Morgunblaðið - 22.03.2014, Side 31
UMRÆÐAN 31
Bréf til blaðsins
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MARS 2014
Fasteignasalan TORG kynnir: Sérlega glæsileg íbúð á efstu hæð! Einstaklega
falleg, björt og vönduð 126,3 fm íbúð á besta stað í Norðlingaholti í Reykjavík. Í
íbúðinni er 3ja metra lofthæð og stórir gluggar með granít sólbekkjum. Sérhönnuð
lýsing frá Lumex er í íbúðinni og fylgir hún öll með. Granít á eldhúsinnréttingu og
vönduð tæki. Mjög stórar svalir sem gengið er út á frá stofu og baðherbergi, þar
sem gert er ráð fyrir heitum potti. Íbúðin er á 3. hæð í lyftuhúsi en henni fylgir stæði
í bílageymslu. Eignin er hin vandaðasta í alla staði.
Uppl. Garðar Hólm sölufulltrúi, gsm: 899 8811
Verð: 42.500.000 Herbergi: 3 Stærð: 126,3 fm Bílageymsla
OPIÐ HÚS 24. mars kl. 18:00-18:30
Sandavað 11
110 Reykjavík
OPIÐ HÚS
24. mars kl. 18:00 - 18:30
Áb. Sigurður Gunnlaugsson lfs.
Garðar
Sölufulltrúi
899 8811
gardar@fasttorg.is
Sigurður
Fasteignasali
898 6106
sigurdur@fasttorg.is
Það er löngu sannað að þeim sem
stunda reglulega líkamsrækt líður
andlega betur og eru í betra jafnvægi
en þeir sem gera það ekki. Þú eflist
andlega og verður öruggari með
sjálfan þig og um
leið færari í mann-
legum sam-
skiptum. Þú ein-
angrast síður og
það bætir í lífs-
löngun þína. Þú
dregur andann og
lifir lífinu í fleiri
litum.
Hvers vegna stundar þá aðeins um
þriðjungur manna og barna líkams-
rækt sem hafa líkamlega burði í það?
Líkamsrækt, hugtakið að rækta
líkama sinn, er margslungið. Það er
hægt að stunda alls kyns hreyfingu.
Þú þarft ekki og ættir ekki að fara
eftir því sem aðrir gera. Þú getur, og
átt að finna þína eigin leiðir í að
hreyfa þig. Hvað þykir þér skemmti-
legt og hvað þykir þér leiðinlegt?
Einbeittu þér að skemmtilegum
hlutum og slepptu þessu leiðinlega.
Góður vinur minn kenndi mér að
halda upp á allt sem þú mögulega
getur haldið upp á. Sama hversu „lít-
ið“ aðrir segja það vera. Það er hluti
andlegrar líkamsræktar. Þú getur
boðið skemmtilegu fólki í heimsókn
og átt með því góða kvöldstund.
Sami vinur minn eignaðist rándýra
koníaksflösku að gjöf sem var orðin
30 ára gömul í skáp hans. Hann hafði
beðið í öll þessi ár eftir að opna hana.
Hann fann ekki rétta tilefnið. Sagan
um flöskuna endaði þannig að hann
opnaði hana á ómerkilegu þriðju-
dagskvöldi eitt sumarið, þegar faðir
hans kom í heimsókn í spjall sem
hann gerði reglulega. Þeir kláruðu
flöskuna og urðu glaðir. Hann við-
urkenndi síðar að hafa flækt málin
með þessari flösku og gert hana að of
stórum hlut í lífi sínu. Hann sá eftir
því.
Þetta var bara flaska af koníaki.
Algengast er, og miða ég þá út frá
minni reynslu, að þeir sem ætla sér
að stunda líkamrækt, mikla það fyrir
sér og gera of mikið úr því líkt og
vinur minn gerði með koníaks-
flöskuna. Þetta á ekki að vera svona
flókið.
Inn í breytuna kemur yfirleitt
þetta: Allir telja sig þurfa að ná ein-
hverjum mælanlegum árangri í stað
þess að næra sálina eina með hreyf-
ingunni.
Kílóin þurfa að fjúka hratt og um-
málið sömuleiðis. Þannig gera þeir
sig að mælanlegum „hlut“ í há-
pressu-þjóðfélagi sem með megrun-
arkúrum og öfgum hefur ákveðið
hvernig mannskepnan skal líta út.
Hvað á sér svo stað innra með þér
þegar þú nærð ekki þessu mæl-
anlega? Þú verður vonsvikinn og
hreyfingin sem áður var svo
skemmtileg fellur um sig sjálfa og þú
átt það til að hætta öllu.
Þú ert ómeðvitað farinn að stunda
líkamsrækt fyrir alla aðra en sjálfan
þig.
Ég skora hér með á þig að byrja,
og þá í þeirri hreyfingu sem höfðar
mest til þín og þér þykir skemmtileg.
Þetta hlýtur að snúast um eitt-
hvað meira en það að vera í röngum
hlutföllum samfélags sem löngu er
búið að missa sjónar á því hvað er
rétt.
ÁSGEIR ÓLAFSSON,
þjálfari og skrifaði metsölubókina
Létta leiðin.
Stundaðu líkamsrækt
fyrir sálina
Frá Ásgeiri Ólafssyni
Ásgeir Ólafsson
Andstæðingum ESB
á Íslandi hefur ítrekað
tekist að auka stuðning
við sinn málstað með
tengingu við mál sem í
raun sýna fram á kosti
ESB-samstarfsins fyrir
Ísland. Icesave-deilan
við Breta og Hollend-
inga er ágætt dæmi um
þetta.
Icesave í notskurn
Upp úr aldamótum óx bankakerfið
hérlendis á hraða sem á sér vart hlið-
stæðu á byggðu bóli. Árið 2006 hóf
Landsbankinn að yfirbjóða vaxtakjör
til að safna innistæðum erlendis og
styrkja sína lausafjárstöðu. Kreppan
sem skall á 2008 var bæði djúp og al-
þjóðleg. Bankakrísur, í mismunandi
birtingarmyndum, hafa komið upp á
u.þ.b. 8-12 ára fresti í heiminum und-
anfarin 200 ár eða svo. Í fyrstu
bankakrísunni eftir einkavæðingu
2002 féll íslenska bankakerfið í heild
sinni og þegar ballið var búið voru
ekki til peningar til að endurgreiða
innstæðueigendum.
Ríkið greip inní og innstæður á Ís-
landi voru tryggðar að fullu. Varð-
andi hina, sem áttu reikninga í er-
lendum útibúum bankanna, var vísað
til regluverks ESB. Ríkisábyrgð var
réttilega vísað á bug þrátt fyrir „ís-
kalt hagsmunamat“ góðra manna.
Fólk hefur óbeit á því að tapa pen-
ingum, sér í lagi þegar aðrir í svipaðri
stöðu fá tjón sitt bætt að fullu. Bret-
land og Holland gerðu athugasemd
við þessi málalok á grundvelli EES-
réttar. Annars vegar
var vísað til tilskipunar
um innlánstrygg-
ingakerfi og hins vegar
meginreglunnar um
bann við mismunun.
Bretland beitti sér með
mjög óbilgjörnum hætti
og upp hófst milliríkja-
deila sem jaðraði við
þorskastríðið þegar
hæst lét. Haustið 2008
voru tímarnir breyttir
og enginn í Washington
sá ástæðu til að styðja
málstað Íslands með langlínusímtali í
Downingstræti 10 eins og í þorska-
stríðinu forðum daga.
Farvegur deilumála
Í samningi ESB við EFTA-ríkin
frá 1994, um aðgang Íslands að innri
markaði sambandsins, er kveðið á um
að deilumál skuli leyst fyrir sér-
stökum EFTA-dómstól. Icesave-
málið vannst á grundvelli regluverks
ESB og fyrir samevrópskum dómstól.
Lyktir Icesave-málsins eru til marks
um að í náinni evrópskri samvinnu
njóta smáþjóðir verndar réttarríkis. Í
slíkum félagsskap getur „hinn smái“
mætt „þeim stóra“ á jafnrétt-
isgrundvelli og uppskorið sigur.
Náið samstarf við alla?
Þeir sem mest eru fráhverfir nán-
ara samstarfi Íslands við Evrópu
nefna mikilvægi þess að vera í góðu
og nánu samstarfi við sem flest ríki.
Kína og Rússland eru oft nefnd í
þessu samhengi sem mikilvæg, ört
vaxandi markaðssvæði og vænlegir
samstarfsaðilar á alþjóðavettvangi.
En skuldsett smáríki geta ekki stund-
að stórfelld viðskipti og verið í nánu
samstarfi alls staðar, aukning á við-
skiptum og samvinnu á einum stað
dregur úr tengslum við aðra.
Í alþjóðaviðskiptum og náinni sam-
vinnu á milli þjóðríkja skapast tengsl.
Með tíð og tíma leiða aukin tengsl til
gagnkvæmra ítaka og bandamenn
verða háðir hver öðrum.
Tilhæfulaus krafa úr austri
Leiða má hugann að málalokum ef
Kína eða Rússland gerðu tilhæfu-
lausa kröfu upp á 1.000 milljarða
króna á hendur Íslendingum á grund-
velli mismununar. Kína og Rússland
hafa ekki alltaf sýnt sanngirni gagn-
vart öðrum ríkjum, svo ekki sé talað
um umburðarlyndi gagnvart þeim
sem eru smáir og í minnihluta. Skyn-
samlegt er að gefa sér góðan tíma í að
meta nánara samstarf á vettvangi þar
sem skuldsettar smáþjóðir í gjaldeyr-
ishöftum njóta verndar réttarríkis á
jafnréttisgrundvelli. Forðast ber
heimatilbúna tímapressu, fyrirfram-
gefna niðurstöðu og fljótfærnislegt
„ískalt hagsmunamat“ eins og heitan
eldinn.
Pútín, Icesave og
„ískalt hagsmunamat“
Eftir Hjálmar
Vilhjálmsson » Lyktir Icesave-
málsins eru til
marks um að í náinni
evrópskri samvinnu
getur „hinn smái“
mætt „þeim stóra“ á
jafnréttisgrundvelli
og uppskorið sigur.
Hjálmar Vilhjálmsson
Höfundur er viðskiptafræðingur.