Morgunblaðið - 22.03.2014, Side 37
alltaf að hugsa okkur um hvort
Heiða væri móður- eða ömmu-
systir okkar en í raun skipti það
engu máli. Það áttu allir eitthvað í
henni Heiðu og breytti það engu
hvenær komið var að Auðsholti,
ávallt var tekið vel á móti okkur.
Áttu Heiða og Einar alltaf tíma
fyrir gesti, þó að mikið væri að
gera og margir væru á heimilinu.
Það voru ekki bara börn þeirra
því iðulega var fullt af börnum í
sveit hjá þeim, bæði sumar og
vetur, Maja var svo heppin að
vera eitt af þeim.
Margar minningar koma í hug
okkar systra en sterkust er samt
sú minning þegar Didda, Halla og
Óskar Ingvi fóru með Heiðu,
mömmu og Siggu ömmu í ferðlag
vestur. Við systur ólumst upp í
því að allt er best fyrir vestan og
höfum aldrei efast, enda hefðum
við ekki komist upp með það.
Þessi ferð gaf okkur öllum mikið
og var gaman að upplifa minning-
arnar sem þær frænkur áttu sam-
an um dagana í Hjarðardal forð-
um. Þær héldu áfram að bralla
margt saman, deildu meðal ann-
ars áhuga á kanínurækt og
smyrslagerð úr íslenskum jurt-
um. Það liðu ekki margir dagar á
milli símtala og vitum við að það
var Heiðu mikil sorg þegar
mamma dó skyndilega fyrir tæp-
um 16 árum. Heiða kvaddi hana
með sömu blómum og hún tíndi
fyrir Helgu Guðrúnu systur sína
þegar hún dó og skildi eftir sig
ljósið í sorginni eins og hún orðaði
það sjálf í minningargrein um
mömmu. Í huga okkar kveðjum
við með sömu blómum og erindi
úr ljóði um þær frænkur.
Þú manst er kvöld var komið
og kominn háttatími
þú leiddir ljósa telpu
og lagðir hana á beð.
Þar gekkstu sjálf til sængur,
en svefninn færðist undan.
Þið áttuð aðrar dýrðir
að una og hvíla með.
(Guðmundur Ingi Kristjánsson.)
Ólavía (Didda), María, Halla,
Óskar Ingvi og Eiríkur Elis.
Tuttugu ár eru liðin frá því ég
bjó í Auðsholti í Biskupstungum
og var samtíða Ragnheiði Guð-
mundsdóttur, en samveran með
henni er mér ógleymanleg. Við
vorum svilkonur og góðar vinkon-
ur. Við áttum margar góðar sam-
verustundir eftir að ég giftist
Tómasi Tómassyni, sem bjó þá
félagsbúi með bróður sínum Ein-
ari og Heiðu konu hans, sem nú
er kvödd. Ég minnist þess að
Heiða gaf mér góðar ráðlegging-
ar þegar ég kom í Auðsholt fyrst,
fákunnandi borgarkona sem vissi
fátt um sveitabúskap. Félagsbú
okkar fjögurra stóð í tvo áratugi
og allan þann tíma áttum við góð-
an vinskap, ég og Heiða. Hún var
mikil húsmóðir, hvort sem var í
matseld eða hannyrðum og heima
hjá henni var alltaf margt um
manninn. Sérstaklega á sumrin,
þar sem hún tók að sér börn, sem
sum áttu í erfiðleikum heima fyr-
ir. Hún reyndist þessum fóstur-
börnum sínum fjarska vel. Hjónin
Heiða og Einar áttu sjálf mynd-
arlegan barnahóp. En það hvíldi
mikil sorg yfir heimilinu þegar
yngsta barnið, Vilhjálmur á
fyrsta ári, dó eftir stutta legu.
Heiða reyndist mínum börnum
afar vel og ég þakka það og allt
það góða sem við áttum saman
svilkonurnar. Ég sendi börnum
Heiðu og Einars innilegar sam-
úðarkveðjur, svo og öðrum í fjöl-
skyldu hennar.
Helga Þórðardóttir.
Og enn fækkar í hópnum okkar
kvennaskólameyja frá Hús-
mæðraskólanum á Laugalandi
árin 1947-’48, og þykir engum
mikið, allar á níræðisaldri.
Heiða var önnur herbergis-
systir mín en við vorum tvær vin-
konur búnar að biðja um að fá að
vera saman í herbergi, sem var
aðeins tveggja manna. Skólinn
var að byrja, þá hringir stúlka úr
Önundarfirði og kemst ekki fyrr
en eftir viku, enga skipsferð að fá,
sem þá var eina leiðin.
Skólastýran áleit þessa stúlku
hafa sagt plássinu lausu þennan
vetur, en það var þó önnur úr Ön-
undarfirði einnig Guðmundsdótt-
ir, svo nú voru góð ráð dýr. Skóla-
stýran kom til okkar í tveggja
manna herberginu og spurði, er
nokkur leið að hún geti verið í
herbergi með ykkur. Við urðum
auðvitað glaðar að fá herbergis-
félaga, þótt plásslítið væri, í her-
berginu var lokrekkja og beddi,
svo var fengin dýna og á daginn
fékk hún hvílu á beddanum, en á
gólfinu á nóttunni. Svo skiptumst
við á hálfsmánaðarlega þegar
skipt var á rúmum. Fyrst sofið á
beddanum, næst á gólfinu á dýn-
unni og síðan í lokrekkjunni og
allar ánægðar, en þá var gólf-
plássið líka búið og þurfti að stíga
á dýnuna ef farið var út úr lok-
rekkjunni eða af beddanum. Og
aldrei man ég eftir því að okkur
þætti þröngt. Fataskápurinn var
í stíl við annað, kannski 50 cm
breiður og meira en nógu stór,
því fataeign var ekki mikil, rétt til
skiptanna.
Oft höfum við skólasystur rifj-
að upp eitt og annað frá þessum
vetri en ein man þetta og önnur
hitt og alltaf er eins og við höfum
bara skilið í gær. Ég var svo
heppin að koma til Heiðu minnar í
október í haust. Alltaf er sama
hlýjan og þakklætið henni efst í
huga og að gefa og gleðja aðra.
Ég á margt fallegt eftir Heiðu
sem hún hefur unnið, bæði vélpr-
jónað og handprjónað og gefið
mér. Hún var einstök hannyrða-
kona. Mínar innilegustu samúð-
arkveðjur til barnanna hennar
allra, tengdabarna, afkomenda
og bræðra.
Rósa Árnadóttir.
Nú sé ég og faðma þig, syngjandi vor
með sólina og blæinn. –
Mér klappaði golan, þó gatan sé þröng
og gott var í morgun að heyra
þinn söng;
nú kem ég sem fljúgandi
langt út í ljósið og daginn.
(Þorsteinn Erlingsson)
Í dag kveðjum við hana Heiðu
eins og hún var kölluð, Ragnheiði
Guðmundsdóttur frá Auðsholti.
Einhverja þá yndislegustu konu
sem við höfum kynnst. Það ljóm-
aði af henni góðmennskan og
hlýjan. Hún átti bágt með að tjá
sig eins og minn maður, vegna
heilablóðfalls. En það skipti engu
máli. Að koma til hennar og sitja
hjá henni gaf svo mikið. Ég hefði
gjarnan viljað kynnast henni þeg-
ar hún gat tjáð sig betur. Ég hygg
að hún hafi búið yfir vitneskju um
jurtir til heilsubótar og einhverju
miklu meiru.
Hún var sívinnandi; að búa til
jólakort eða prjóna eitthvað hlýtt
og gott á ættingja og vini. Vett-
linga gaf hún mér sem mér þótti
vænt um.
Við sátum oft saman þrjú og ég
las eða við rauluðum saman lag-
stúf.
Börnin hennar Heiðu bera
mömmu sinni fagurt vitni. Ynd-
isleg og gefandi eins og móðir
þeirra. Sonur hennar, hann Gils,
gaf mikið af sér; kom í hverri
viku, í sínum matartíma, og las
fyrir alla sem gátu komist úr
rúmi. Þetta gera ekki margir. Svo
segja má að eplið falli ekki langt
frá eikinni.
Heiða og minn maður tengdust
miklum vináttuböndum. Þau
skildu vel hvort annað án orða.
Steingrímur getur ekki, vegna
aðstæðna, fylgt henni til grafar
eins og hann gjarnan vildi. En
börnin hennar voru svo elskuleg
að leyfa okkur að kveðja hana í
hinsta sinn á Fossheimum. Fyrir
það og allt annað viljum við
þakka. En nú er hún Guði falin og
laus við þrautir.
Börnum hennar elskulegum og
öllum ættingjum biðjum við
blessunar Guðs á kveðjustund.
Steingrímur Ingvarsson
og Jóhanna María.
MESSUR 37á morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MARS 2014
ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
11. Sr. Kristín Pálsdóttir prédikar og
þjónar fyrir altari. Messuþjónar sjá um
ritningarlestur. Organisti Kristina K.
Szklenár ásamt kirkjukór Árbæj-
arkirkju. Sunnudagaskólinn á sama
tíma í safnaðarheimili kirkjunnar í um-
sjón Fritz, Díönu og Valbjörns. Brúðu-
leikhús, biblíusögur, söngur og fræð-
andi barnaefni. Að lokinni
guðsþjónustu og sunnudagaskóla er
boðið upp á hressingu.
ÁSKIRKJA | Messa og barnastarf kl.
11. Kristný Rós Gústafsdóttir djákni
annast samverustund sunnudagaskól-
ans. Félagar úr Lionsklúbbnum Tý taka
þátt í messunni og sjá um kirkjukaffið á
eftir, þar sem frjáls framlög til líknar- og
mannúðarstarfs klúbbsins eru vel þeg-
in. Séra Hannes Björnsson prédikar og
þjónar fyrir altari ásamt séra Sigurði
Jónssyni sóknarpresti. Kór Áskirkju
syngur, organisti Magnús Ragnarsson.
ÁSTJARNARKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 11. Hljómsveitin Gigg kemur í heim-
sókn og leikur af nýrri plötu sinni. Fé-
lagar úr kór Ástjarnarkirkju leiðir sálma-
söng undir stjórn Matthíasar V.
Baldurssonar tónlistarstjóra. Meðhjálp-
ari er Sigurður Þórisson og prestur sr.
Kjartan Jónsson. Sunnudagaskóli á
sama tíma þar sem litadýrðin ræður
ríkjum. Allir komi með eitthvað litríkt
eða í litríkum fötum. Hólmfríður S.
Jónsdóttir og Bryndís Svavarsdóttir
annast dagskrána. Heitt á könnunni og
samfélag á eftir messu.
BESSASTAÐASÓKN | Sunnudaga-
skóli kl. 11 í Brekkuskógum 1. Umsjón
með stundinni hafa Fjóla og Finnur.
BRAUTARHOLTSKIRKJA Kjal-
arnesi | Guðsþjónusta kl. 11 f.h. Sr.
Gunnar Kristjánsson prédikar og þjónar
fyrir altari, organisti er Páll Helgason,
félagar úr Karlakór Kjalnesinga leiða
söng.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Sunnudaga-
skóli kl. 11 í umsjá Steinunnar Leifs-
dóttur. Skaftfellingamessa kl. 14.
Prestar eru sr. Bryndís Malla Elídóttir,
sr. Haraldur M. Kristjánsson, sókn-
arprestur í Vík, og sr. Ingólfur Hartvigs-
son, sóknarprestur á Kirkjubæj-
arklaustri, sem prédikar. Organistar
eru Friðrik Vignir Stefánsson, Kári
Gestsson og Brian Haroldsson. Söng-
félag Skaftfellinga syngur ásamt Sam-
kór Mýrdælinga, Ásakórnum og Kirkju-
kór Prestbakkakirkju. Eftir messu
verður Skaftfellingafélagið með kaffi-
sölu í safnaðarheimili.
BÚSTAÐAKIRKJA | Barnamessa kl.
11. Lífleg og gefandi samvera fyrir alla
fjölskylduna. Fræðsla, söngur og lof-
gjörð. Guðsþjónusta kl. 14. Félagar úr
kór Bústaðakirkju leiða sönginn undir
stjórn Antoniu Hevesi. Þetta er 3.
sunnudagur í föstu og litur messu-
klæða er fljólublár. Messuþjónar að-
stoða og prestur er sr. Pálmi Matthías-
son. Molasopi og hressing eftir messu.
DÓMKIRKJA Krists konungs,
Landakoti | Messa kl. 10.30, kl. 13 á
pólsku og kl. 18 á ensku. Virka daga kl.
18, og má., mi. og fö. kl. 8, lau. kl. 16 á
spænsku og kl. 18 er sunnudags-
messa.
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11, séra
Hjálmar Jónsson prédikar og þjónar fyr-
ir altari. Barnastarfið á kirkjuloftinu í
umsjón Ólafs Jóns og Sigurðar Jóns.
Dómkórinn og organisti er Kári Þormar.
FELLA- og Hólakirkja | Messa kl. 11.
Séra Svavar Stefánsson prédikar og
þjónar fyrir altari. Kór Fella- og Hóla-
kirkju syngur og leiðir almennan safn-
aðarsöng undir stjórn Guðnýjar Ein-
arsdóttur organista. Meðhjálpari
Kristín Ingólfsdóttir. Sunnudagaskóli á
sama tíma í umsjá Hreins og Péturs. Í
dag verður myndatökudagurinn mikli og
auðvitað söngur, saga og gleði að
vanda.
FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Sunnu-
dagskóli kl. 11. Hljómsveit kirkjunnar
leiðir sönginn.
FRÍKIRKJAN Kefas | Sunnudagaskóli
kl. 11. Góð fræðsla, mikill söngur,
brúðuleikrit og létt hressing í lokin.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Ferming-
arguðsþjónusta kl. 14. Séra Hjörtur
Magni Jóhannsson þjónar fyrir altari
ásamt Erlu Björk Jónsdóttur guðfræð-
ingi. Kór Fríkirkjunnar í Reykjavík leiða
tónlistina ásamt Gunnari Gunnarssyni
organista.
GLERÁRKIRKJA | Messa kl. 11. Sr.
Arna Ýrr Sigurðardóttir þjónar. Kór Gler-
árkirkju leiðir almennan söng.
GRAFARVOGSKIRKJA | Ferming kl.
10.30. Séra Vigfús Þór Árnason og
séra Guðrún Karls Helgudóttir prédika
og þjóna fyrir altari. Kór kirkjunnar syng-
ur. Organisti: Hákon Leifsson. Ferming
kl. 13.30. Séra Vigfús Þór Árnason og
séra Guðrún Karls Helgudóttir prédika
og þjóna fyrir altari. Kór kirkjunnar syng-
ur. Organisti: Hákon Leifsson. Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Prestur er séra Petr-
ína Mjöll Helgudóttir. Umsjón hefur
Þóra Björg Sigurðardóttir. Undirleikari
er Stefán Birkisson.
GRENSÁSKIRKJA | Morgunverður kl.
10, bænastund kl. 10.15. Messa kl.
11. Barnastarf í umsjón Lellu o.fl. Alt-
arisganga. Samskot til Hjálparstarfs
kirkjunnar. Messuhópur þjónar. Fé-
lagar úr Kirkjukór Grensáskirkju syngja.
Organisti er Árni Arinbjarnarson. Prest-
ur sr. Ólafur Jóhannsson. Molasopi eft-
ir messu. Hversdagsmessa með Þor-
valdi Halldórssyni á fimmtudag kl.
18.10.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti |
Guðsþjónusta og barnastarf kl. 11.
Prestur sr. Sigurjón Árni Eyjólfsson,
organisti Ester Ólafsdóttir og kór Guð-
ríðarkirkju syngur. Barnastarf í umsjá
Aldísar R. Gísladóttur og Ruth Rúnars-
dóttur. Meðhjálpari Kristbjörn Árnason.
Kirkjuvörður Lovísa Guðmundsdóttir.
Kaffisopi eftir messu.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og
barnastarf kl. 11. Sr. Irma Sjöfn Ósk-
arsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari.
Hópur messuþjóna aðstoðar. Félagar
úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja.
Organisti er Haukur Guðlaugsson. Um-
sjón barnastarfs Inga Harðardóttir.
HÁTEIGSKIRKJA | Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11. Systurnar Laufey og
Júnía syngja og leika. Arnar og Alla Rún
spjalla við börnin. Organisti Kári All-
ansson. Prestur sr. Helga Soffía Kon-
ráðsdóttir.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Messa
kl. 11. Sr. Halldór Reynisson þjónar.
Kór Hjallakirkju leiðir sönginn undir
stjórn Jóns Ólafs Sigurðssonar org-
anista. Sunnudagaskóli kl. 13.
HÓLANESKIRKJA Skagaströnd |
Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Séra
Bryndís Valbjarnardóttir prédikar og
þjónar fyrir altari. Kór Hólaneskirkju
syngur undir stjórn Hugrúnar Sifjar Hall-
grímsdóttur organista. Kirkjukaffi á eft-
ir.
HVALSNESKIRKJA | Messa kl. 14.
Félagar úr Kirkjukór Keflavíkurkirkju
ásamt Arnóri Vilbergssyni organista
annast tónlist. Mottumessa. Mottu-
prýddir karlar sérstaklega hvattir til
þátttöku í tilefni mottumars. Félagar úr
Frímúrarareglunni Sindra lesa ritning-
arlestra. Prestur sr. Sigurður Grétar
Sigurðsson.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía |
Alfasamkoma kl. 11. Skírn og vitn-
isburðir. Kaffi og samfélag eftir sam-
komu. Samkoma á ensku kl. 14 í Al-
þjóðakirkjunni. English speaking
service. Kvöldsamkoma kl. 18 með
ljúfri lofgjörð og hagnýtri prédikun.
Helgi Guðnason prédikar.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Sam-
koma kl. 13.30. Ágúst Valgarð Ólafs-
son predikar. Lofgjörð og fyrirbænir.
Barnastarf á sama tíma. Kaffi og sam-
félag eftir samkomu.
KÁLFATJARNARKIRKJA | Æðruleys-
ismessa kl. 20. Kór Kálfatjarnarkirkju
syngur undir stjórn Franks Kristins Her-
lufsens organista. Prestur er sr. Kjart-
an Jónsson.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Tvær guðs-
þjónustur verða í Keflavíkurkirkju
sunnudaginn 23. mars. Kl. 11 er fjöl-
skylduguðsþjónusta í umsjón sr. Erlu
Guðmundsdóttur og leiðtoga í barna-
starfinu. Sjálfboðaliðar reiða fram
súpu að messu lokinni. Kl. 20 verður
mottumessa í kirkjunni í samstarfi við
Krabbameinsfélag Suðurnesja. Fé-
lagar úr krabbameinsfélaginu deila
sögu sinni með messugestum. Arnór
Vilbergsson er við orgelið. Prestur er
sr. Skúli S. Ólafsson.
KÓPAVOGSKIRKJA | Tónlistarmessa
kl. 11. Sr. Sigurður Arnarson, sókn-
arprestur prédikar og þjónar fyrir altari.
Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn
Lenku Mátéová, kantors kirkjunnar.
Sunnudagaskólinn hefst í kirkju en
heldur síðan í safnaðarheimilið Borgir.
Umsjón með sunnudagaskólanum
hafa þær Þóra Marteinsdóttir og Sól-
veig Anna Aradóttir.
LANGHOLTSKIRKJA | Messa og
sunnudagaskóli kl. 11. Söngsveitin
Góðir grannar syngur við athöfnina við
undirleik Jóns Stefánssonar. Guðbjörg
Jóhannesdóttir sóknarprestur þjónar
með kirkjuverði og messuþjónum. Jó-
hanna og Snævar leiða sunnudaga-
skólann með aðstoð Esju. Að messu
lokinni verður kaffi í safnaðarheimilinu.
LAUGARNESKIRKJA | Krossferli að
fylgja þínum / fýsir mig, Jesús kær, /
væg þú veikleika mínum, / þó verði eg
álengdar fjær. Fjallað um áskorun föst-
unnar og skrímslin hið innra í prédikun
sunnudagsins í Laugarneskirkju.
Messa og barnastarf kl. 11. Fjörugur
sunnudagaskóli, stjórnendur Hjalti Jón
Sverrisson, Hrafnkell Már Einarsson og
Gísli Björnsson. Prestur Sigurvin Lárus
Jónsson. Kór Laugarneskirkju leiðir
safnaðarsöng undir stjórn Argerðar
Maríu Árnadóttur organista.
LÁGAFELLSKIRKJA | Fermingarguð-
sþjónustur í Lágafellskirkju kl. 10.30
og 13.30. Kirkjukór Lágafellssóknar
syngur. Organisti Arnhildur Valgarðs-
dóttir. Prestar sr. Ragnheiður Jónsdóttir
og Skírnir Garðarsson. Upplýsingar um
fermingarbörn dagsins er að finna á
heimasíðu kirkjunnar: www.lagafells-
kirkja.is
LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnu-
dagaskóli í Lindakirkju og Boðaþingi kl.
11. Guðsþjónusta í Lindakirkju kl. 20.
Gospel og gleði. Kór Lindakirkju syngur
undir stjórn Óskars Einarssonar. Sr.
Guðmundur Karl Brynjarsson þjónar.
NESKIRKJA | Messa og barnastarf kl.
11. Sameiginlegt upphaf. Hljómur – kór
eldri borgara syngur. Stjórnandi Jó-
hanna Halldórsdóttir. Organisti Stein-
grímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður
Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari.
Fermdar verða Aurora Erika Luciano,
Seilugranda 2, og Þorgerður Þórólfs-
dóttir, Melhaga 1. Söngur, sögur, brúð-
ur og gleði í barnastarfinu. Umsjón Ása
Laufey, Katrín og Ari. Samfélag og kaffi-
sopi á Torginu eftir messu.
NJARÐVÍKURKIRKJA Innri-
Njarðvík | Fermingarmessa kl. 10.30.
Kór Njarðvíkurkirkna syngur undir stjórn
Stefáns Helga Kristinssonar organista.
Meðhjálpari Pétur Rúðrik Guðmunds-
son.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN | Ferming-
arguðsþjónusta kl. 14. Séra Pétur Þor-
steinsson sér um athöfnina og kór
safnaðarins leiðir sönginn undir stjórn
Árna Heiðars Karlssonar. Barnastarf á
sama tíma. Sjá nánar á www.ohadis-
ofnudurinn.is
SALT kristið samfélag | Samkoma
kl. 14 í safnaðarheimili Grensáskirkju.
„Gott að hafa í huga fyrir hjónaband.“
Ræðumaður Hafliði Kristinsson.
SELFOSSKIRKJA | Messa og barna-
starf kl. 11. Prestur sr. Axel Á Njarðvík.
Organisti Jörg Sondermann. Kirkjukór-
inn leiðir sönginn. Súpa og brauð á eft-
ir. Biblíuleshópurinn hittist kl. 9.30 og
fleiri eru velkomnir til lesturs. Sam-
verustund um sorg og úrvinnslu henn-
ar næstu miðvikudaga í Selfosskirkju
kl. 15.30.
SELJAKIRKJA | Barnaguðsþjónusta
kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Ólafur
Jóhann Borgþórsson prédikar. Kór
Seljakirkju leiðir safnaðarsöng. Org-
anisti Tómas Guðni Eggertsson.
SELTJARNARNESKIRKJA | Messa
og sunnudagaskóli kl. 11. Orgel Sel-
tjarnarneskirkju 15 ára. Björgvin Tóm-
asson orgelsmiður, segir frá orgelinu.
Sóknarprestur, sr. Bjarni Þór Bjarna-
son, þjónar. Friðrik Vignir Stefánsson
er organisti. Félagar úr Kammerkór
Seltjarnarneskirkju leiða almennan
safnaðarsöng. Kaffiveitingar. Fræðslu-
morgunn kl. 10 Árni Bergmann, rithöf-
undur og skáld, flytur erindi er heitir
„Sambúð trúaðra og trúlausra.“
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa
kl. 11. Sr. Egill Hallgrímsson sókn-
arprestur annast prestsþjónustuna.
Organisti er Jón Bjarnason.
STOKKSEYRARKIRKJA | Messa kl.
11. Organisti Haukur A. Gíslason.
Kaffi og kökubiti eftir messu.
TORFASTAÐAKIRKJA | Guðsþjón-
usta sunnudag 23. mars kl. 14. Sr. Eg-
ill Hallgrímsson sóknarprestur annast
prestsþjónustuna. Organisti er Jón
Bjarnason.
ÚTSKÁLAKIRKJA | Messa kl. 17. Fé-
lagar úr Kirkjukór Keflavíkurkirkju
ásamt Arnóri Vilbergssyni organista
annast tónlist. Mottumessa. Mottu-
prýddir karlar sérstaklega hvattir til
þátttöku í tilefni mottumars. Prestur
sr. Sigurður Grétar Sigurðsson.
VÍDALÍNSKIRKJA | Messa og sunnu-
dagaskóli með hefðbundnum hætti kl.
11. Randver Randversson, guðfræð-
ingur í starfsþjálfun prédikar. Sr. Friðrik
J. Hjartar þjónar fyrir altari. Tónlistina
leiða félagar úr Kór Vídalínskirkju og
Jóhann Baldvinsson, organisti. Leið-
togar sunnudagaskólalans fræða
börnin í Safnaðarheimilinu. Að messu
lokinni bera félagar úr Lionskl. í Garða-
bæ fram súpu. AÐALSAFN-
AÐARFUNDUR GARÐASÓKNAR hefst
kl. 12.30. Sóknarbörnin eru hvött til
að staldra við og láta sig varða málefni
kirkjunnar.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði |
Messa kl. 11. Kór Víðistaðasóknar
syngur undir stjórn Helgu Þórdísar
Guðmundsdóttur. Prestur sr. Gunnar
Jóhannesson héraðsprestur. Sunnu-
dagaskólinn kl. 11. Fjölbreytt dagskrá
fyrir börn á öllum aldri, fer fram uppi í
suðursal kirkjunnar.
Orð dagsins:
Jesús rak út illan
anda.
(Lúk. 11)
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Vallaneskirkja, Suður-Múlasýslu.
Raðauglýsingar
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni
sjálfri sem hér segir:
Eldshöfði 3, 204-2885, Reykjavík, þingl. eig.Teddi ehf, gerðarbeiðandi
Landsbankinn hf., miðvikudaginn 26. mars 2014 kl. 10:00.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
21. mars 2014.
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Hofsbraut 54, 223-7930, Reykjavík, þingl. eig. Rúnar Þrúðmarsson,
gerðarbeiðendur Orkuveita Reykjavíkur-vatns sf., Reykjavíkurborg og
Vátryggingafélag Íslands hf., fimmtudaginn 27. mars 2014 kl. 11:15.
Laxatunga 9, 230-7892, Mosfellsbæ, þingl. eig. ÞorsteinnTheodór
Ragnarsson og Bryndís Eir Þorsteinsdóttir, gerðarbeiðendur Íslands-
banki hf. og Mosfellsbær, fimmtudaginn 27. mars 2014 kl. 10:30.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
21. mars 2014.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirtöldum eignum í Bolungarvík
verður háð á þeim sjálfum miðvikudaginn 26. mars 2014
sem hér segir:
Aðalstræti 9, fnr. 212-1113, þingl. eig. Arnarhlíð ehf., gerðarbeiðendur
Bolungarvíkurkaupstaður, sýslumaðurinn í Bolungarvík og
Vátryggingafélag Íslands hf. Kl. 14:45.
Holtabrún 5, fnr. 212-1409, þingl. eig. Ragnheiður Benediktsdóttir,
gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður. Kl. 14:00
Vitastígur 7, fnr. 212-1683, 50% eignarhlutur, þingl. eig. Karol Gainski,
gerðarbeiðandi Borgun hf. Kl. 14:15.
Sýslumaðurinn í Bolungarvík,
21. mars 2014.