Morgunblaðið - 22.03.2014, Síða 46
46 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MARS 2014
María Margrét Jóhannsdóttir
mariamargret@mbl.is
Barnaóperan um Hans og Grétu eft-
ir Engilbert Humperdinck verður
sýnd á morgun í Salnum í Kópavogi.
Óperan er í íslenskri þýðingu Þor-
steins Gylfasonar en það er Óp-
hópurinn sem hefur veg og vanda af
uppsetningunni. Leikstjóri er Maja
Jantar en hún er búsett í Belgíu og
hefur sérhæft sig í óperusýningum
fyrir börn.
Börn eru opnari
„Áherslan á börn kom í raun af
sjálfu sér. Ég hef verið að leikstýra
síðan ég var á tvítugsaldri, fyrst fyr-
ir fullorðna. Svo var ég beðin um að
leikstýra fyrir börn og mér líkaði sú
reynsla mjög vel. Eitt leiddi af öðru
og áður en ég vissi af var ég beðin
um að taka að mér fleiri verkefni
fyrir börn. Eftir að ég eignaðist sjálf
barn áttaði ég mig á hvað það er
mikilvægt að miðla þessum heimi
tónlistar til barna. Það er mikilvægt
að hvetja börn til þess að hlusta á sí-
gilda tónlist og upplifa hana en hún
er ekki alltaf mjög aðgengileg. Þá
hafa börn ekki sama þröskuld til
þess að yfirstíga og við fullorðna
fólkið þegar kemur að sígildri tón-
list. Mér er það minnisstætt þegar
ég leikstýrði mjög nútímalegri sýn-
ingu með hollenskri tónlist og þarna
voru börn ásamt foreldrum sínum.
Foreldrunum fannst tónlistin mjög
tormelt en börnin voru á öðru máli
og útskýrðu allt sem fram hafði farið
fullkomlega fyrir foreldrunum. Það
virðist vera svo að hinir fullorðnu
reyni frekar að láta allt passa innan
ákveðins ramma á meðan börnin eru
opnari og láta ráðast af tilfinn-
ingum,“ segir Jantar.
Með annan fótinn á Íslandi
„Ég fæddist í Hollandi en hef
mestmegnis búið í Belgíu. Maki
minn er frá Íslandi og saman eigum
við eitt barn. Ég er því alltaf með
annan fótinn á Íslandi. Ég hef einnig
verið að vinna að ýmsum verkefnum
hér á landi til dæmis með Angelu
Rawlings en ég er líka radd-
listamaður. Þá er ég einnig að vinna
að kvikmynd með belgískum rithöf-
undi og belgísku kvikmyndatökuliði
en upptökur fara fram á Íslandi.“
Tilviljun réði því að Jantar tók
þetta verkefni að sér.
„Angela þekkti einn meðlima
hópsins og frétti að til stæði að setja
upp Hans og Grétu en ég hafði áður
leikstýrt verkinu í Belgíu. Þeim leist
vel á hugmyndir mínar en í aðlögun-
inni legg ég áherslu á að börnin taki
þátt í sýningunni og fylgi Hans og
Grétu um skóginn. Við notum því tvö
svæði til þess að sýna verkið og
þannig verður upplifun barnanna
áþreifanlegri.“
Ullin í aðalhlutverki
„Til þess að börnin tengdu betur
við verkið þá skiptum við kústunum
út fyrir ull. Þar með kemur sterk
vísun í íslenska hefð auk þess sem
það býður upp á mikla möguleika.
Ullin getur verið skemmtileg við-
fangs. Það er til dæmis hægt að búa
til bolta og lita ullina ýmsum litum.
Skógurinn sem Hans og Gréta týn-
ast í er töfraskógur þar sem trén og
stígarnir eru úr ull. Allt breytist í
eins konar ullar-paradís.“
Engir hnökrar mega vera
Jantar segir það að leikstýra fyrir
börn ekkert svo frábrugðið því að
leikstýra fyrir fullorðna.
„Allt verður að ganga upp og það
mega engir hnökrar vera sem fá fólk
til þess að missa einbeitinguna. Börn
eru harðir gagnrýnendur og taka
eftir öllu. Það verður því að setja
markið hátt. Það er jafnvel meira
krefjandi að skapa list fyrir börn en
að sama skapi góð áskorun.“
Jantar þvertekur fyrir það að erf-
iðara sé að fá börn til þess að fylgj-
ast með óperusýningu en leikriti.
„Máttur tónlistar er mikill. Óperan
hefur notið mikillar velgengni um
allan heim. Upprunalega var hún
ekki ætluð börnum enda þriggja
tíma löng en hún hefur verið stytt
fyrir börn með góðum árangri. Þar
má meira að segja heyra lag sem
hljómar eins og íslenskt lag, Það búa
litlir dvergar, og ég vona að börnin
taki undir þegar það kemur að því.
Það hefur verið yndislegt að vinna
hér og allir hafa lagt hart að sér til
þess að koma sýningunni á fjalirnar,
ég er alsæl,“ segir Jantar.
Tvær sýningar verða á morgun og
tvær á sunnudag eftir viku.
Börnin hörðustu
gagnrýnendurnir
Óp-hópurinn frumsýnir barnaóperuna Hans og Grétu
Morgunblaðið/Þórður
Fjör Ungir sem aldnir ættu að hafa gaman af þessari sýningu að sögn Maju
Jantar, leikstjóra verksins. Íslenska ullin fær meðal annars að njóta sín.
Leikstjórinn Maja Jantar.
Sönghópurinn Hljómeyki hélt sína fyrstu tónleika í Norræna húsinu 23.
mars árið 1974. Á morgun eru því 40 ár liðin frá tónleikunum og mun söng-
hópurinn fagna þeim tímamótum með tónleikum í Norðurljósasal Hörpu
sem hefjast kl. 17.
Hljómeyki hefur frumflutt um 60 tónverk, innlend sem erlend og stór
sem smá og á tónleikunum á morgun verða flutt nokkur þeirra verka sem
hljómað hafa á tónleikum hópsins síðastliðin 40 ár.
Með hljómeyki koma fram Hallveig Rúnarsdóttir söngkona, Stefán Jón
Bernharðsson hornleikari og Hrönn Þráinsdóttir píanóleikari. Stjórnandi
Hljómeykis er Marta Guðrún Halldórsdóttir.
Hljómeyki Sönghópurinn hélt sína fyrstu tónleika 23. mars 1974.
Hljómeyki fagnar fertugsafmæli
Hljóð – Lína er heiti sýningar á
myndverkum eftir Karl Kvaran
(1924-1989) myndlistarmann sem
verður opnuð í Studio Stafni við Ing-
ólfsstræti 6 í dag, laugardag, klukk-
an 15. Það gerir sýninguna óvenju-
lega að jafnframt verða sýnd
forvitnileg hljómflutningstæki frá
sjötta og sjöunda áratugnum, meðal
annars úr eigu Karls.
Þekkt er að listamaðurinn hafði
mikinn áhuga á tónlist og naut þess
að hlýða á hana í bestu mögulegu
hljómgæðum. Sum hljómtækjanna
sem sýnd eru voru talin þau bestu
sem fáanleg voru á sínum tíma en
elsta tækjasamstæðan er frá árinu
1954.
Sýningin í Studio Stafni er opin út mánuðinn, alla daga kl. 14 til 17. Jafn-
framt er áhugasömum boðið í áheyrnartíma, að hlýða á hljómtækin á sýn-
inunni, og eru þeir kl. 20-21.30 á kvöldin virka daga og þarf að panta tíma
og greiða fyrir aðstoð sérfræðings við hlustunina.
Sýna myndverk Karls
Kvaran og fín hljómtæki
Myndlistarmaðurinn Myndverk
Karls Kvaran hafa lengi notið vin-
sælda listunnenda.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Sýning á nýjum verkum eftir mynd-
listarmennina Ingarafn Steinsson
og Unndór Egil Jónsson verður
opnuð í kvöld kl. 20 í galleríinu
Kunstschlager og ber hún titilinn
Polymorph, sem þeir félagar þýða
sem ,,hamskiptung“. „Sameigin-
legur snertiflötur verkanna er upp-
lifanir mannsins í náttúrunni, innan
sem utan, teikningum er varpað
fram sem hlutum í fljótandi rými
sem er einhvers konar órætt kerfi,“
segir m.a. í tilkynningu.
Hamskipti Verk á sýningunni.
Hamskiptungur
í Kunstschlager
Söfn • Setur • Sýningar
LISTASAFN ÍSLANDS
Laugardagur 22. mars kl. 13-15: Málþing um vefnað og hannyrðir fyrr á öldum
Miðvikudagur 26. mars kl. 12: Fyrirlestur fornleifafræðingsins Birgittu Wallace
Föstudagur 28. mars kl. 13-16.30: Fyrirlestrar hönnuða á vegum HönnunarMars
Ástarsaga, HönnunarMars á Torgi
Nýr ratleikur um Silfur Íslands í Bogasal
Betur sjá augu – Ljósmyndun íslenskra kvenna 1872-2013 í Myndasal
Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár - grunnsýning
Safnbúð og kaffihús
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200,
www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn
Opið alla daga nema mánudaga í Þjóðminjasafni 11-17.
Listasafn Reykjanesbæjar
MANNLEGAR VÍDDIR
Sefán Boulter og Stephen L. Stephen
sýna mannamyndir
15. mars – 27. apríl
Bátasafn Gríms Karlssonar
Byggðasafn Reykjanesbæjar
Opið virka daga 12-17,
helgar 13-17.
Aðgangur ókeypis
reykjanesbaer.is/listasafn
FORM, LITUR, LÍKAMI: HÁSPENNA / LÍFSHÆTTA
Magnús Kjartansson 7.3.-11.5. 2014
SUNNUDAGSLEIÐSÖGN KL. 14 í fylgd Halldórs Björns Runólfssonar safnstjóra.
GERSEMAR - DÝR Í BÚRI 8.11. - 11.5. 2013
SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur
KAFFISTOFA - Ljúffengar veitingar
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is
Opið daglega kl. 11-17, lokað mánudaga.
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is
Sýningin, HÚSAFELL ÁSGRÍMS. Opið sunnudaga kl. 14-17.
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is
Sýningin, BÖRN AÐ LEIK. Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17
Shop Show
Samtíma hönnun
Föstudag 28. mars kl. 12:30
Leiðsögn - Petra Lilja
Hnallþóra í sólinni
Dieter Roth
Opið 12-17, fim. 12-21, lokað þri.
www.hafnarborg.is,
sími 585 5790
Aðgangur ókeypis
Verið
velkomin
Opið kl. 12-17. Lokað mánud.
Verslunin Kraum í anddyri
Garðatorg 1, Garðabær
www.honnunarsafn.is
HönnunarMars
ný sýning 26.3. kl.18
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS