Morgunblaðið - 22.03.2014, Blaðsíða 43
Korpuskóla á árunum 2004-2006.
Árni hefur leikið á bassa í hljóm-
sveitum frá því hann var í grunn-
skóla og tók m.a. þátt í Músíktil-
raunum. Meðal helstu hljómsveita
sem hann lék með áður en hann
flutti til Bretlands eru hljómsveit-
irnar The Troopers, Dice, Future
Future og Kimono.
Vaccines-ævintýrið
Skömmu eftir að Árni flutti til
Bretlands kynntist hann Justin
Young, breskum söngvara og gít-
arleikara, sem þá lék og söng ýmist
með hljómsveitum eða einn á báti.
Árni kynntist Pete Robertson
trommara á öðrum vettvangi en
þeir léku saman í nokkrum hljóm-
sveitum um skeið. Justin Young og
Freddie Cowan gítarleikari höfðu
síðan samband við Árna í því skyni
að stofna hljómsveit og Árni benti á
Pete. Þannig varð til hljómsveitin
Vaccines, árið 2009.
Aðspurður um tónlistarstefnu
segir Árni hljómsveitina leika klass-
íkt og tært Rock and rol með poppí-
vafi frá þeim sjálfum en að öðru
leyti hefur hann ekki viljað setja
tónlist þeirra á neinn sérstakan bás.
Þeir reyni fyrst og fremst að leika
eigin tónlist og vera hressir og
skemmtilegir. Að öðru leyti tali tón-
list þeirra fyrir sig sjálf.
Hljómsveitin sendi frá sér plöt-
una What Did You Expect From
The Vaccines? í marsmánuði 2011.
Platan lenti í fjórða sæti á vinsælda-
listum Bretlands og hljómsveitin
lenti í þriðja sæti á vinsældalista
breska ríkisútvarpsins BBC yfir
heitustu hljómsveitir ársins 2011.
Þá sendi hljómsveitin frá sér smá-
skífuna Wreckin’ Bar (Ra Ra Ra)/
Blow it Up, í apríl 2011. Vaccines
var svo tilnefnd til Brit-tónlist-
arverðlaunanna í flokknum Bjart-
asta vonin árið 2012.
The Vaccines gáfu síðan út plöt-
una The Vaccines Come of Age í
október 2012 og skömmu áður en
hljómsveitin kom hingað til lands til
að leika á Airwaves 2012 var platan
á toppi breska plötulistans. Hljóm-
sveitin var svo tilnefnd til Brit-
tónlistarverðlaunanna 2013 sem
besta tónleikasveitin. Í sama flokki
voru einnig tilnefndar hljómsveit-
irnar The Rolling Stones, Coldplay,
Muse og Mumford & Sons.
Hljómsveitin Vaccines hefur verið
á nánast stöðugu tónleikaferðalagi
um allan heim frá sumri 2011. Hún
hefur leikið með mörgum frægustu
popphljómsveitum samtímans og á
allflestum stærstu tónlistarhátíðum
Evrópu og Bandaríkjanna.
Fjölskylda
Hálfsystkini Árna, sammæðra,
eru Ellen Helga Steingrímsdóttir, f.
19.12. 1987, nemi í hjúkrunarfræði
við HÍ, búsett í Reykjavík, en mað-
ur hennar er Jóhannes Georgsson
bifvélavirki og er dóttir þeirra
Ágústa Jóhanna, f. 25.11. 2009;
Snæbjörn Steingrímsson, f. 25.7.
1990, nemi í Reykjavík, og Jóhann-
es Bjarki Bjarkason, f. 26.3. 1996,
nemi við Kvennaskólann í Reykja-
vík.
Foreldrar Árna eru Steingerður
Kristjánsdóttir, f. 4.5. 1963, starfs-
maður hjá Reykjavíkurborg, og
Árni Finnsson, f. 21.9. 1963, búsett-
ur í Reykjavík. Fósturfaðir Árna er
Bjarki Þór Jóhannesson, f. 6.5.
1963, kennari.
Úr frændgarði Árna Hjörvar Árnasonar
Árni Hjörvar
Árnason
Marsibil Sigurðardóttir
húsfr. á Grund
Helgi Snæbjörnsson
b. á Grund
Hjördís Regína Helgadóttir
húsfr. í Hvammi
Kristján Stefánsson
b. í Hvammi í Grýtubakkahr.
Steingerður Kristjánsdóttir
skrifstofum. hjá Rvíkurborg
Sigurlaug Jóhannesdóttir
húsfr. í Hvammi
Stefán Ingjaldsson
b. á Hálsi í Fnjóskadal og í Hvammi
Jóhanna Jónasdóttir
húsfr. á Ísafirði og í Rvík
Björgvin Emil Pálsson
skipstj. á Ísafirði og í Rvík
Vilborg Fríður Björgvinsdóttir
húsfr. í Rvík
Jóhannes Sigurðsson
rafvirki í Rvík
Bjarki Þór Jóhannesson
kennari í Rvík (fósturfaðir)
Sigríður Jóhannesdóttir
húsfr. í Brekkuholti
Sigurður Sigurðsson
verkstj. og sjóm. í Brekkuholti við Bræðraborgarstíg í Rvík
Árni Hjörvar Afmælisbarnið mund-
ar bassann á tónleikaferðalagi.
ÍSLENDINGAR 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MARS 2014
Kristín Lovísa Sigurðardóttiralþm. fæddist í Reykjavík23.3. 1898. Hún var dóttir
Sigurðar Þórólfssonar, kennari og
síðar skólastjóri á Hvítárbakka í
Borgarfirði og f.k.h., Önnu Guð-
mundsdóttur sem lést ung.
Seinni kona Sigurðar var Ásdís
Margrét Þorgrímsdóttir og eign-
uðust þau tíu börn. Meðal þeirra hálf-
systkina Kristínar má nefna Þorgrím
Vídalín, prófast á Staðastað; Önnu,
forstöðumann Kvennasögusafns Ís-
lands; Ásberg, alþm. sýslumann og
borgarfógeta, föður Jóns Ásbergs-
sonar, framkvæmdastjóra Íslands-
stofu, og Valborgu, skólastjóra Fóst-
urskólans, móður Sigríðar Snævarr
sendiherra.
Eiginmaður Kristínar var Karl
Óskar Bjarnason, varaslökkvi-
liðsstjóri í Reykjavík, og eignuðust
þau þrjú börn sem öll eru látin. Þau
voru Guðmundur, brunavörður og
síðar blaðamaður en meðal barna
hans er Guðrún Hrefna skrif-
stofustjóri; Anna Kristín, en meðal
barna hennar eru Sólveig Hrönn
Kristinsdóttir sjúkraliði og Karl
Gústaf Kristinsson yfirlæknir. Sig-
urður var yngstu barna Kristínar og
Karls, rafvélavirki og brunavörður.
Kristín stundaði nám í Lýðskól-
anum á Hvítárbakka 1913-15. Hún
stundaði verslunar- og skrifstofustörf
í Reykjavík 1915-18 og var síðan
lengst af húsfreyja auk þess sem hún
var mjög virk í félagsmálum.
Kristín var ein af fyrstu konum
sem kjörnar voru á þing, var lands-
kjörinn alþm. fyrir Sjálfstæðisflokk-
inn 1949-53. Hún var lengi ritari sjálf-
stæðiskvennafélagsins Hvatar, var
formaður áfengisvarnanefndar
kvenna í Reykjavík og Hafnarfirði og
beitti sér mjög fyrir bindindismálum,
var formaður framkvæmdanefndar
Hallveigarstaða og sat í stjórn Kven-
réttindafélags Íslands um árabil, sat í
miðstjórn og skipulagsnefnd Sjálf-
stæðisflokksins, var formaður Lands-
sambands sjálfstæðiskvenna og sat í
orlofsnefnd húsmæðra og í barna-
verndarnefnd Reykjavíkur.
Kristín lést 31.10. 1971.
Merkir Íslendingar
Kristín L. Sigurðardóttir
Laugardagur
90 ára
Ingibjörg Malmquist
Rakel Kristín Malmquist
85 ára
Jakob H. Sigfússon
Ragnar Jón Jónsson
Sólveig Guðbjartsdóttir
80 ára
Baldvin Einarsson
Hörður Þorsteinsson
Sigurborg Bragadóttir
75 ára
Agnes Óskarsdóttir
Ágústa K. Johnson
Erling Ísfeld Magnússon
Finnur Tryggvason
Gunnur Salbjörg
Friðriksdóttir
Hilmar Svavarsson
Valur Tryggvason
70 ára
Anna Huld Lárusdóttir
Guðmundur Óskar
Skarphéðinsson
Hildur Eyjólfsdóttir
Jóhanna Hjörleifsdóttir
Katrín Guðmundsdóttir
Páll A. Jónsson
Sturla Þórðarson
60 ára
Ágúst Björgvinsson
Bjarnfríður Bjarnadóttir
Friðrik Guðmundsson
Karl Ove Lennart Jansson
Sigríður Harðardóttir
Sveinbjörn Friðjónsson
50 ára
Bergþóra Tómasdóttir
Hinrik Þór Valgeirsson
Jóhannes Sturlaugsson
Kristjana Bjarnadóttir
Margrét Tómasdóttir Olrich
Sigurður F. Reynisson
Steinunn Hall
40 ára
Ardian Gashi
Árni Magnússon
Dariusz Marian Bender
Einar Sveinn Jónsson
Guðjón Ásmundsson
Oddný Jóhanna
Zophoníasdóttir
Sólrún Tryggvadóttir
Valgerður Helga
Sigurðardóttir
Wojciech Nowak
Þórunn Brynja
Sigurbjörnsdóttir
Þyrí Rut Gunnarsdóttir
30 ára
Anna Elisabeth Obrecht
Ásgrímur Ragnar
Sigurðsson
Guðmundur Freyr
Hafsteinsson
Ingvi Hrafn Ingvason
Katarzyna Paszkowska
Katla Hreiðarsdóttir
Kjartan Ingi Hauksson
Kristín Helga Jónasdóttir
Ólafur Oddgeir Viðarsson
Peter Bischofberger
Piotr Lukasz Budziszewski
Unnur Hlíðberg Hauksdóttir
Sunnudagur
101 ára
Ólöf Hjálmarsdóttir
85 ára
Guðrún Björg Björnsdóttir
Haraldur Stefánsson
80 ára
Henry Þór Henrysson
Ingibjörg Þorleifsdóttir
Sigríður Magnea
Hermannsdóttir
Þorkell Jóhannesson
75 ára
Anna Stefánsdóttir
Bylgja Tryggvadóttir
Guðjón Hallur Hallsson
Kristinn Helgason
Oddbjörg Ögmundsdóttir
Pétur Stefánsson
Selma Bjarnadóttir
Þorbergur Þorbergsson
70 ára
Elmer Hreiðar Elmers
Guðmunda Halldórsdóttir
Harald S. Holsvik
Rut Rebekka
Sigurjónsdóttir
Sigríður Malmquist
60 ára
Auður Jónsdóttir
Árni Marz Friðgeirsson
Birgir Karl Guðmundsson
Birna Jóhannsdóttir
Bonnie Laufey Dupuis
Garðar Þröstur Einarsson
Hálfdán Kristjánsson
Kristbjörg J. Valtýsdóttir
Kristín Inga Birgisdóttir
Vignir Sigurðsson
Þorbjörg Hansdóttir Beck
50 ára
Aron Elfar Árnason
Brynja Guðbjörg
Harðardóttir
Eydís Sigurborg
Benediktsdóttir
Jóhanna Gyða
Stefánsdóttir
Jón Ingi Bjarnþórsson
Marta María Friðþjófsdóttir
Ólafur Sveinsson
Pétur Jóhann Sigvaldason
Rósa Erlendsdóttir
Sigurður Guðmundsson
Steinunn Baldursdóttir
Þorvaldur Sveinn
Guðmundsson
40 ára
Arna Stefánsdóttir
Arnfríður S.
Valdimarsdóttir
Björg Hjördís Ragnarsdóttir
Fríða Agnarsdóttir
Hjálmar Jens Sigurðsson
Hrannar Birkir Haraldsson
Ingólfur Haraldsson
Lilja Dögg Stefánsdóttir
Linda Dröfn Jónsdóttir
Mary Ann Gonzales
Rakel Magnúsdóttir
Sævar Bjarki Einarsson
Þórarinn Einarsson
30 ára
Alaa Jarrah
Ágúst Bjarnason
Björn Gunnarsson
Björn Rúnar Egilsson
Fannar Traustason
Guðni Freyr Róbertsson
Hildur Nanna Eiríksdóttir
Ívar Grétarsson
Linda Björk Friðgeirsdóttir
Margrét Guðmundsdóttir
Máney Mjöll Sverrisdóttir
Saga Rúnarsdóttir
Sólveig Rós Másdóttir
Tereza Brusová
Tinna Sif Jensdóttir
Til hamingju með daginn
mbl.is/islendingar
ALLT
á einum stað!
Lágmarks biðtími www.bilaattan.is
Dekkjaverkstæði
Varahlutir
Bílaverkstæði
Smurstöð