Morgunblaðið - 22.03.2014, Qupperneq 44
44 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MARS 2014
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú ert góður skipuleggjandi og skalt
bjóða fram starfskrafta þína þar sem þeir
nýtast best. Sýndu lipurð og festu. Umheim-
urinn sperrir eyrun.
20. apríl - 20. maí
Naut Kímnigáfa þín og rausnarskapur gera
að verkum að flestum líkar vel við þig. Taktu
hlutverkinu fagnandi.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það kann ekki góðri lukku að stýra
að blanda pesónulegum vandamálum sínum
saman við starfið. Gerðu ráð fyrir því óvænta
í öllu því sem þú tekur þér fyrir hendur.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Til þín berast sterkir straumar í dag.
Maður hefur ótal tækifæri til þess að upplifa
fortíðina en þú kýst að láta kyrrt liggja. Mað-
ur græðir hvort sem er ekkert á því að velta
sér upp úr því liðna.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Reyndu að halda einkalífi þínu og starfi
aðskildu. Dýrkaðu og lærðu að meta ástvini
þína af svo miklum ákafa, að þeir finni návist
þína líka þegar þú ert víðs fjarri.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Vertu ekki að streða við hlutina ein/n í
þínu horni því nú er það hópstarfið sem gild-
ir. Hrapaðu ekki að ákvörðunum, þú getur
ekki vitað útkomuna fyrirfram.
23. sept. - 22. okt.
Vog Kannski á þér aldrei eftir að finnast þú
nógu örugg/ur með þig til að gera það sem
hjartað býður þér. Ekki er þar með sagt að
dragi úr önuglyndinu. Drífðu þig af stað og
láttu móðan mása.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú stendur á einhvers konar
tímamótum og þarft því að íhuga vandlega
næstu skref. Láttu það eftir þér að fara í
ferðalag eða gera eitthvað fyrir sjálfa/n þig.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú hefur mun meiri áhuga á
smáatriðunum en heildarmyndinni í dag.
Láttu glósur annarra sem vind um eyru
þjóta; þær eru öfund.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Svo virðist sem þú fáir tækifæri til
þess að auka tekjur þínar eða bæta að-
stæður á vinnustað. Fáðu aðra til að vinna
með þér.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Auðveldasta leiðin til að komast
klakklaust gegnum daginn er að gera ekki
svona miklar kröfur til annarra. Stattu fast á
rétti þínum.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Gleymdu vonlausum málefnum
heimsins og gerðu eitthvað sem þú getur
klárað í dag. Sýndu umhyggju og sendu póst-
kort eða hringdu til þess að segja hæ.
Fyrir viku var þessi gáta eftirSigtrygg Jónsson í Vísna-
horni:
Gjarna er í garða sett
göldrum tengd og níði.
Vala henni veldur létt
veiðimanns er prýði.
Harpa Jónsdóttir Hjarðarfelli á
þessa lausn:
Fín í garðinn fánastöng.
Fornmenn reistu oft níðstöng.
Vala Flosa stökk á stöng.
Strákar munda veiðistöng.
Fleiri vísur bárust. Þessi var gáta
Guðmundar Arnfinnssonar:
Flytja manni ljúflingslög.
Lög í vegg ég hugsa’ um.
Valda sviða, sárir mjög.
Svo eru þeir á buxum.
Helgi R. Einarsson leysir gátuna
svona:
Hljóma strengir hörpunnar,
í hleðslu er strengurinn,
hef oft strengi hér og þar,
við huppinn strenginn finn..
Karlinn á Laugaveginum réð gát-
una þannig:
Fiðlarinn leikur létt á strengi.
Lag heitir strengur í bæjarvegg.
Sárt undan strengjum svíður lengi
Séð hef ég buxnastreng á segg.
Og liggur við ofstuðlun í síðustu
hendingu en sleppur samkvæmt
ströngustu bragreglum, þar sem of
langt yrði milli stuðla!
Hér er gáta eftir séra Svein Vík-
ing:
Himni á má svartan sjá.
seinlegt verk að greiða ’ann.
Ungafæða er sagður sá.
Sjómenn stundum veiða ’ann.
Lausn birtist samkvæmt venju
næsta laugardag.
Karlinn á Laugaveginum hringdi
í mig. Eins og vant er á þessum
tíma árs er hann austur í Hvera-
gerði sér til heilsubótar. Hann lét
vel yfir sér og sagði að Sandvíkur-
heiðin væri falleg í heiðríkjunni:
Ég sá kríu sem flúði undan kjóanum
þegar krakki ég lék mér í móanum
með skrámur á hné.
Og Skyggni ég sé
sem skyggir á annað í Flóanum.
Eyjólfur Jóhannesson í Hvammi
orti:
Skerðast tekur skemmtan forn,
skiptir nú um bragi,
eg er kominn upp í horn,
út úr mannfélagi.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Stangir, strengir
og Sandvíkurheiðin
Í klípu
„ÞEIR HAFA ENN EKKI ÁKVEÐIÐ
HVAÐ SKAL GERA VIÐ HANN.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„HANN ÞURFTI AÐ HÆTTA
SEM SKÓSMIÐUR.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
...það sem heldur
þér gangandi.
GÆLUDÝR EIGA AÐ VERA
SKEMMTILEG, GRETTIR.
ÞAÐ ER
KJAFTASAGA.
ÞÚ SKEMMTIR
EKKI.
ÞÚ ÆTTIR
AÐ PRÓFA.
VILTU
SKEMMTIKRAFT?
FÁÐU ÞÉR APA.
ÞÚ FÆRÐ SAMTÍNING
Í MATINN Í KVÖLD.
ÉG MISSTEIG MIG
AÐEINS ÞEGAR ÉG LÉT
MATINN Á BORÐIÐ!
Að gera ekki neitt er afskaplegagóð afþreying. Hreinlega vegna
þess að maður gerir það alltof sjald-
an. Dagskráin er oftar en ekki þétt-
skipuð. Víkverji líkt og aðrir sem eru
í kringum hann er ansi lunkinn við
að fylla frítíma sinn af hinum ýmsu
viðburðum, fjölskyldu- og vinaboð-
um, fyrir utan tímafrekt áhugamál.
Fyrir utan „að gera eitthvað
skemmtilegt með barninu“ (hvort sú
pressa er sjálfsprottin eða tilkomin
með þrýstingi frá samfélaginu skal
ósagt látið).
x x x
Ekki svo að skilja að Víkverji njótiþess ekki að vera í félagsskap
við aðra, fara í leikhús, bíó og tón-
leika. En fyrir vikið eru helgarnar
líkt og þessi, þéttskipuð af stans-
lausu skemmtanahaldi. Víkverji
mætir oft þreyttari til vinnu en hann
var undir vikulok. Öfugsnúið – vissu-
lega því þetta nefnist jú helgarfrí.
(Pínu væll – Víkverji gerir sér grein
fyrir því en samt).
x x x
Út frá þessu fór Víkverji að veltafyrir sér hvíldardeginum. Að
halda hvíldardaginn heilagan – hvað
þýðir það? Vissulega gerir Víkverji
sér grein fyrir því að samkvæmt
trúnni eigi að tileinka guði þennan
dag. Tekið skal fram að Víkverji er
ekki sérlega trúað eintak af mann-
veru, en í biblíunni segir að guð hafi
hvílt sig á sjöunda degi eftir að hafa
skapað heiminn.
x x x
Víkverji túlkar þetta sem svo aðeftir allt erfiðið, sem það vissu-
lega hlýtur að hafa verið að skapa
heilan heim, þá eigi að hvíla sig.
Hvíld til að fá orku til að geta haldið
áfram að lifa lífinu.
x x x
En ætli sæmileg hvíld verði nokkuðfyrr en um næstu helgi. Tvær
barnaleiksýningar og matarboð fyr-
irhugað á dagskránni. Því auðvitað
ef litið er á þetta á hinn bóginn þá
fær Víkverji mikla orku út úr því að
hitta yndislega vini og láta skemmta
sér. Hvíld hugsans verður að bíða
betri tíma því einstaklega skemmti-
leg fólk bíður eftir unaðslegri sam-
veru með Víkverja. víkverji@mbl.is
Víkverji
Fel Drottni vegu þína og treyst hon-
um, hann mun vel fyrir sjá.
(Sálmarnir 37:5)
Ármúli 32 | 108 Reykjavík | Sími 568 1888 | www.parketoggolf.is
Brooklyn Pine
Stærð: 8x243x2200mm