Morgunblaðið - 22.03.2014, Side 49
MENNING 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MARS 2014
María Margrét Jóhannsdóttir
mariamargret@mbl.is
Tvær nýjar sýningar verða opnaðar
í Hafnarborg laugardaginn 22.
mars. Shop Show, sýning á nor-
rænni samtímahönnun sem lætur sig
varða umhverfismál og sjálfbærni
verður opnuð á efri hæð safnsins og
sýningin Hnallþóra í sólinni, úrval
prent- og bókverka eftir Dieter
Roth, í Sverrissal.
Umhverfið í fyrirrúmi
Á sýningunni Shop Show mætast
umhverfismál, menning og nýsköp-
un á kröftugan og nýstárlegan hátt.
Sýnd er norræn samtímahönnun þar
sem sjónum er beint að sambandi
framleiðslu og neyslu með áherslu á
siðferðisspurningar er varða um-
hverfi og náttúru. Þar má sjá hönn-
unarvörur eftir framúrskarandi
hönnuði sem setja nú mark sitt á
norræna samtímahönnun. Á meðal
þátttakenda eru íslensku hönnuð-
irnir Róshildur Jónsdóttir og Vík
Prjónsdóttir.
Markmið sýningarinnar er að efla
vitund um gildi sjálfbærni í hönnun
og ábyrgð neytenda þegar vara er
valin.
Hnallþóran hans Dieters Roths
Hnallþóra í sólinni er sýning á
prent- og bókverkum eftir Dieter
Roth sem er sagður hafa haft mikil
áhrif á íslenskt listalíf en hann varði
miklum tíma hér á landi. Roth vann
jöfnum höndum í ólíka miðla; grafík,
höggmyndir, málverk, bókverk og
myndbandslist auk þess sem eftir
hann liggur áhugaverð hönnun.
Sýningin var upphaflega sett upp í
Skaftfelli á Seyðisfirði og er sýning-
arstjóri Björn Roth. Verkin eru
fengin að láni frá Nýlistasafninu og
fjölskyldu Dieter Roth.
Ljósmynd/Helga Steppan
Hvítt í hvítt Shop Show er unnin af Form Design Center í Malmö og ferðast
um Norðurlöndin. Á henni mætast umhverfisumræða og nýsköpun.
Sjálfbærni, neysla
og Hnallþóra
Tvær nýjar sýningar í Hafnarborg
Mesta undrabarn tónlistar-sögunnar réð fyrir ger-vallri dagskrá á vel sótt-um grænum tónleikum
SÍ á fimmtudag. Það átti þó ekki stór-
afmæli, og þannig ekkert ytra tilefni í
fljótu bragði til að hylla Johannes
Chrysostomus Wolfgangus Theophi-
lus Mozart (1756-91) með portrett-
tónleikum nema slík meðferð sé kom-
in í tízku á sinfónískum vettvangi, en
um það er mér ókunnugt. Hitt dylst
fáum að „kraftaverkið sem Drottinn
lét fæðast í Salzburg“ stendur vel
undir þess háttar athygli og betur en
flestir aðrir klassískir meistarar.
Brezkur hljómsveitarstjóri kvölds-
ins var með fremur stuttan feril að
baki en samt þegar kominn með blá-
stimplaða aðild og rétt við Mozart
sem tónlistarstjóri Landestheaters í
Salzburg síðan 2009. Meðferð hans
var almennt sannfærandi og hraða-
völin víðast hvar klassísk í bezta skiln-
ingi, þó að stundum vantaði herzlu-
muninn á ýtrustu nákvæmni og
hrynskerpu í mótun, líkt og oft vill
verða hjá gestastjórnendum við
fyrstu kynni af hljómsveit og húsi.
Engu að síður var margt dável gert.
Áferðin hélzt jafnan streymandi þjál,
og einnig vakti athygli breytt hljóm-
sveitaruppstilling eftir hlé með
kontrabassana aftast að Vínarhætti er
sýndi ófeimni við að láta reyna á óm-
vist Eldborgar.
Balletttónlist Mozarts að franskri
hefð úr „Gluck-endurbættu“ óperu
hans Idomeneo fyrir París 1781
heyrðist nú í fyrsta sinn á íslenzkum
hljómlistarpalli. Það ruglaði sjálfsagt
marga í ríminu að tónleikaskrá lét hjá
líða að tilgreina kaflana innan fyrstu
tveggja þátta þar sem Chaconne [9’]
skiptist í Allegro, Larghetto &
Allegro og Pas seul [4’] í Largo, Alle-
gretto & Più allegro. En þrátt fyrir þá
yfirsjón var sönn ánægja að dillandi
danshrynjum Mozarts, er vísuðu
stundum langt fram veg eða allt að
voldugri snemmrómantík 19. aldar.
Hinn verðugt vinsæli 1. Flautu-
konsert Mozarts í G, K313 frá 1778
var í höndum heimamanns, þ.e. fyrsta
flautuleikara SÍ, Hallfríðar Ólafs-
dóttur. Í rétthugsuðum upprunaanda
seinni áratuga hefði hljóðfærið vísast
átt að vera úr viði, en úr því strok-
sveitin var ekki að sama skapi girni-
strengd var kannski eins gott að not-
ast við síðari málmútgáfu Boehms
svo sólistinn kafnaði ekki í samleik.
Hallfríður stóð sig með afbrigðum
vel og túlkaði meistaraverkið af nærri
annarlegu næmi með svo víðfeðmum
styrkbrigðum að undrum sætti. Heið-
tær hljómurinn var sem íslenzkt lind-
arvatn, mótunin með öllu áreynslu-
laus og inntónunin fullkomin, jafnvel
á hæsta sviði sem virðist því miður
ekki öllum sjálfgefin á þverflautu.
Sömuleiðis báru kadenzur hennar í I.
og II. þætti vott um skemmtilega
sjálfstæða nálgun, og líðandi legató
miðþáttar var dásamlega laust við
alla ofvíbraða væmni. Ef eitthvað var
hefði helzt mátt sakna ögn meiri „ein-
leiksfrekju“ – og aukalags í lokin, er
jafnt frammistaða sem undirtektir
gáfu væntingar um.
Útfarartónlist Frímúrara í c K477,
stutt verk Mozarts [6’] frá 1785, var
sérkennilegt dæmi um hlutfallslega
drungalega hlið þessa a.m.k. á yfir-
borði jafnan heiðskíra tónskálds og
myndaði meitlaða andstæðu milli
konsertsins og „Linz“-sinfóníu hans
nr. 36 í samhliða dúr. Sópaði þar víða
að leik SÍ (með fyrrgreindum fyrir-
vara um stjórnandann) og einna mest
í lokaþættinum er að sumu leyti veit
fram á kontrapunktískt háflug loka-
þáttar „Júpíter“-sinfóníunnar nr. 41 í
sömu tóntegund. Lauk þar vel heppn-
aðri hringferð um ótæmandi tónakra
sígilds snillings.
Morgunblaðið/Ómar
Næmi Hallfríður Ólafsdóttir flutti 1.
Flautukonsert Mozarts í G, K313 frá
1778, af nærri annarlegu næmi.
Kvöldstund með Mozart
Eldborg í Hörpu
Sinfóníutónleikarbbbnn
W.A. Mozart: Ballettónlist úr Idomeneo
(ísl. frumfl.), Flautukonsert nr. 1, Maur-
erische Trauermusik og Sinfónía nr. 36
(Linz). Hallfríður Ólafsdóttir flauta og
Sinfóníuhljómsveit Íslands. Stjórnandi:
Leo Hussain. Fimmtudaginn 20. marz
kl. 19.30.
RÍKARÐUR Ö.
PÁLSSON
TÓNLIST
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
NEEDFORSPEED KL.5:20-8-10:40
NEEDFORSPEEDVIP KL.2-5:20-8-10:40
POMPEII KL.5:40-8-10:20
300:RISEOFANEMPIRE3D KL.8-10:20
SAVINGMR.BANKS KL.5:20
NONSTOP KL.8-10:20
MUPPETSMOSTWANTEDENSTAL2D KL.1-2-3:20-5:30-8
THELEGOMOVIE ÍSLTAL3D KL.1-3:10
THELEGOMOVIE ÍSLTAL2D KL.1:30-3:40-5:50
THELEGOMOVIEENSTAL2D KL.3-10:30
JÓNSIOGRIDDARAREGLAN ÍSLTAL2DKL.1
NEEDFORSPEED KL.8-10:40
POMPEII KL.8
300:RISEOFANEMPIRE2DKL.10:20
MUPPETSMOSTWANTEDENSTAL2DKL.2-4:30-5:35
HR.PÍBODYOGSÉRMANN ÍSLTAL3DKL.1:30
THELEGOMOVIE ÍSLTAL2DKL.3:30
KEFLAVÍK
AKUREYRI
NEEDFORSPEED KL.8-10:40
MUPPETSMOSTWANTEDENSTAL2DKL.12:30-3-5:30
POMPEII KL.8
300:RISEOFANEMPIRE2DKL.10:20
GAMLINGINN KL.5:30
THELEGOMOVIE ÍSLTAL2DKL.1-3:20
KRINGLUNNI NÚMERUÐ SÆTI
NEEDFORSPEED KL.8-10:30
MUPPETSMOSTWANTEDENSTAL2DKL.1-3:10-5:30
300:RISEOFANEMPIRE2DKL.10:40
NONSTOP KL.5:40-10:40
GAMLINGINN KL.3:10-5:30-8
12YEARSASLAVE KL. 8
THELEGOMOVIE ÍSLTAL3DKL. 1-3:20
FROSINN ÍSLTAL2D KL. 1
NEEDFORSPEED KL.5:15-8-10:20
MUPPETSMOSTWANTEDENSTAL2DKL.1-3:10-5:30-8
POMPEII KL.5:40-8-10:20
300:RISEOFANEMPIRE3DKL.8-10:45
NONSTOP KL.10:30
GAMLINGINN KL.5:35
THELEGOMOVIE ÍSLTAL2DKL.1-3:30
HR.PÍBODYOGSÉRMANN ÍSLTAL2DKL.1-3:10
FROSINN ÍSLTAL2D KL.1-3:20
SÝNDMEÐ ÍSLENSKUOG ENSKU TALI
Í 2D OG 3D
VARIETY
ENTERTAINMENT WEEKLY
SPARBÍÓ
MERKTAR MEÐ GRÆNU EÐA APPELSÍNUGULU KR.750 Á APPELSÍNUGULT OG KR. 1000 Á GRÆNT
NEW YORK MAGAZINE
SKEMMTILEGRI EN
NOKKRARHAMFARIRÆTTU
AÐVERA
RICKY GERVAIS TY BURRELL TINA FEYAARON PAUL ÚR BREAKING BAD
FLOTTASTI BÍLAHASAR SEM
ÞÚ HEFUR SÉÐ
M
IND
-BL
OW
ING
ACT
ION
IT
WA
SFA
NTA
STIC
! IT
IST
HE
BES
TRA
CIN
GM
OV
IEE
VER
...
FRÁBÆRMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
VILLAGE VOICE
THE PLAYLIST
12
12
12
12
L
L
L
L
L
ÍSL
TAL
16
ÞRÆLGÓÐ SPENNUMYND
MEÐ KEVIN COSTNER
OG HINUM ÍSLENSKA
TÓMASI LEMARQUIS
FRÁ ÞEIM SÖMU OG
FÆRÐU OKKUR TAKEN
FORSÝNING
G.D.Ó. - MBL
-bara lúxus sími 553 2075
www.laugarasbio.is
Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
THE BAG MAN Sýnd kl. 10:25
HNETURÁNIÐ 3D Sýnd kl. 2
HNETURÁNIÐ 2D Sýnd kl. 4
3 DAYS TO KILL Sýnd kl. 8 - 10:20
HR.PÍBODY & SÉRMANNS 3D Sýnd kl. 6
HR.PÍBODY & SÉRMANNS 2D Sýnd kl. 2 - 4
THE MONUMENTS MEN Sýnd kl. 10:10
RIDE ALONG Sýnd kl. 6 - 8
DALLAS BUYERS CLUB Sýnd kl. 5:45 - 8
THE LEGO MOVIE 2D Sýnd kl. 1:45 - 3:45