Morgunblaðið - 22.03.2014, Page 33
MINNINGAR 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MARS 2014
✝ Helga Magnús-dóttir fæddist
12. júlí 1930 í
Steinholti á Höfn.
Hún lést á Heil-
brigðisstofnun Suð-
austurlands 16.
mars 2014.
Hún var dóttir
hjónanna Magnús-
ar Bjarnasonar, f.
14.8. 1894, d. 30.11.
1987, og Sigur-
nýjar Stefánsdóttur, f. 29.1.
1897, d. 17.5. 1947. Ásamt
Helgu áttu þau Ástu Bjarnheiði,
f. 2.7. 1927, d. 24.6. 1996, og
uppeldissoninn Róbert Bjarnar
Marinósson, f. 30.6. 1930.
Helga giftist 7. apríl 1958
Gísla Bjarnasyni mjólkurfræð-
ingi, f. 10.9. 1918, d. 17.5. 1973.
Eftirlifandi eiginmaður Helgu
er Ragnar Arason vélstjóri, f.
2.6 1928, en þau gengu í hjóna-
Synir Helgu Kristínar og Stef-
ans Ekström eru: Noel Ragnar,
f. 2004, og Leon Rolf, f. 2006. 2)
Magnhildur Björk, f. 5.4. 1964,
eiginmaður Þorvaldur Jón Vikt-
orsson, f. 9.7. 1953, búsett á
Höfn. Synir þeirra eru: a)
Andri, f. 3.10. 1986, b) Viktor
Ragnar, f. 3.11. 1988, býr með
Hrafnhildi Önnu Guðjónsdóttur,
f. 20.5. 1991, á Höfn. Sonur Þor-
valdar og Guðnýjar Árnadóttur
er Árni Rúnar, f. 26.7. 1976,
maki Ragnhildur Einarsdóttir,
f. 3.8. 1976. Börn þeirra eru:
Guðný, f. 2000, Einar Karl, f.
2001, og Sólborg, f. 2012. Upp-
eldissonur Helgu er Magnús
Sigmar Aðalsteinsson, f. 4.12.
1947, búsettur í Reykjavík.
Börn Magnúsar og Lilju Hjart-
ardóttur, f. 29.5. 1953, eru: a)
Helga, f. 15.6. 1975, býr með
Sigurði Bjarka Þórðarsyni, f.
30.7. 1968, í Reykjavík. Dóttir
þeirra er Ástrós Hekla, f. 2009,
b) Hjörtur, f. 21.1. 1980, búsett-
ur í Danmörku.
Útför Helgu fer fram frá
Hafnarkirkju, Höfn, í dag, 22.
mars 2014, og hefst athöfnin kl.
14.
band hinn 20. febr-
úar 1981. Dætur
Helgu og Gísla eru:
1) Guðbjörg Signý,
f. 2.12. 1957, eigin-
maður Stefán
Bjarni Finnboga-
son, f. 7.8. 1957,
búsett í Osló, Nor-
egi. Börn þeirra
eru: a) Gísli Ei-
ríkur, f. 27.2. 1979,
býr með Michaelu
Viken, f. 18.9. 1989, í Svíþjóð, b)
Ingólfur, f. 20.12. 1981, giftur
Sumeru Norrin Chaudry, f.
16.10. 1980, búsett í Noregi.
Synir þeirra eru David, f. 2007,
og Mikael, f. 2011, c) Hulda, f.
5.7. 1988, búsett í Noregi, d) Bo-
gey, f. 6.2. 1995, býr í foreldra-
húsum í Noregi. Fyrir átti Guð-
björg Helgu Kristínu Skúla-
dóttur, f. 9.4. 1977, býr með
Fredrik Holmblad í Svíþjóð.
Mig langar að minnast með
nokkrum orðum tengdamóður
minnar Helgu Magnúsdóttur
sem borin verður til grafar í dag.
Leiðir okkar Helgu lágu sam-
an fyrir aldarfjórðungi þegar ég
og dóttir hennar Magnhildur hóf-
um sambúð. Strax við fyrstu
kynni tóku Helga og Ragnar mér
opnum örmum og hafa reynst
mér vel alla tíð. Á stundu sem
þessari koma margar minningar
upp í hugann sem munu ylja mér
um hjartarætur alla tíð. Helga
var heilsteypt og traust í öllum
samskiptum og mikil fjölskyldu-
manneskja. Hún hélt myndarlegt
heimili á Norðurbrautinni sem
var nánast félagsmiðstöð fjöl-
skyldunnar hvern dag. Alltaf tók
hún glaðlega á móti mér og ekki
skorti á kaffiveitingar, var þá oft
hlegið og rifjaðar upp sögur enda
Helga með góða frásagnargáfu
og afar góð eftirherma. Helga var
matgæðingur og hvergi hef ég
fengið silung betur framreiddan
og ekki skemmdi fyrir að silung-
urinn var veiddur af húsbóndan-
um og kartöflurnar úr fjölskyldu-
garðinum. Auk þess að sinna
heimilinu var hún útivinnandi og
lengst af sínum starfsferli í
Mjólkursamlagi KASK. Hún
hafði gaman af að vinna og skilaði
störfum sínum af skyldurækni.
Helga og Ragnar voru ætíð
samstiga og nutu lífsins, ferðuð-
ust víða bæði innan lands og utan.
Einnig hlúðu þau vel að heimilinu
og var garðurinn einkanlega
blómlegur og þeim til sóma. Síð-
ustu árin hvarf Helga frá okkur
smátt og smátt í heim Alzheim-
ers-sjúkdómsins sem vissulega
tók á alla fjölskylduna. Hún var
þrátt fyrir erfiðan sjúkdóm gleði-
gjafi allra sem í kringum hana
voru. Elsku Helga, takk fyrir
samfylgdina og minningarnar um
þig munu lifa.
Blessuð sé minning þín.
Þorvaldur Jón Viktorsson.
Elsku amma. Núna ertu búin
að kveðja okkur, skilur eftir þig
heilan haug af góðum minningum
sem við getum huggað okkur við.
Það er mér minnisstætt þegar ég
og æskuvinur minn Elvar Bragi
hringdum í þig úr útvarpsþætti í
þemaviku FAS, spjölluðum við
þig í dágóða stund og við lofuðum
að koma í heimsókn. Þú fórst á
fullt að baka pönnukökur en allt
kom fyrir ekki; við gleymdum
okkur í fimmtán mínútna frægð-
inni í útvarpinu og gleymdum að
koma. Við Elvar ræðum þetta
alltaf reglulega og samviskubitið
sem við fengum yfir að hafa ekki
farið í heimsókn. Við munum eiga
þessar pönnsur inni hjá þér þeg-
ar við hittumst aftur, þótt maður
hafi fengið allnokkrar hjá þér eft-
ir þetta.
Árið 2006 greindist þú með
Alzheimer-sjúkdóminn og það
átti eftir að taka sinn toll hjá þér
og aðstandendum. Síðustu árun-
um eyddir þú í góðu yfirlæti á
Heilbrigðisstofnun Suðaustur-
lands á Hornafirði og varst ætíð
glaðleg allt til síðasta dags. Því
þótt þessi sjúkdómur hafi smátt
og smátt tekið af þér mátt til að
tjá þig og hreyfa að fullu tók hann
aldrei frá þér þitt fallega bros.
Því verður þitt fallega bros og
góða nærvera ávallt það minnis-
stæðasta við þig.
Ég þakka fyrir allar góðu
stundirnar og sömuleiðis þakkar
Hrafnhildur Anna fyrir að hafa
verið svo heppin að kynnast þér
síðustu fimm árin. Sjáumst
seinna í pönnsum.
Viktor Ragnar
og Hrafnhildur Anna.
Helga
Magnúsdóttir
HINSTA KVEÐJA
Til elskulegrar móður
minnar Helgu Magnúsdótt-
ur
Kveðjan er tilfinning gleði og
sorgar,
kveðjan er upphaf og endir margs
óðs,
kveðjan, hún kallar fram stundir
og atvik,
kveðjan, hún meitlar í steininn
ljóð.
Að kveðja þá sorgin í hjartanu
lifir,
að kveðja þá lokið er lífsins bók,
að kveðja þá minningin eftir
þó lifir
að kveðja þig mamma mín það
á mig tók.
Ávallt mun minning þín lifa,
Magnhildur Björk
Gísladóttir.
✝ Gísli Þ. Sig-urðsson fædd-
ist á Eyrarbakka
30. júní 1939. Hann
lést á Heilbrigð-
isstofnun Suður-
lands 10. mars
2014.
Foreldrar hans
voru Guðbjörg
Jóna Þorgríms-
dóttir, f. á Gríms-
stöðum á Eyrar-
bakka 6. janúar 1905, d. á
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
22. nóvember 1988, og Sigurður
Ingvarsson, sjómaður og bíl-
stjóri, f. 14. október 1892, d. 22.
júní 1971.
Gísli starfaði sem vörubíl-
stjóri lengst af ásamt því að
vinna við netafell-
ingar og línubeitn-
ingar. Síðustu árin
starfaði hann sem
bílstjóri hjá Fóður-
stöðinni á Selfossi,
Hann starfaði lengi
í Björgunar-
sveitinni Björg á
Eyrarbakka og var
um tíma formaður
hennar. Einnig var
hann í slökkviliðinu
á Bakkanum og slökkviliðsstjóri
um tíma.
Gísli var ókvæntur og barn-
laus og bjó á Eyrarbakka alla
sína tíð.
Útför Gísla fer fram frá
Eyrarbakkakirkju í dag, 22.
mars 2014, kl. 14.
Fallinn er frá frændi minn og
vinur Gísli á Hópi á Eyrarbakka.
Feður okkar voru hálfbræður og
alnafnar.
Það var ævinlega glaðlega
heilsað þegar Gísli á Hópi renndi
í hlaðið hjá okkur hér í Svínafelli.
Yfirleitt kom hann hér við nálægt
verslunarmannahelgi en oftast
tók hann sér smá frí um það leyti.
Það kom þó fyrir að hann skilaði
sér ekki og þá venjulega fyrir það
að útilegan var í öðrum lands-
hluta þau skiptin. Síðastliðið
sumar höfðum við einmitt orð á
því þegar leið á ágúst að ekki
hefði orðið vart við Gísla og við
reiknuðum það út að nú hefði
hann farið í aðrar áttir. En það
kom á daginn að veikindi hans
höfðu þá þegar sett strik í reikn-
inginn svo að hvorki sumarfrí né
önnur lífsins gæði voru söm og
áður.
Við eigum margar góðar minn-
ingar frá samveru við Gísla.
Hann var ræðinn um allt milli
himins og jarðar, fylgdist vel með
og sagði hressilega frá ýmsu sem
hann hafði séð og upplifað. Hann
hafði ríka réttlætiskennd og hafði
ákveðnar skoðanir á því sem bet-
ur mátti fara að hans mati.
Gísli var ævinlega önnum kaf-
inn í atvinnulífinu á Eyrarbakka.
Hann hafði metnað fyrir sinni
heimabyggð og sagði stoltur frá
því sem vel var gert þar. Nábýlið
við sjóinn var svo stór hluti af
hans veruleika að honum fannst
nauðsynlegt að komast sem oft-
ast að sjó þó að hann væri á
ferðalögum um landið.
Hann var mikill náttúruunn-
andi og í seinni tíð var skógrækt
hans áhugamál sem reiturinn
hans fyrir norðan veg vitnar um.
Þar hafði hann gert tilraunir með
ýmsar tegundir og var spenntur
fyrir því hvað reyndist best.
Gísli átti sér uppáhalds áning-
arstaði hér um slóðir og lengi vel
tjaldaði hann alltaf á sama stað
þar til tjaldið gaf sig í hvassviðri
og rifnaði og þá var ekki um ann-
að að ræða en að endurnýja
ferðabúnaðinn. Þá seinna um
haustið bankaði hann glað-
hlakkalegur upp á hjá okkur, var
þá að koma frá Seyðisfirði á hús-
bíl sem hann hafði fjárfest í og
hafði fengið með Norrænu. Það
var afar ánægjulegt að fylgjast
með honum njóta sumarferða-
laga um árabil á þessum bíl með
öllum þægindum.
Nú hugsum við hlýtt til Gísla á
nýjum vegum með innilegu þakk-
læti fyrir allar góðar stundir.
Ólafur Sigurðsson
og fjölskylda.
Í dag er til moldar borinn
frændi minn og vinur, Gísli Þ.
Sigurðsson á Hópi, Eyrarbakka,
en hann lést á Heilbrigðisstofnun
Suðurlands þann 10. mars síðast-
liðinn eftir erfið veikindi. Hugur-
inn leitar aftur til þess tíma er ég
hitti þennan frænda minn í fyrsta
skipti árið 1959, ég þá 10 ára
gamall og hann 19 ára. Á þessum
árum er þetta mikill aldursmun-
ur og ég man hve mikið ég leit
upp til hans, hann átti flottan
vörubíl ásamt föður sínum, Sig-
urði Ingvarssyni og keyrði fjöru-
sand til Reykjavíkur. Ég átti
hinsvegar bara gamalt reiðhjól,
var horaður, rauðhærður og
freknóttur, en hann stór og
kraftalegur. Í upphafi þótti hon-
um lítið til þessa litla og pervisna
frænda síns koma en með tíman-
um tók hann þann stutta í sátt og
áttum við góðar stundir saman.
Hann var viljugur við að fræða
mig um alla hluti á Bakkanum,
hvað mátti gera og hvað ekki.
Gísli ók vörubílnum sínum, hlöðn-
um fjörusandi, til Reykjavíkur,
stundum tvisvar á dag og allt
mokað á með höndunum. Ég fór
oft með honum í fjöruna til að
moka á bílinn og þóttist moka á
við hann en mín skófla var lítil en
hans var stór, og minn hlutur því
lítill miðað við hans. En það var
ekki alltaf verið að moka sandi og
stundum fórum við til veiða í Ölf-
usá og þá frá Bakkaengjunum
svonefndu.
Oft veiddum við vel, það er að
segja Gísli, en hann hafði ekki orð
á því þó minn hlutur væri rýr, að-
eins að við hefðum fengið góðan
afla. Gísli vann sem vörubílstjóri
lengst af, en einnig stundaði hann
aðra vinnu svo sem netafellingar
og línubeitningar. Á síðari árum
var hann svo bílstjóri hjá Fóður-
stöðinni á Selfossi. Hann var
mjög duglegur að ferðast um
landið sitt, til að byrja með var
hann með tjald en síðan eignaðist
hann húsbíl og fór víða á honum.
Ég hugsa að hann hafi heimsótt
flestar ef ekki allar sveitir lands-
ins og sumar margoft.
Hann hafði einnig mikinn
áhuga á trjárækt og á seinni ár-
um var hann búin að planta trjám
í töluverðu magni í jarðarpart
sem hann átti fyrir ofan Bakk-
ann. Gísli var hlédrægur maður
og tranaði sér ekki fram en hann
unni Bakkanum sínum og vildi
veg hans sem mestan, Hann tók
virkan þátt í störfum Björgunar-
sveitarinnar Bjargar á Eyrar-
bakka og var um tíma formaður
hennar. Hann var einnig í
slökkviliðinu á Bakkanum og um
tíma slökkviliðsstjóri. Gísli lét sér
líka annt um atvinnumál á Bakk-
anum. Ég gæti haldið áfram að
telja upp fleira og fleira sem Gísli
kom að en læt staðar numið hér,
hann var ekki mikið fyrir orð-
skrúð hann frændi minn.
Ég horfi upp í himininn
Hann er grár og úfinn.
Honum líkist hugur minn
Harmi og trega búinn.
(Lára S. Sigurðardóttir)
Elsku frændi og vinur. Takk
fyrir samfylgdina.
Magnús B. Sigurðsson.
Gísli Þ. Sigurðsson
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Suðurhlíð 35, Rvík. • Símar 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is
Sverrir
Einarsson
Kristín
Ingólfsdóttir
Hinrik
Valsson
✝
Ástkær föðursystir okkar,
LILJA BJÖRNSDÓTTIR,
lést á Landspítalanum fimmtudaginn
13. mars.
Útförin fer fram frá Digraneskirkju
mánudaginn 24. mars kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
ÁS styrktarfélag.
Gísli Björn Sigurðsson,
Halldóra Ólöf Sigurðardóttir,
Björn Guðmundsson,
Halldóra Guðmundsdóttir,
Lilja Guðmundsdóttir,
Sóley Guðmundsdóttir.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir, amma og lang-
amma,
SIGRÚN ÞÓRÐARDÓTTIR,
Siddý,
lést á hjúkrunardeild HSA á Egilsstöðum
fimmtudaginn 13. mars.
Minningarathöfn fer fram föstudaginn
28. mars í Egilsstaðakirkju kl. 11.00
Útför fer fram mánudaginn 31. mars í Fossvogskapellu kl. 13.00.
Hjartans þakkir til starfsfólks hjúkrunardeildar HSA,
Egilsstöðum, fyrir einstaka umhyggju.
Kristján Alexandersson,
Þórður Kristjánsson, Petrína Haraldsdóttir,
Hrafnkell H. Kristjánsson, Bryndís Sigurgeirsdóttir,
Svanfríður Kristjánsdóttir, Magnús Ó. Gunnarsson,
Birna Kristjánsdóttir,
Alexander Kristjánsson, Lembi Seia Sangla.,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginkona mín,
INGVELDUR GÍSLADÓTTIR
frá Vestmannaeyjum,
er látin.
Fyrir hönd barna, tengda- og barnabarna.
Eyjólfur Pétursson.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
SVAVA ÞORBJARNARDÓTTIR,
Öldugötu 33 í Reykjavík,
lést þriðjudaginn 18. mars á hjúkrunar-
heimilinu Grund.
Hún verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í
Reykjavík miðvikudaginn 2. apríl kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Landspítalann.
Guðný Bernhard, Reynir Bjarnason,
Þorbjörg Bernhard,
Helga Kristín Bernhard, Gísli Jón Magnússon,
ömmubörn, langömmubörn
og langalangömmubörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
SKÚLI BJARNASON
læknir,
Njálsgötu 98,
Reykjavík,
lést á heimili sínu þriðjudaginn 18. mars.
Útför hans verður gerð frá Hallgrímskirkju föstudaginn 28. mars
kl. 13.00.
Sigurlaug Halldórsdóttir,
Margrét Skúladóttir, Páll Aðalsteinn Svansson,
Halldór Skúlason, Brynja Björk Harðardóttir,
Nanna Kristín Skúladóttir, Ómar Örn Jónsson,
barnabörn og barnabarnabarn.