Morgunblaðið - 22.03.2014, Blaðsíða 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MARS 2014
✝ Auður ErlaHögnadóttir
fæddist í Miðdal í
V-Eyjafjallahreppi
8. október 1941.
Hún lést á heimili
sínu hinn 13. mars
2014.
Foreldrar henn-
ar voru Högni
Kristófersson frá
Stóra-Dal, f. 18.6.
1896, d. 1.2. 1969,
og Anný Hermansen frá Nor-
egi, f. 12.4. 1918, d. 25.11. 1965.
Systkini Auðar eru: Margrét
Helena, f. 1939, Anna Viktoría,
f. 1943, Kristbjörg Sonja, f.
1946, Aubert Störker, f. 1948,
Helga Guðbjörg, f. 1950, d.
13.6. 2012, Ingibjörg Kristín, f.
1951, Jóhanna Ögmunda Þóra,
f. 1954, ein systir þeirra lést í
fæðingu.
Þór, f. 1.10. 1964. 3) Anný
Soffía, f. 29.11. 1965, eigin-
maður hennar er Robert Lo-
renc, f. 2.2. 1968. 4) Sigríður
Linda, f. 7.8. 1969, eiginmaður
hennar er Benedikt Svein-
björnsson, f. 11.6. 1968. Synir:
Sveinbjörn Ólafur, f. 1991, Sig-
urður Einar, f. 1992, og Bene-
dikt Brynjar, f. 2000. 5) Vigdís
Heiða, f. 24.6. 1975. Börn:
Kristján Ingi, f. 1997, Auður
Erla, f. 1998, og Díana Rós, f.
2000. 6) Ólafur Erlingur, f.
23.8. 1977, eiginkona hans er
Camilla Guðmundsdóttir, f.
28.12. 1978. Börn: Sandra
Dögg, f. 2003, og Ísabella Ósk,
f. 2009.
Auður Erla ólst upp í Miðdal
í V-Eyjafjallahreppi. Hún vann
ýmis störf, svo sem við fisk-
vinnslu og hótelstörf þar til ár-
ið 1964 að þau hjónin hófu bú-
skap í Ormskoti undir Eyja-
fjöllum. Þar bjuggu þau til
2000 er þau fluttu að Króktúni
18 á Hvolsvelli.
Útför Auðar fer fram frá
Stóra-Dalskirkju í dag, 22.
mars 2014, kl. 14.
Auður Erla gift-
ist 2. apríl 1966
eftirlifandi eigin-
manni sínum, Ólafi
Sigurþórssyni, f. á
Uxahrygg 8.8.
1938. Foreldrar
hans voru Sigurþór
Ívarsson frá Sám-
stöðum í Fljótshlíð,
f. 14.7. 1899, d.
27.11. 1949, og
Ágústa Marta Guð-
mundsdóttir frá Sigluvík í
Fljótshlíð, f. 7.8. 1915, d. 2.8.
1972. Börn Auðar og Ólafs eru:
1) Anný Helena Hermansen, f.
3.3. 1963, eiginmaður hennar
er Kolbeinn Hreinsson, f. 21.12.
1962. Börn: Sigurður Ingi, f.
1981, d. 2013, Sindri Már, f.
1989, Helena, andvana fædd
1991, Kolbeinn Þór, f. 1993, og
Kristín Birna, f. 2000. 2) Ágúst
Elsku mamma, tengdamamma
og amma. Þegar horft er til baka
koma svo ótal margar skemmti-
legar og góðar minningar upp í
hugann. Allar þær góðu stundir
sem við áttum saman, hversu vel
þú stóðst við bakið á okkur og
varst alltaf tilbúin að aðstoða
okkur. Kraftur þinn og dugnaður
mun vera okkur og stelpunum
okkar mikil og góð fyrirmynd.
Ertu sofnuð, elsku móðir,
– auðn og rökkur „heims um ból“?
Kemur æskan aldrei framar,
– aldrei framar mömmu jól?
Er það hjarta um eilífð brostið,
er af ljósi gaf oss mest?
Eru nú þau augu slokknuð,
er oss fylgdu lengst og best?
Kaldur gustur sárrar sorgar
súgar nú um hópinn þinn:
Það er sárt að koma – koma
og kveðja þig í hinsta sinn,
einnig sárt að sitja í fjarska
og senda tregans andvarp heim.
Þó er fólgið eilíft yndi
undir niðri í harmi þeim.
Börn, er sína móður missa,
mæna fyrst á dauðans sigð.
Samt vér ættum síst að gráta
svona helga móðurtryggð.
Væri ekki betra að blessa
brjóstið mædda, er friðinn hlaut,
syngja og þakka í ljúfu ljóði
lífsins sigra í gleði og þraut?
Innsti hugur, hjartans móðir,
hefir aldrei fengið mál.
Börn þín innar gráti og gleði
gull þitt vernda í hljóðri sál,
því af lífsins góðu gjöfum,
– gildir jafnt um kóng sem þræl, –
ein var best: að eiga móður.
Elsku móðir! Vertu sæl!
(Jóhannes úr Kötlum.)
Minning þín er ljós sem lifir.
Ólafur, Camilla, Sandra
og Ísabella.
Hún mamma okkar er farin
eftir erfið veikindi. Hún fékk þá
ósk sína uppfyllta að fá að vera
heima þar til yfir lyki og það er
mikils virði. Við trúum því að hún
sé nú á betri stað, innan um fólkið
okkar sem flest er löngu farið og
örugglega hefur Siggi tekið vel á
móti henni. Siggi okkar sem fór
svo alltof fljótt og mamma tók svo
afskaplega nærri sér fráfall hans.
En nú eru þau saman og
kannski fær hún fallegan garð
með ótal blómum og trjám sem
hún getur hlúð að eins og hún
gerði alltaf svo vel og reynt að
kenna Sigga latnesku nöfnin á
öllum jurtunum og hann býr til
kvikmynd úr öllu saman. Nú þeg-
ar hún er farin er okkur efst í
huga þakklæti fyrir allt sem hún
lagði á sig fyrir okkur systkinin
og barnabörnin sín. Sérstakar
þakkir fær hún fyrir hvað hún
hugsaði vel um Sigga þegar hann
bjó hjá ömmu og afa. Það var
ómetanlegt og verður aldrei full-
þakkað.
Mamma sefur, – mjúkir hljómar
mildu hjarta vagga í ró,
og daggadropum ljómar
dýrðleg sól við grafar þró.
Mamma sefur, – hér er hnigið
höfuð gjöfugt bólstrum að.
Lágt er hvíslað, hljótt er stigið
hér við ræktar griðastað.
Lítinn sveig við sorgar hljóminn
saman flétta börnin þín:
elsku og tryggðar beztu blómin,
bernskudrauma gullin sín.
(Guðmundur Guðmundsson.)
Blessuð sé minning móður
okkar, tengdamóður og ömmu.
Ágúst Þór, Helena, Kol-
beinn, Sindri Már, Kolbeinn
Þór og Kristín Birna.
Elsku mamma mín er farin eft-
ir löng og erfið veikindi. Eftir
sitja sár sem seint munu gróa og
söknuður sem er meiri en orð fá
lýst.
Mamma vildi vera heima í
veikindum sínum og þá ósk vild-
um við virða. En stundum þurfti
að flytja hana á spítala þar sem
hún var í einn eða fleiri daga. Þá
daga var hún mjög ósátt við og
þessar spítalavistir voru heldur
tilgangslausar þar sem ekkert
var reynt til að losa hana við
meinið fyrr en það var orðið of
seint.
Oftar en ekki virtist henni
hraka við þessar innlagnir. Sem
dæmi má nefna þegar hún fór í
sína síðustu sjúkrahúsvist. Eftir
stutta dvöl þar bað hún mig um
að sækja sig, hún vildi ekki vera
þarna lengur. Ég fór snemma
morguns og þar sem hún hafði
ekki leyfi lækna til að fara beið ég
eftir stofugangi til að fá leyfi til
að fara með hana heim.
Ég var í vafa þar sem hún gat
ekki bjargað sér sjálf með nokk-
urn hlut. Svo kom stofugangur og
hún spurði hvort hún mætti ekki
fara heim. Læknirinn spurði þá
hvort hún ætti maka og hvort
hann væri heilsuhraustur, sem
hann var nú reyndar ekki.
Ég lét þá lækninn vita að þau
væru aldrei ein og gaf í skyn að
hún fengi sennilega betri þjón-
ustu heima en á spítalanum, að
starfsfólkinu þar ólöstuðu. Svo
hún fékk leyfi til að fara. Hún var
mjög slöpp og við hjálpuðum
henni að klæðast þar sem hún gat
það alls ekki sjálf. Á heimleiðinni
vildi mamma samt koma við í búð
og kaupa í matinn. Hún tók af sér
súrefnið og labbaði inn í búðina
eins og ekkert væri. Það var ann-
að að sjá hana þá en fyrr um
morguninn.
Við það eitt að vita að hún væri
laus af spítalanum og væri á
heimleið hresstist hún svo mikið
að hún var eins og önnur mann-
eskja. Svo mikilvægt var það
henni að fá að vera heima.
Ég á eftir að sakna allra
göngutúranna og ferðanna sem
við fórum saman, hvort sem það
voru verslunarleiðangrar eða
eitthvað annað. Og allra stund-
anna okkar í garðinum, hvort
sem það var í Ormskoti eða í
Króktúninu.
Það voru góðar stundir.
Undir háu hamrabelti
höfði drúpir lítil rós.
Þráir lífsins vængja víddir
vorsins yl og sólarljós.
Ég held ég skynji hug þinn allan
hjartasláttinn rósin mín.
Er kristallstærir daggardropar
drúpa milt á blöðin þín.
Æsku minnar leiðir lágu
lengi vel um þennan stað,
krjúpa niður kyssa blómið
hversu dýrðlegt fannst mér það.
Finna hjá þér ást og unað
yndislega rósin mín.
Eitt er það sem aldrei gleymist,
aldrei, það er minning þín.
(Guðmundur G. Halldórsson.)
Elsku mamma mín, þakka þér
fyrir allar góðu stundirnar okkar
saman, ég á eftir að sakna þeirra
mikið.
Guð geymi þig
Anný og Róbert.
Elsku mamma mín, ég er ekki
enn búin að ná því að þú sért farin
frá okkur. Mér finnst eins og þú
sért enn inni í herbergi að leggja
þig eða eitthvað að stússa í fönd-
urherberginu.
Þú varst mér svo kær og hef ég
verið að reyna telja mér trú um
að þetta sé ekki raunveruleikinn.
Ég sé ekki fyrir mér hvernig
framtíðin verður án þín. Við vor-
um ekki bara mæðgur heldur
varstu svo frábær vinkona mín,
alltaf gat ég leitað til þín og spurt
þig ráða. Þú hlúðir svo vel að öll-
um, passaðir upp á að öllum liði
vel og vildir alltaf vita af okkur
öllum öruggum.
Við áttum yndislegan tíma
saman en mig langar svo að hann
hefði verið lengri. Ég á þó marg-
ar góðar og yndislegar minningar
um þig sem verma mér um
hjartarætur. Við höfum brallað
margt saman og var alltaf mikið
grín og gaman þegar við tókum
okkur til.
Þú varst alltaf svo góð við mig,
ég fékk athygli þína óskipta,
þú lifðir fyrir mig,
hlustaðir á mig,
talaðir við mig,
leiðbeindir mér,
lékst við mig,
sýndir mér þolinmæði,
agaðir mig í kærleika,
sagðir mér sögur,
fræddir mig
og baðst með mér.
Þú varst alltaf svo nærgætin
og skilningsrík,
umhyggjusöm og hjartahlý.
Þú varst skjól mitt og varnarþing.
Við stóðum saman í blíðu og stríðu,
vorum sannir vinir.
Mér þótti svo undur vænt um þig,
elsku mamma mín.
(Sigurbjörn Þorkelsson.)
Með ástarþökk ertu kvödd í hinsta
sinni hér
og hlýhug allra vannstu er fengu að
kynnast þér.
Þín blessuð minning vakir og býr í
vinahjörtum
á brautir okkar stráðir þú, yl og
geislum björtum.
(Ingibjörg Sigurðardóttir.)
Þótt ég hafi viljað hafa þig hér,
veit ég að fólkið okkar hefur tekið
vel á móti þér. Nú hefur þú hitt
Sigga aftur og þið eruð eflaust
farin að gera eitthvað skemmti-
legt saman og passið hvort ann-
að.
Elsku mamma mín, takk fyrir
alla hjálpina og fyrir allt sem þú
hefur verið mér. Ég ætla að enda
á rullunni okkar.
Góða nótt og dreymi þig vel,
hringdu ef eitthvað er. Sjáumst
eða heyrumst á morgun. Ókey
bæ …
Ég elska þig og sakna þín svo
sárt. Ég veit þú gætir okkar. Guð
blessi þig, elsku besta mamma
mín. Þín dóttir.
Vigdís Heiða Ólafsdóttir.
Lífið er erfitt á svona tímum.
Ég sest niður og fer að hugsa
„hvernig á ég að koma öllu á blað
sem ég vil segja“
en þegar ég lít til baka eru
minningarnar alveg óteljandi.
Eins og þegar þú baðst mig að
gera eitthvað fyrir mörgum árum
hér í sveitinni sem við bjuggum í.
Þá sagðirðu alltaf: „Ég skal
gefa þér eina græna kú úti í fjósi
þegar þú ert búin.“ Og vá, ég átti
orðið svo margar grænar og blá-
ar kýr í fjósinu.
Svo kom að því að ég flutti að
heiman og fór að búa á Hellu og
þegar ég eignaðist mitt fyrsta
barn varstu alltaf tilbúin að
hjálpa mér með drenginn. Ég gat
bara hringt og fékk ég þá ráð-
leggingar strax eða þú og pabbi
komuð og þá var málunum bara
reddað. Mér verður líka lengi
minnisstætt þegar, núna undir
síðustu mánuðina, við sátum við
eldhúsborðið í Krókatúni, þú
pabbi, ég og oft kom Vigga líka.
Svo álpaðist einhver vitleysa upp
úr mér og þá hlógum við enda-
laust að vitleysunni sem kom frá
okkur Viggu. Þær voru svo góðar
og skemmtilegar og góðar þessar
stundir og gleymast aldrei.
Þú varst alltaf svo yndislega
góð við okkur öll, mig, Benna,
drengina okkar og svo tengda-
dætur okkar og vildir allt fyrir
okkur gera, þú varst meira að
segja búin að skipuleggja ferm-
ingarveisluna hjá Benedikt
Brynjari og útskriftarveisluna
hjá Sveinbirni Ólafi. Já, ég veit að
skipulagshæfileikana fékk ég frá
þér og verð ævinlega þakklát fyr-
ir það.
Nú er komið að kveðjustund,
jafn sárt og ótrúlegt og það er.
Við eigum öll eftir að sakna þín
en þú verður alltaf með okkur.
Ástar- og saknaðarkveðjur,
þín dóttir og tengdasonur.
Sigríður Linda og Benedikt.
Þar sem englarnir syngja, sef-
ur þú.
Auður systir mín er farin eftir
erfið veikindi. Elsku Auður mín,
það er margs að minnast en mig
langar að þakka þér fyrir árin
sem við fengum að njóta saman
og kveð þig, elsku systir, með
þessum orðum.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífs þíns nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði nú sorg mitt og hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Far þú í friði, friður guðs þér
fylgi, hafðu þökk fyrir allt.
Elsku Óli, Helena, Gústi,
Annú; Sigga, Vigga, Óli Erlingur
og fjölskyldur. Innilegar samúð-
arkveðjur, ykkar missir er mikill.
Anna Högnadóttir
og fjölskylda.
Elsku Amma,
við skiljum ekki afhverju lífið
er okkur svona ósanngjarnt. Þú
varst okkur eins og önnur
mamma og við gátum alltaf leitað
til þín. Það var svo gott að koma
heim til ömmu og afa, þar var sko
dekrað við okkur og við vildum
hvergi annarsstaðar vera í pöss-
un en hjá ykkur.
Þú tókst fullan þátt í öllu, í
okkar lífi og hafðir svo mikinn
áhuga á hvað við vorum að gera
og hvernig okkur gekk. Það er
svo erfitt að vita að við eigum
ekki eftir að sjá þig aftur og fá að
knúsa þig. Það er svo sárt að
missa þig, elsku amma.
Æ, amma, hvar ertu? Æ, ansaðu mér.
Því ég er að gráta og kalla eftir þér.
Fórstu út úr bænum eða fórstu út á
haf?
Eða fórstu til Jesú í sælunnar stað?
(Höf. ók.)
Hér að hinstu leiðarlokum
ljúf og fögur minning skín.
Elskulega amma góða
um hin mörgu gæði þín.
Allt frá fyrstu æskudögum
áttum skjól í faðmi þér.
Hjörtun ungu ástúð vafðir
okkur gjöf sú dýrmæt er.
Hvar sem okkar leiðir liggja
lýsa göfug áhrif þín.
Eins og geisli á okkar brautum
amma góð, þótt hverfir sýn.
Athvarf hlýtt við áttum hjá þér
ástrík skildir bros og tár.
Í samleik björt, sem sólskinsdagur
samfylgd þín um horfin ár.
Fyrir allt sem okkur varstu
ástarþakkir færum þér.
Gæði og tryggð er gafstu
í verki góðri konu vitni ber.
Aðalsmerkið: elska og fórna
yfir þínum sporum skín.
Hlý og björt í hugum okkar
hjartkær lifir minning þín.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Amma kær, ert horfin okkur hér,
en hlýjar bjartar minningar streyma
um hjörtu þau er heitast unnu þér,
og hafa mest að þakka, muna og
geyma.
Þú varst amma yndisleg og góð,
og allt hið besta gafst þú hverju sinni,
þinn trausti faðmur okkur opinn stóð,
og ungar sálir vafðir elsku þinni.
Þú gættir okkar, glöð við undum hjá,
þær góðu stundir blessun, amma
kæra.
Nú hinstu kveðju hjörtu okkar tjá
í hljóðri sorg og ástarþakkir færa.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Elsku besta amma, við sökn-
um þín svo mikið og viljum svo
mikið fá þig aftur. Takk fyrir að
vera besta amma í öllum heim-
inum og fyrir allt sem þú hefur
gert fyrir okkur.
Við elskum þig og söknum þín
sárt. Þín barnabörn,
Kristján Ingi Gunnlaugsson,
Auður Erla Gunnlaugsdóttir
og Díana Rós Gunnlaugsdóttir.
Elsku besta amma, það er svo
erfitt að við sitjum hér og skrif-
um þetta til þín þegar við eigum
að geta farið til þín og talað við
þig og afa saman eins og við gerð-
um. Hlegið og gantast að hinu og
þessu. Þú varst alltaf svo trygg
og góð við okkur bræðurna og
kærusturnar okkar.
Alltaf var hlaðborð af kökum
sett á borð þegar við komum eða
þú bakaðir pönnukökur handa
okkur. Já, pönnukökurnar þínar,
enginn gerir eins góðar pönnu-
kökur og þú. Það er margt sem
við eigum eftir að sakna þegar þú
ert ekki hér hjá okkur en þú ert
samt með okkur, þú ert fallegi
engillinn okkar og við vitum að
Siggi Ingi hefur tekið vel á móti
þér.
Þau voru dugleg, börnin þín,
að hugsa um þig heima hjá þér.
Mamma, þú stóðst þig eins og
hetja á þessum erfiða tíma. Elsku
afi, þú stóðst eins og klettur við
hlið ömmu og vékst ekki frá
henni allan tímann.
Hafðu okkar bestu þakkir fyr-
ir allt, elsku Auður amma. Við
kveðjum þig með mikilli sorg. Þín
verður sárt saknað.
Saknaðarkveðjur,
strákarnir þínir, eins og þú
kallaðir okkur alltaf,
Benedikt Brynjar, Sigurður
Einar, Telma Ósk, Svein-
björn Ólafur og Klara Sif.
Auður Erla
Högnadóttir
Virðing,
reynsla
& þjónusta
Allan
sólarhringinn
571 8222
Svafar:
82o 3939
Hermann:
82o 3938
Ingibjörg:
82o 3937
www.kvedja.is
svafar & hermann
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar og
tengdamóðir,
HÓLMFRÍÐUR BÁRA MAGNÚSDÓTTIR,
er látin.
Útförin fer fram frá Safnaðarheimilinu í
Sandgerði miðvikudaginn 26. mars kl. 13.00.
Brynjarr Pétursson,
Guðrún Magnea Hafsteinsdóttir, Jóhannes Kr. Jónsson,
Borghildur Brynjarsdóttir, Karl Lúðvíksson,
Pétur Brynjarsson, Björk Garðarsdóttir,
Magnús Brynjarsson, Ólöf Björg Kristjánsdóttir.