Morgunblaðið - 22.03.2014, Qupperneq 34
34 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MARS 2014
✝ GuðmundurÓlafur Garð-
arsson fæddist í
Ólafsfirði 17. mars
1959. Hann lést 12.
mars 2014 á Land-
spítalanum í
Reykjavík.
Guðmundur
Ólafur var sonur
hjónanna Sigríðar
Ingibjargar
Hannesdóttur, f.
1.9. 1934, d. 22.4. 1991, og Garð-
ars Guðmundssonar, f. 21.2.
1930. Sambýliskona Garðars er
Helga Torfadóttir, f. 20.2. 1926.
Systkini Guðmundar eru Hall-
dóra, f. 30.4. 1957, gift Maroni
Björnssyni, f. 28.10. 1959, búsett
á Akureyri, Ólöf, f. 12.7. 1960,
gift Barða Jakobssyni, f. 21.10.
1952, búsett á Akureyri, og
Hannes, f. 1.7. 1962, kvæntur
Steinunni Aðalbjarnardóttur, f.
14.7. 1964, búsett á Akureyri.
Guðmundur kvæntist 26.12.
1981 Þuríði Sigmundsdóttur, f.
11.7. 1962, og hafa þau alla tíð
búið á Ólafsfirði fyrir utan
sem skipstjóri á skipunum Guð-
mundi Ólafi ÓF 91, bæði þeim
rauða og þeim bláa. Þau skip
voru í eigu fjölskyldufyrirtækis-
ins Garðars Guðmundssonar
ehf. Guðmundur var mikill fé-
lagsmálamaður og í uppvexti og
fram á fullorðinsár var hann af-
reksmaður í fótbolta og skíða-
göngu og hampaði fjölmörgum
bikurum bæði sem fyrirliði
Leifturs til fjölmargra ára og
sem skíðamaður. Hann var fé-
lagi í Rotarýklúbbi Ólafsfjarðar
og forseti klúbbsins í eitt ár.
Guðmundur var formaður
hobbýfjárbænda í Ólafsfirði og
mjög virkur á þeim vettvangi
eins og öðrum sem hann lét sig
varða eins og veðdeild Blíðfara
og Leikfélagi Ólafsfjarðar svo
fátt eitt sé talið. Guðmundur
starfaði sem umsjónarmaður
íþróttamannvirkja um skeið en
var þegar hann lést formaður og
framkvæmdastjóri Sjómanna-
félags Ólafsfjarðar. Guðmundur
starfaði við og var einn eigenda
fiskverkunarfyrirtækisins
Knolls, sem hóf starfsemi sína í
fiskverkunarhúsi því sem fjöl-
skylda hans byggði og spannar
sú saga nánast æviskeið hans.
Útför Guðmundar fer fram
frá Ólafsfjarðarkirkju á morg-
un, 23. mars 2014, og hefst
klukkan 14.
námsár Guð-
mundar í Stýri-
mannaskólanum í
Reykjavík. Börn
þeirra eru: 1) Garð-
ar, búsettur í
Reykjavík, f. 25.2.
1979, sambýliskona
hans er Þorgerður
Kristín Guðmunds-
dóttir, f. 7.3. 1977,
og eiga þau saman
dótturina Þuríði
Lilju, f. 29.10. 2009, fyrir á
Garðar soninn Guðmund Orra, f.
2.3. 2005, með Esther Gunn-
veigu Gestsdóttur, f. 3.10. 1984,
Kristín á fyrir dótturina Sölku
Björk, f. 10.10. 2000. 2) Guðrún
Elísabet, búsett á Sauðárkróki,
f. 6.1. 1991, sambýlismaður
hennar er Sindri Valdimarsson,
f. 4.11. 1990, eiga þau saman
soninn Kjartan Ólaf, f. 27.8.
2011. 3) Halldór Ingvar, búsett-
ur í Ólafsfirði, f. 21.4. 1992, sam-
býliskona hans er Guðbjörg Ýr
Víðisdóttir, f. 15.12. 1994.
Guðmundur var lærður stýri-
maður og starfaði sem slíkur og
Stóri bróðir minn er farinn
heim eins og við skátar tölum um
þegar dauðastundin rennur upp.
Heima í okkar fagra firði,
í fjallanna tign og töfrum,
um stund frostkulið kyrrði.
Kominn heim að loknum störfum
var öndvegissonur og sómi
svefninum langa bundinn.
Allt rann saman í samhljómi,
heilög var heimkomustundin.
Ég lofa að gera skyldu mína
við guð og ættjörðina, að hjálpa
öðrum og að halda skátalögin.
Þannig hljóðar skátaheitið sem
við Gummi bróðir undirgeng-
umst. Við höfum leitast við að
halda þetta heit og það hefur ver-
ið leiðarljós okkar í lífinu. Gummi
bróðir var fyrirmynd mín og vildi
ég feta þá slóð sem hann tróð.
Pabbi okkar lét ekki sitt eftir
liggja að vinna að framgangi
góðra mála í Ólafsfirði, bæjar-
félaginu okkar sem tryggð okkar
er bundin. Hann var formaður
Karlakórs Ólafsfjarðar, forseti
Rótarýklúbbsins, formaður
Íþróttafélagsins Leifturs og svo
formaður á sínum báti. Mamma
rak sólbaðsstofu og þar áttu
Ólafsfirðingar öruggt athvarf því
hún var alltaf til í að hlusta án
þess að dæma. Það er ekki lítils
virði að hafa slíkar fyrirmyndir.
Líf Guðmundar Ólafs Garðars-
sonar einkenndist af umhyggju
fyrir samfélaginu í Ólafsfirði, um-
hyggju fyrir vinum sínum og síð-
ast en ekki síst fyrir fjölskyldu
sinni. Guðmundur var skátafor-
ingi, hann var knattspyrnumað-
ur, hann var skíðamaður. Í fót-
boltanum var hann fyrirliði, hann
var sá fljótasti að hlaupa, sá harð-
asti í skallaeinvígjum, kletturinn
í vörninni. Hann hampaði titlum
sem hann verðskuldaði því að
baki árangri var ástundun og ein-
beiting. Í vinnu var hann alltaf
kappsfullur og allt gekk út á það
að toppa fyrri afköst, bæta að-
stöðu, búa í haginn og hagræða.
Fjölskyldur okkar systkin-
anna, Halldóru, Guðmundar,
Ólafar og Hannesar, hafa átt því
láni að fagna að eiga samleið í líf-
inu. Mamma hvarf frá okkur að-
eins 56 ára gömul og skarðið sem
hún skildi eftir var stórt. Án efa
hefur það þjappað okkur saman
og óteljandi eru þær ánægju-
stundir sem við höfum átt með
pabba, Helgu Torfa, Halldóri
frænda, mökum okkar, börnum,
tengdabörnum og barnabörnum.
Leikgleði er grunntónninn en
aldrei er keppnisskapið langt
undan. Guðmundur, þessi mikli
íþróttamaður, var alltaf klár í
slaginn þrátt fyrir að hafa farið í
mjaðmarliðaskipti og fundið fyrir
hverju skrefi.
Hann var okkur öllum, ekki
síst krökkunum, mikil fyrirmynd.
Drengilegur í keppni en gaf þó
ekkert eftir gæti vel átt við hann
sem íþróttamann og þannig var
hann í sínu lífi, sækinn og þraut-
seigur. Guðmundur bjó á brekk-
unni í Ólafsfirði og hann var van-
ur brekkum úr skíðagöngunni,
hann var því vanur að sigra
brekkurnar, eiginlegar og óeigin-
legar.
Gummi bróðir, ég sakna þín og
í kistuna þína færðu frá mér í
veganesti skátaband til tákns um
að þú hélst skátaheitið óbrigðug-
lega og til tákns um bræðraband
okkar sem aldrei brestur.
Skáti, vertu viðbúinn … ljós-
inu.
Þinn litli bróðir,
Hannes Garðarsson.
Elsku Guðmundur bróðir
minn er dáinn. Mér finnst eins og
það vanti part af mér, eins og það
vanti eitt púsl. Allar samveru-
stundirnar með fjölskyldum okk-
ar og vinum verða að dýrmætum
myndum í huga okkar sem sitjum
eftir. Við eigum svo sannarlega
margar góðar samverustundir að
baki og við systkinin ásamt mök-
um erum svo óendanlega þakklát
fyrir að hafa verið búin að fara
allar fjórar afmælisferðirnar
okkar og þær minningar eiga eft-
ir að ylja okkur um ókomin ár.
Börnin okkar hafa fengið það í
veganesti frá okkur að það sé
fjölskyldan og samveran sem
skiptir mestu máli og við getum
verið þakklát fyrir það að þau
standa þétt saman á þessum erf-
iða tíma og munu passa hvert upp
á annað í framtíðinni.
Guðmundur bróðir vissi aldrei
hvort hann vildi verða bóndi eða
sjómaður en að lokum fann hann
leið til að gera hvort tveggja.
Þessi síðustu ár sín er óhætt að
segja að hann hafi tekið á fullum
hraða og uppfyllt flesta sína
drauma. Sem einn af upphafs-
mönnum að þeirri „hobbýbænda-
menningu“ sem þrífst nú svo vel í
firðinum okkar blómstraði hann
og var hvergi hamingjusamari en
í fjárhúsunum. Þura hans tók
fullan þátt í þessum búrekstri
ásamt börnum, tengdabörnum og
barnabörnum þeirra og má segja
að þetta hafi verið þeim sannkall-
að fjölskylduhobbý og gert þau
nánari og samheldnari á allan
hátt. Hann var einn af máttar-
stólpum samfélagsins bara með
því að vera hann sjálfur, einlæg-
ur, hjálpsamur, áhugasamur,
framtakssamur, skipulagður og
svona gæti ég lengi talið.
Það var erfið kveðjustund sem
við áttum systkinin þegar við
Barði fluttum frá Ólafsfirði fyrir
rúmlega þremur árum enda búin
að búa hlið við hlið í um tuttugu
ár og mikill samgangur á milli
okkar og barnanna okkar. Við
Þura mágkona mín erum góðar
vinkonur og saman höfum við
brallað og gert marga skemmti-
lega hluti ýmist fjögur eða í
stærri hópum.
Elsku Guðmundur bróðir, líf
þitt var eins og stórt púsluspil.
Þú hafðir svo mikinn áhuga á líf-
inu og fólkinu í kringum þig og
tókst þátt í flestu því sem þig
langaði til og óhætt að segja að
þú hafir alla tíð reynt að lifa lífinu
til fulls. Þegar við sátum og
spjölluðum um lífið og tilveruna
þá fannst þér þú aldrei vera að
gera nóg. Þig langaði til að eyða
meiri tíma með öllu fólkinu þínu
og vinum og gera meira af hinu
og þessu. En þú varst svo sann-
arlega að gera það og voru fáir
sem sýndu fólki og málefnum
eins mikinn áhuga og þú. Þess
vegna eiga svo margir um sárt að
binda í dag, bæði börn og full-
orðnir. Það er margs að minnast
og margt að þakka fyrir og minn-
ingu þinni verður svo sannarlega
haldið á lofti. Ég mun passa upp á
Þuru þína eins og ég get og ég er
búin að lofa henni að fara með
henni í mörg moll í framtíðinni en
þér fannst það nú samt alltaf svo-
lítið hættuleg blanda, ég og Þura
saman í stóru molli.
Elsku Þura og fjölskylda,
haldið áfram að vera þessi sterka
og duglega fjölskylda sem þið er-
uð búin að sýna að þið eruð, hald-
ið utan um hvert annað og njótið
lífsins því það veit ég að bróðir
minn vill að þið gerið.
Ólöf systir.
Það má segja að íbúar þessa
litla bæjar okkar séu harmi
slegnir þegar við, á morgun,
kveðjum í hinsta sinn öðlinginn
Guðmund Ólaf Garðarsson. Það
er óhætt að segja að hans sé sárt
saknað af öllum íbúum þessa litla
samfélags. Guðmundur, eða
Gummi minn eins og hún Gunna
mín kallaði hann alltaf, var ekki
nema 18 ára þegar hann kom
fyrst og spurði eftir henni Þuru
minni sem var þá nýorðin 15 ára.
Er óhætt að segja að okkur hjón-
um hafi ekki verið alveg rótt en
vissum samt að þar var grandvar
og prúður piltur á ferð og má
segja að þar hafi hafist margra
ára vinátta okkar Gumma enda
áttum við eftir að starfa saman í
mörg ár til sjós þar sem hann var
frábær starfskraftur, bæði sem
háseti, stýrimaður og skipstjóri.
Gummi var hvers manns hug-
ljúfi og mátti ekkert aumt sjá,
hann var alltaf tilbúinn að hjálpa
og leysa úr vanda annarra ef
hann mögulega gat. Við sem
þekktum Gumma vitum að hann
var mikill keppnismaður enda
frábær íþróttamaður og marg-
faldur Íslandsmeistari bæði í
göngu og norrænni tvíkeppni á
sínum yngri árum. Einnig var
hann mikilvægur hlekkur í meist-
araflokki Leifturs. Og þó að hann
væri fastur fyrir og gæfi ekkert
eftir í hita leiksins var hann virt-
ur af öllum, bæði mótherjum og
liðsmönnum, enda valinn besti
maður liðsins og einnig prúðasti
maður deildarinnar. Það er svo
ótalmargt sem mig langar til að
minnast á en á svo erfitt með að
sætta mig við að þurfa að vera í
þessum sporum. Þetta er eitt-
hvað svo fráleitt og átti aldrei að
gerast.
En það veit víst enginn hvað
næsti dagur ber í skauti sér og
því fór sem fór. Samt get ég ekki
sleppt því að minnast á utan-
landsferðirnar okkar og allar
ferðirnar með skipshöfninni,
bæði til Reykjavíkur í leikhús og
til Portúgals og Grikklands þar
sem þú lést þig hafa það að koma
með á hækjum og kvartaðir aldr-
ei. Og ekki má gleyma ferðinni
sem við Gunna mín fórum með
ykkur í Ásbyrgi og sprakk fjór-
um sinnum á hjá mér á heimleið-
inni og þú varst á stanslausum
ferðum til Húsavíkur með dekk í
viðgerð. Guðmundur og Þura mín
eiga þrjú yndisleg börn sem eru
öll farin úr foreldrahúsum og bú-
in að stofna sín heimili og hafa
gefið þeim fjögur barnabörn.
Guðmundur tók sér margt fyrir
hendur, hann var skipstjóralærð-
ur og stundaði þá vinnu og var í
útgerð með föður sínum, mágum
og systkinum. Eftir að hann kom
í land stofnaði hann, ásamt fleir-
um, fiskverkunarfyrirtæki og má
segja að það hafi verið á góðri
leið. Einnig tók hann að sér for-
mennsku Sjómannafélags Ólafs-
fjarðar. Gummi minn hafði mjög
gaman af fjárbúskap og var bú-
inn að vera í forsvari fyrir hópi
manna sem kölluðu sig hobbý-
bændur og áttu þau Þura mín þar
10 ær og var mikil tilhlökkun eft-
ir vorinu og litlu lömbunum.
Fljótt skipast veður í lofti og
núna í augnablikinu daprast mér
sýn og veruleikinn svo kaldur og
miskunnarlaus blasir við mér.
Elsku hjartans Þura mín, megi
allar góðar vættir og allt það
góða sem alla tíð hefur verið svo
sterkur þáttur í fari þínu hjálpa
þér að halda utan um hópinn
þinn. Við móðir þín verðum ekki
langt undan elsku Þura mín.
Kveðja, pabbi,
Sigmundur Agnarsson.
Vegna fráfalls jafnaldra míns,
vinar og svila, Guðmundar Ólafs
Garðarssonar, langar mig að
minnast hans í fáeinum orðum.
Best væri að lýsa honum sem
duglegum, vandvirkum, traust-
um og heiðarlegum manni sem
vildi öllum vel.
Leiðir okkar lágu saman í
barnaskóla, skipstjóra- og bónda-
synirnir urðu fljótt góðir vinir.
Báðir voru í íþróttum og fórum
við oft eftir skóla heim til Gumma
þar sem hann mallaði sér hinn
einstaka kakódrykk sem hvergi
var til nema á heimili hans á
Brekkugötunni og síðan á Hlíð-
arveginum þar sem þau Þura
byggðu sér síðan glæsilegt heim-
ili. Gummi poppaði popp með sér-
stakri aðferð og sagði ekkert
poppkorn jafnast á við það sem
hann poppaði. Gummi var einn
fjölhæfasti íþróttamaður sem
komið hefur fram á sjónarsviðið í
Ólafsfirði fyrr og síðar, mikill
keppnismaður og agaður.
Við Gummi vorum mikið sam-
an á unglingsárunum og unnum
oft á sömu stöðum og vorum til
sjós saman, hann þó mun lengur,
enda menntaður skipstjóri og var
í útgerð ásamt systkinum sínum.
Við giftumst systrum inn í stóra
og samheldna fjölskyldu þannig
að samgangur okkar hefur lifað
alla tíð.
Við hófum búskap um svipað
leyti og eignuðumst okkar fyrstu
börn á sama árinu. Við ræddum
stundum um það hvað okkur
hefði vegnað vel í lífinu þótt við
yrðum fyrir áföllum eins og aðrir
þegar nákomnir falla frá fyrir-
varalaust. Við ferðuðumst tals-
vert saman bæði áður og eftir að
við eignuðumst fjölskyldur. Við
sáum framtíðina fyrir okkur en
reynslan kennir að best er að
geyma ekki það sem hægt er að
gera strax.
Síðustu árin var Gummi með
kindur og var fyrsti formaður fé-
lags hobbýbænda í Ólafsfirði.
Hann hafði mjög gaman af bú-
skapnum og naut þess að vera
innan um kindurnar og þann sér-
staka félagsskap sem myndast
hefur í kringum búskapinn.
Gummi virtist alltaf hafa tíma
til að gera alla hluti og var í fé-
lagsstarfi í ýmsum félögum allt til
síðasta dags. Hann átti orðið
stóra fjölskyldu með Þuru sinni,
þrjú börn og fjögur barnabörn,
sem hann eyddi með öllum þeim
tíma sem hann hafði.
Þegar líkaminn er notaður
mikið eins og var í tilfelli Gumma
þá þarfnast hann viðgerða af og
til. Hann hafði átt við að stríða
slit í mjöðmum og áður farið í að-
gerð vegna þess. Nú skyldi reyna
til þrautar að fá nýjan lið og eiga
góð ár til gangsins framundan.
Allt leit vel út og Gummi taldi sig
vera á heimleið þegar máttar-
völdin gripu inn í og ógæfan
dundi yfir fyrirvaralaust og hann
lést á Landspítalanum í Reykja-
vík 12. mars sl. Missirinn er mik-
ill enda átti hann eftir að gera
mikið þegar hann kæmi heim í
faðm fjölskyldunnar. Máltækið
segir að tíminn lækni öll sár. Það
er þó afstætt og sum sár eru lengi
að gróa. Þeir sem þekktu Gumma
geta þó glaðst yfir þeim tíma sem
þeir áttu með honum og þeim
ógleymanlegu stundum sem oft
voru í návist hans. Ég veit að fjöl-
skylda Gumma, konan hans hún
Þura, Garðar, Gunna Beta og
Halldór Ingvar, barnabörnin og
samrýndar fjölskyldur sem
standa að þeim í báðar ættir
munu varðveita minningu hans
um ókomin ár. Við hjónin vottum
þeim öllum okkar dýpstu samúð á
erfiðum tímum.
Jón Árni og Margrét,
Brekkulandi.
Hörpu þinnar ljúfa lag
lengi finn í muna.
Því ég minnist þín í dag,
þökk fyrir kynninguna.
(ÁK)
Fréttir af andláti frænda, góðs
vinar og vinnufélaga, Guðmundar
Ólafs Garðarssonar, kom sem
reiðarslag miðvikudaginn 12.
mars sl. Fyrirvaralaust var góður
drengur tekinn og fluttur á nýjan
stað. Gummi, eins og hann var af
flestum kallaður, var traustur,
hjartahlýr, sanngjarn og góður
maður. Allir sem kynntust hon-
um fundu hlýju hans og einlægan
áhuga á lífinu og tilverunni. Hann
vildi öllum allt það besta og aldrei
heyrði ég hann hallmæla nokkr-
um manni. Framkoma hans var
hógvær, glettin og ávallt var stutt
í brosið.
Það er ekki á neinn hallað þeg-
ar ég segi að hann hafi verið mín
helsta fyrirmynd en ég var aðeins
19 ára gamall þegar við urðum
skipsfélagar á Guðmundi Ólafi
ÓF 91.
Það var auðvelt að líta upp til
hans og eiginlega óhjákvæmilegt.
Mannkostir hans voru slíkir. Iðu-
lega hugsar maður á erfiðum
stundum eða í erfiðum aðstæð-
um: „Hvernig mundi Gummi
gera þetta eða hvernig mundi
Gummi bregðast við, hvernig
mundi hann leysa þetta?“ Þannig
hafði hann áhrif á það hvernig
manneskja maður vildi reyna að
verða og ekki veit ég um nokkurn
mann sem þessi vísa úr Hávamál-
um á betur við:
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama.
En orðstír
deyr aldregi
hveim er sér góðan getur.
Það eru forréttindi og heiður
að fá að njóta samvista við slíkan
mannkostamann og fá að njóta
þekkingar hans og reynslu, fyrir
það vil ég af alhug þakka.
Nú mega orð síns lítils en hug-
ur minn og fjölskyldunnar er hjá
fjölskyldu hans og við sendum
þeim hlýjar hugsanir og okkar
dýpstu samúð, megi þau öll finna
styrk.
Minningin um einstakan mann
lifir í hjörtum okkar.
Arnar Guðmundsson
og fjölskylda.
Það var mér og öllu skyldfólki
hans og venslafólki mikið áfall
þegar við fréttum af andláti bróð-
ursonar míns, Guðmundar Garð-
arssonar, eftir að hann fór í tvær
aðgerðir á Landspítalanum í
Reykjavík þar sem hann veiktist
snögglega og lést í kjölfarið. Ég
mun sakna hans mikið þar sem
hann var búinn að hjálpa mér svo
óendanlega mikið við ýmislegt og
fara margan bíltúrinn með mig.
Alltaf var hann boðinn og búinn
að sinna öllu því sem ég bað hann
að gera.
Hann átti sannarlega eftir að
sinna ótal málum sem hann var
Guðmundur Ólafur
Garðarsson
ÚTFARARÞJÓNUSTA
Vönduð og persónuleg
þjónusta
Sími: 551 7080 & 691 0919
ATHÖFNÚTFARAÞJÓNUSTA - athofn@athofn.is - www.athofn.is
Inger Steinsson
IngerRósÓlafsdóttir
✝
Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts okkar elskulega
SIGFÚSAR GUÐMUNDSSONAR,
Víkurbraut 11,
Vík í Mýrdal.
Ester Guðlaugsdóttir,
Guðlaugur Guðmundsson og fjölskylda,
Guðbjörg Guðmundsdóttir og fjölskylda,
Bárður Guðmundsson.