnrýnt
þetta hugsanlega fyr-
irkomulag fyrir
margt, m.a. of háan
kostnað, lögreglueft-
irlit og það uppátæki að ætla öllum
íslenskum ríkisborgurum, eldri en
18 ára, að framvísa passanum hér
og hvar á landinu, jafnvel á skóla-
ferðalögum.
Í athugasemdunum gætir nokk-
urs misskilnings. Þar eru komu-
og brottfarargjöld spyrt saman en
á þeim er nokkur munur; eink-
anlega sá að brottfaragjald hugn-
ast flestum betur eftir góða veru í
landinu fremur en að greiða að-
gangseyri að því.
Enn fremur er sagt að með leið-
inni sé hægt að tengja gjaldið við
flugfarseðil og meira að segja inn-
anlandsflugfarseðil (!). Hugmyndin
með brottfaragjaldi gerir svo sann-
arlega ekki ráð fyrir slíku. Slíkt
gjald er greitt við brottför úr landi
(á alþjóðaflugvöllunum þremur og
Seyðisfirði) nema þegar um far-
þega skemmtiferðaskipa er að
ræða eða aðra hópa sem bóka
ferðir um landið í gegnum ferða-
skrifstofu. Þá er auðvelt að inn-
heimta gjaldið við kaup á ferð og
standa skil á því.
Við brottför erlendra ríkisborg-
ara á flugvelli er greitt á mönn-
uðum stað eða rafrænt með vega-
bréfsnúmeri sýnilegu. Kerfið
kostar lítið miðað við tekjur og eft-
irlit er ekkert umfram það sem er
á hverjum brottfararstað við upp-
haf öryggisleitar. Transit- eða
millilendingarfarþegar borga ekki
enda sýnir farseðill, að viðkomandi
gistir ekki landið utan flugvallar,
auk þess sem slíkir
farþegar fara ekki í
gegnum öryggisleit.
Eftir t.d. þrjár brott-
farir á sama ári fellur
gjaldið niður.
Það er því augljóst
að með þessu móti er
ekki verið að leggja
brottfarargjald á inn-
anlandsflug, ekki á ís-
lenska ríkisborgara og
heldur ekki á þá sem
koma oft á ári til
landsins. Ókostir
brottfarargjalds sem taldir eru
upp í athugasemdunum eru lang-
sóttir og rangir. Einnig sú yfirlýs-
ing að gjaldið myndi renna beint í
ríkissjóð og þar með ekki hægt að
tryggja að það gengi til ferðamála.
Þvert á móti. Gjaldið væri inn-
heimt í sérsjóð (líkt og í fyrirhug-
aðan Náttúrupassasjóð) með um-
ræddum rafrænum hætti eða á
mönnuðum stað. Stjórn sjóðsins
væri í höndum hagsmunaaðila og
opinberra aðila og úthlutanir opn-
ar.
Það er ekki of seint að endur-
skoða einfaldar og sanngjarnar
leiðir til að innheimta lágt gjald af
erlendum ferðamönnum. Hinir inn-
lendu greiða fyrir sinn hluta með
sköttum sínum. Í svo sem eins og
tíu evrum eða fimmtán dollurum á
mann felst ekki mismunum heldur
er gjaldið greiðsla fyrir þjónustu
sem byggð er upp fyrst og fremst
vegna erlendra gesta, í ljósi þróun-
ar gestakoma til landsins.
Eftir Ara Trausta
Guðmundsson
» Það er ekki of seint
að endurskoða ein-
faldar og sanngjarnar
leiðir til að innheimta
lágt gjald af erlendum
ferðamönnum.
Ari Trausti
Guðmundsson
Höfundur er jarðvísindamaður og
rithöfundur.
Rangar athugasemd-
ir með frumvarpi
um náttúrupassa