Morgunblaðið - 22.03.2014, Síða 36
36 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MARS 2014
✝ RagnheiðurGuðmunds-
dóttir, Heiða, fædd-
ist í Innri-
Hjarðardal í Ön-
undarfirði hinn 8.
desember 1925.
Hún lést 28. febr-
úar 2014.
Hún var dóttir
hjónanna Sigríðar
Hagalínsdóttur og
Guðmundar Gils-
sonar og var áttunda í röð tíu
barna þeirra. Systkinin frá
Innri-Hjarðardal eru Gils, f.
1914, Ingibjörg, f. 1916, Helga
Guðrún, f. 1918, Þórunn, f. 1920,
Hagalín, f. 1921, Kristján, f.
1923, Magnús, f. 1924, Ragn-
heiður, f.1925, Páll, f. 1927, og
Bjarni Oddur, f. 1930.
Ragnheiður ólst upp í for-
eldrahúsum í Hjarðardal ásamt
starfa í sveitinni bæði úti og inni.
Um áratuga skeið tóku Heiða og
Einar börn í sumardvöl og skipt-
ir fjöldi þeirra tugum. Heiða og
Einar eignuðust fimm börn en
misstu einn son á öðru ári. Börn
þeirra eru: 1) Sigríður Ása, f.
1951, sambýlismaður Gunnar
Gunnarsson. Börn hennar eru:
a) Einar Jón Kjartansson, maki
Valdileia Martins de Oliveira,
hans börn eru Atli Jakob og
Anna Luiza, b) Soffía Guðrún
Kjartansdóttir, maki Sigurgeir
Guðmundsson, börn þeirra eru
Konráð Elí, Marteinn Hugi og
Ástríður Erna, c) Davíð Ernir
Harðarson, d) Snorri Harðarson.
2) Guðmundur Gils, f. 1954, maki
Jarþrúður Jónsdóttir. Börn
þeirra eru: a) Guðrún Ragnheið-
ur, maki Víglundur Sverrisson,
börn: Jana Eir, Emil Tumi og
Fura Lív, b) Guðni Reynir, c)
Auður Ösp. 3) Unnsteinn, f.
1958, hans dóttir er Kristín.
Útför Ragnheiðar fer fram
frá Skálholtskirkju í dag, 22.
mars 2014, og hefst athöfnin kl.
14.
Meira: mbl.is/minningar
systkinum sínum og
tók þátt í þeim
störfum sem þar
voru unnin sín
bernsku- og æsku-
ár. Veturinn 1944-
1945 stundaði hún
nám í Héraðsskól-
anum á Laugar-
vatni og á Hús-
mæðraskólanum á
Laugalandi í Eyja-
firði veturinn 1947-
1948. Ragnheiður giftist Einari
Guðna Tómassyni frá Auðsholti,
þá í Biskupstungum, hinn 8. des-
ember 1950. Þau byggðu sér hús
í Auðsholti og bjuggu þar fyrst
félagsbúi með Tómasi bróður
Einars og konu hans Helgu
Þórðardóttur og síðan með syni
sínum og tengdadóttur, Guð-
mundi Gils og Jarþrúði Jóns-
dóttur. Heiða gekk til allra
Þegar nú kær frænka okkar
hefur kvatt þessa jarðvist leitar
hugurinn til æskuáranna, hvern-
ig við munum Heiðu fyrst, þessa
konu sem stóð okkur svo nærri og
var órjúfanlegur þáttur í upp-
vexti okkar systkina.
Móðir okkar var næstelst í
systkinahópnum í Hjarðardal og
flutti fyrst að heiman, alla leið á
Suðurlandið. Heiða sagði að hún
hefði vorkennt systur sinni að
fara svona langt í burtu frá sínu
fólki og hét henni því í brúð-
kaupsferð þeirra pabba vestur
1939 að hún skyldi koma henni til
aðstoðar þegar hún þyrfti með.
Haustið 1941 kom svo kallið,
Heiða sem þá var á 16. ári hafði
lengi kviðið þessu ferðalagi en
loforðið varð hún að efna. Ferðin
suður var löng og ströng, fyrst
tveggja sólahringa sjóferð með
Súðinni sem sleikti allar hafnir í
vondu veðri. Eftir nokkurra daga
dvöl í Reykjavík fór hún með
áætlunarbíl (hálfkassabíl) austur
í Tungur, var það sex tíma ferð
með viðkomu hjá KÁ á Selfossi. Í
ferðinni varð hún ekkert vör við
hina illræmdu Kamba enda vön
Skógarbrekkunum fyrir vestan
þar sem bílarnir þurftu að bakka
til að ná beygjunum. Þennan vet-
ur var hún á Spóastöðum og oft
eftir það um lengri eða skemmri
tíma eins og mörg móðursystkini
okkar. Aufúsugestir voru þau
Heiða, Gróa og Maggi um jól og
páska þegar þau voru á Héraðs-
skólanum á Laugarvatni, þeim
fylgdi alltaf líf og fjör, ógleyman-
legt okkur, litlu frændsystkinum
þeirra.
Nokkrum árum seinna kom
hún að sýna okkur kærastan sinn,
hann Einar í Auðsholti, mann
sem við höfðum alltaf þekkt, bæði
sem góðan nágranna og frænda,
við sættum okkur vel við það,
ekki síst þegar í ljós kom að þau
ætluðu að setjast að í Auðsholti.
Var ætíð mikill samgangur milli
heimilanna þó að óbrúað stórfljót
skildi bæina að, í þá daga til-
heyrðu enn Auðsholtsbæirnir
sveitinni okkar Biskupstungum.
Heiða og Einar byrjuðu sinn
búskap í gamla bænum í Auðs-
holti, í minningunni var það mikið
völundarhús, margra hæða með
allskonar skúmaskotum og brött-
um þröngum stigum. Þau gengu
inn í heimili Vilborgar og Tóm-
asar foreldra Einars, sem þar
bjuggu ásamt sonum sínum
Gumma og Tomma. Í eigið hús
voru þau flutt rétt fyrir jólin 1951
með frumburðinn sinn hana
Siggu Ásu.
Í Auðsholti var alltaf margt um
manninn, þangað var gaman að
koma, húsmóðirin hress og kát,
sagði okkur skemmtilegar sögur
að vestan og var ekki lengi að
snara fram góðgjörðum. Þau
voru ófá börnin og ungmennin
sem dvöldu í Auðsholti hjá Heiðu
og Einari um mislangt skeið, og
áttu hjá þeim athvarf og skjól
alltaf upp frá því.
Margir áttu trúnað Heiðu, hún
var góður og skilningsríkur hlust-
andi, gerði ekki lítið úr vanda-
málum viðmælenda sinna og oft
leystust málin með hennar hjálp.
Heiða var mikil handverks-
kona, enda æskuheimili hennar
þekkt fyrir falleg og góð vinnu-
brögð, hún hefði passað vel inn í
sprotafyrirtækin í dag, með
kremgerð og allskonar ullar-
vinnslu m.a.af eigin kanínum.
Kynslóðir koma og kynslóðir
fara, með Heiðu hefur enn eitt
Hjarðardalssystkinið kvatt.
Með virðingu og þökk kveðjum
við systkinin móðursystur okkar
og biðjum Guð að blessa minn-
ingu hennar og halda verndar-
hendi yfir börnum hennar og fjöl-
skyldum.
Sigríður og Steinunn
(Sigga og Stenna).
Nú hefur hún móðursystir
mín, hún Heiða í Auðsholti, kvatt
okkur.
Heiða hefur verið hluti af lífi
mínu alla tíð, enda systir hennar
mömmu minnar heitinnar.
Fyrstu árin í búskapartíð þeirra
systra í Biskupstungunum var
mjólkin ferjuð yfir ána, fékk ég
þá stundum að heimsækja
frænku og dvelja hjá henni í
nokkra daga. Var hún stundum
að prjóna á mig allavega fínerí,
dekraði við mig í mat og fékk ég
að ráða hvað hún bakaði, snúðar,
kleinur, brauð, lagkökur, flatkök-
ur, pönnukökur, allt var best í
heimi hjá Heiðu. Hjá frænku
voru allir jafnir, stórir sem smáir,
hvort sem þeir voru úr sveit eða
fínar frúr úr Reykjavík, allir
þurftu að vaska upp. Mikið var
gaman að vinna fyrir Heiðu, hún
hafði lag á að hrósa manni og
hvetja svo verkin urðu auðunnin
og skemmtileg. Væri betra ef
aðrir tækju hana sér til fyrir-
myndar við óharðnaða unglinga,
hún var alltaf með í verkunum og
sagði til á svo ljúfan hátt og sagði
svo sögur til að stytta stundirnar.
Stundum var erfitt að sofna, kall-
aði Heiða þá í mig og kenndi gólf-
kulda um, svo ég fékk að kúra á
milli Einars og Heiðu, oft voru
nokkur kríli í viðbót en það skipti
ekki máli, því þótt rúmið væri lítið
var alltaf nóg pláss, sannaðist það
sem sagt er að þar sem er hjarta-
rúm er alltaf nóg húsrúm. Stund-
um fengum við að máta fötin
þeirra og skóna, drasla til, leika
leikrit, fara í feluleik og fela hlut,
en mest gaman þegar Einar var
með okkur, hann hjálpaði þeim
ungu að finna góða staði og segja
hvort við værum heit eða köld.
Einar var einstakur maður, barn-
góður, elskulegur vinur, traustur
og trúr. Það voru oft heitar um-
ræður við eldhúsborðið í Auðs-
holti og fengu allir sem vildu
leggja sitt til málanna, sem ekki
var vani með krakka þá, að taka
þátt í samræðum fullorðinna.
Eftir að Heiða varð ein í Auðs-
holti og ég farin að búa á Flúðum
voru ferðir tíðar til Heiðu,
mamma dvaldi hjá mér yfir vetr-
artímann og hittumst við reglu-
lega. Þær voru nánar systur og
miklar hannyrðakonur og töluðu
þessi ósköp um frændfólk okkar
sem ég hafði engan áhuga á þá, en
gaman væri að vita núna. Krakk-
arnir mínir fengu stundum að
fara til frænku, með Bjarna
skólabílstjóra, og njóta þess sem
Heiðu frænku var einni lagið og
að gefa kanínunum, hænunum,
hundum og kisum. Oftast komu
þau heim með vettlinga, sokka,
kleinur eða eitthvað annað sem
þau höfðu útbúið, alsæl með
veruna. Heiða var gjafmildasta
kona sem ég hef þekkt, ekkert
var of gott til að gefa það sem hún
prjónaði og spann úr fiðu af kan-
ínunum sem hún ræktaði. Útbjó
krem og olíur, ekki held ég að
tímakaup hennar hafi verið hátt,
en hamingjusöm var hún frænka
mín og oftast með fullt af fólki í
kringum sig, börnin sín og barna-
börn og einnig annarra börn og
marga vini og kunningja. Þannig
leið Heiðu minni best á kafi í
verkefnum og fólki. Mikið var
gaman að fylgjast með afkom-
endum hennar eftir að Heiða
flutti að Fossheimum á Selfossi,
hvað þau umvöfðu hana ást og
umhyggju, enda uppskar hún
eins og hún sáði. Þakka ég og fjöl-
skylda mín allar góðar stundir
með Heiðu.
Ragnhildur Þórarinsdóttir.
Það undrar oft er litið er til baka
þar er ei margt sem hugi okkar þjakar.
En allt það góða yljar huga manns
hvað væri þetta líf án kærleikans.
(HGE)
Hinn 28. febrúar sl. dó Heiða
frænka umvafin kærleik frá börn-
um sínum, því hún uppskar eins
og hún sáði. Heiða var meira en
frænka okkar systra, hún var
móðursystir hennar mömmu sem
annaðist hana frá fæðingu ásamt
langömmu okkar. Samband
þeirra var alla tíð náið og leit
mamma á sig sem eina af Hjarð-
ardalssystkinunum. Þurftum við
Ragnheiður
Guðmundsdóttir
Kæra amma
Soffía. Okkur finnst leiðinlegt að
hafa ekki getað kvatt þig per-
sónulega og munum alltaf sjá
Soffía Valgerður
Einarsdóttir
✝ Soffía Val-gerður Ein-
arsdóttir fæddist í
Reykjavík 13. apríl
1934. Hún lést á
Hjúkrunarheim-
ilinu Eir, Graf-
arvogi, 9. febrúar
2014. Útför Soffíu
fór fram 20. febr-
úar 2014.
eftir því, en við vilj-
um að þú vitir að
við elskuðum þig
heitt. Þú varst góð
kona og frábær
amma.
Við vonum að þú
munir hafa það frá-
bært. Þú verður
aldrei gleymd og
lifir áfram í hjört-
um okkar.
Takk fyrir allt og
hafðu það gott.
Fernanda, Suzanna
og Salomé.
ÞAR SEM FAGMENNSKAN
RÆÐUR
Blómaverkstæði Binna | Skólavörðustíg 12 | Sími: 5613030
✝
Okkar innilegustu þakkir færum við öllum
þeim sem á margvíslegan hátt heiðruðu
minningu og sýndu samúð og hlýhug við
andlát og útför ástkærrar móður, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
AÐALHEIÐAR GEIRSDÓTTUR,
Víkurbraut 28,
Höfn.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk hjúkrunarþjónustunnar Karitas og
líknardeildar Landspítala fyrir frábæra umönnun og hlýju.
Margrét Sigurðardóttir, Sigurjón Arason,
Anna Sigurðardóttir, Gunnar Þór Árnason,
Halldóra Sigríður Sigurðardóttir, Jóhannes Kristjánsson,
barnabörn og barnabarnabörn. ✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vinarhug vegna andláts og útfarar okkar
ástkæra
ÓSKARS LÁRUSAR TRAUSTASONAR,
Svöluási 20,
Hafnarfirði.
Guðrún Pálsdóttir,
Trausti Ó. Lárusson, Hanna Kjeld,
Auður Traustadóttir, Guðmundur Á. Tryggvason,
Anna Kristín Traustadóttir,
Sigrún Traustadóttir,
Þórunn Sigurðardóttir, Sigurður Knútsson,
Elín Ósk, Trausti, Svava Dís,
Bjarni, Páll Arnar og fjölskyldur.
✝
Þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð,
hlýhug og vináttu vegna andláts og útfarar
ástkærrar dóttur okkar, innilegrar systur,
mágkonu, barnabarns og frænku,
SIGURVEIGAR ÞÓRARINSDÓTTUR
læknis.
Þórarinn Baldursson, Birta Einarsdóttir,
María Loftsdóttir, Jón K. Valdimarsson,
Sigrún Þórarinsdóttir, Ingólfur Stefán Finnbogason,
Loftur Þórarinsson, Mayuko Ono Þórarinsson,
Davíð Leifsson, Lanny Leifsson,
Sigurveig Þórarinsdóttir
og frændsystkini hinnar látnu.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför elsku-
legrar móður minnar, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
ÁSLAUGAR MAGNÚSDÓTTUR,
dvalarheimilinu Grund,
áður Gnoðarvogi 32.
Guðrún R. Axelsdóttir, Einar Eiríksson,
Eiríkur Bergmann Einarsson, Aino Freyja Jarvela,
Áslaug Einarsdóttir
og barnabarnabörn.
✝
Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar yndislegs
eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa,
HAUKS S. TÓMASSONAR
jarðfræðings,
Furugerði 9,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjúkrunarheimilisins
Sóltúns fyrir góða umönnun og stuðning.
Karitas B. Jónsdóttir,
Sigrún Hauksdóttir, Loftur Atli Eiríksson,
Sigrún Jónasdóttir
og barnabörn.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför
GUÐRÚNAR ÞENGILSDÓTTUR,
Mýrarvegi 115,
Akureyri.
Ásgrímur Tryggvason,
Tryggvi Ásgrímsson, Guðrún Agnes Sigurðardóttir,
Arnheiður Ásgrímsdóttir, Hafberg Svansson,
Ásrún Ásgrímsdóttir, Baldvin Stefánsson,
Þengill Ásgrímsson, Selma Hauksdóttir,
Hákon Ásgrímsson, Anna Elín Jóhannsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Þökkum auðsýnda samúð, vináttu og hlýhug
við andlát og útför ástkærrar eiginkonu
minnar, móður, tengdamóður og ömmu,
MARGRÉTAR ÖLDU ÚLFARSDÓTTUR,
Suðurtúni 13,
Álftanesi,
sem lést á krabbameinsdeild LSH 15. febrúar.
Guðbjartur I. Gunnarsson,
Inga Steinþóra Guðbjartsdóttir, Sigurður Jónsson,
Emelía Dóra Guðbjartsdóttir, Birgir Viðarsson,
Úlfhildur Helga Guðbjartsdóttir,
Hrönn Guðbjartsdóttir
og barnabörn.