Morgunblaðið - 22.03.2014, Side 42
42 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MARS 2014
Ætli ég byrji ekki daginn á því að skella mér á hestbak. Umkvöldið ætla ég að elda eitthvað extra gott fyrir fjöskylduog vini. Ég er svo heppin að vinir okkar frá Húsavík eru
einmitt í heimsókn hjá okkur,“ segir Katrín Sigurðardóttir sem er
41 árs í dag.
Hún er búsett á Skeiðvöllum í Holta- og Landsveit ásamt fjöl-
skyldu sinni og rekur þar hestamiðstöð og ferðaþjónustufyrirtæki.
Síðastliðið sumar bættu þau við reksturinn og opnuðu svokallaða
heimsóknarmiðstöð sem er opin yfir sumartímann. Ekki er um hefð-
bundna hestaleigu að ræða heldur fær fólk að kynnast lífinu í kring-
um hestamennskuna. Teymt er undir börnum og þau fá að kemba
hestunum, þá er sögusafn sem sýnir þróunina á gömlum reiðtygjum
og hægt að setjast niður og fá sér eitthvað á kaffihúsinu.
„Viðtökurnar voru góðar en það sem kom mér mest á óvart var að
80% gesta voru Íslendingar. Það er greinilega mikil þörf fyrir af-
þreyingu á svæðinu enda hefur gistimöguleikunum fjölgað mikið á
svæðinu undanfarið.“ Að auki er rekin tamninga- og sölumiðstöð á
Skeiðvöllum og er pláss fyrir 38 hross. „Það er gaman að vera með
blandaðan rekstur. Þetta styður allt hvað annað,“ segir Katrín en
hún hefur stundað hestmennsku frá blautu barnsbeini og er ferða-
málafræðingur að mennt.
thorunn@mbl.is
Katrín Sigurðardóttir er 41 árs í dag
Fjölskyldan Katrín og Davíð ásamt börnum og buru; Sigurður
Smári, Guðlaug Birta, hundurinn Píla og kötturinn Tinni og Flóki.
Hestamennska frá
morgni til kvölds
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Ólafsfjörður Óðinn Snær fæddist
23. nóvember kl. 18.27. Hann vó 3.286
g og var 50 cm langur. Foreldrar hans
eru Guðrún Þorvaldsdóttir og Hólmar
Hákon Óðinsson.
Nýir borgarar
Reykjavík Heiðar Helgi fæddist
1. nóvember kl. 0.34. Hann vó 2008 g
og var 44 cm langur. Foreldrar hans
eru Sara Bergsdóttir og Einar Ingimar
Helgason.
Á
rni Hjörvar bassaleikari
fæddist í Reykjavík
22.3. 1984. Hann ólst
upp í Kópavogi fyrstu
árin en í Grafarvog-
inum frá sjö ára aldri. Árni var í
Hamraskóla í Grafarvogi og síðan
Engjaskóla, stundaði nám við
Menntaskólann við Sund og lauk
þaðan stúdentsprófi 2004 og stund-
aði nám í félagsfræði skamma hríð
við Háskóla Íslands.
Vann við félagsmiðstöðvar
Árni stundaði nám við Tónlistar-
skóla FÍH og útskrifaðist þaðan eft-
ir þriggja ára nám. Hann flutti til
Bretlands 2007 og hóf þar tónlist-
arnám við Institute of Contempor-
ary Music Performance. En þar
stoppaði hann stutt við, enda hefur
hann sagt í viðtali við Morg-
unblaðið: „Ég sótti um tónlist-
arháskólann til þess að réttlæta
ferðalagið.“
Árni vann við frístundastörf fyrir
unglinga í Grafarvogi, í félags-
miðstöðvunum Engyn við Engja-
skóla og Púgyn við Víkurskóla og
Árni Hjörvar Árnason bassaleikari í Vaccines – 30 ára
Fjölskyldan á Austurvelli Snæbjörn, Ellen með Ágústu Jóhönnu, Jóhannes og Árni og foreldrar fyrir aftan.
Árni Hjörvar rokkar
á toppinn í Bretlandi
Á tónleikahátíð Árni horfir yfir hátíðargesti í stuði á Glastobury, 2013.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Laugardagstilboð
– á völdum dúkum, servéttum og kertum
SE
RV
ÉT
TÚ
R
KE
RT
I
DÚ
KA
R
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • sala@rv.is • rv.is
®
Ýmisservéttubrot
Sjá hér!
Opið laugardaga kl. 10-16