Morgunblaðið - 22.03.2014, Page 52
LAUGARDAGUR 22. MARS 81. DAGUR ÁRSINS 2014
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 745 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Villibörn fundust í París
2. Hinn eftirlýsti lést árið 2009
3. Vinningur kom fæðingu af stað
4. Hrapaði í hafið og fannst aldrei
Bandaríska hljómsveitin Neutral
Milk Hotel heldur tónleika í Hörpu í
ágúst og verða þeir síðustu tónleik-
arnir í Evrópuferð hljómsveitarinnar. Í
þeirri ferð hefur hljómsveitin leikið
lög af plötunni In the Aeroplane Over
the Sea sem kom út fyrir sextán
árum og er talin ein af lykilplötum
tíunda áratugarins í flokki „indie“
popptónlistar. Miðasala á tónleikana
hefst í apríl.
Neutral Milk Hotel
leikur í Hörpu
Guðjón Friðriks-
son sagnfræðing-
ur mun klukkan 11
á sunnudags-
morgun leggja upp
frá Hannesarholti
við Grundarstíg í
gönguferð um
Þingholtin og tala
um hús og fólk sem þar bjó.
Guðjón fræðir fólk
á göngu um Þingholt
Taka þátt í keppninni
Stora Daldansen
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðan 3-8 síðdegis, en 8-13 austast. Lítilsháttar él norðantil, en
bjart með köflum sunnantil. Lægir meira og kólnar annað kvöld.
Á sunnudag Suðlæg eða breytileg átt, víða 3-10 m/s. Lítilsháttar él á V-verðu landinu og
með N-ströndinni, annars bjart á köflum. Frost 0 til 8 stig, mest í innsveitum fyrir norðan.
Á mánudag Suðaustan 13-20 m/s og rigning, en snjókoma í fyrstu fyrir norðan. Hægari
seinnipartinn og rigning SA-til, annars úrkomulítið. Hiti 1 til 7 stig.
Það verður hreinn úrslitaleikur hjá
Val og Snæfelli í undanúrslitum Dom-
inos-deildar kvenna í körfuknattleik
og fer sá leikur fram í Stykkishólmi.
Valskonur náðu að knýja fram odda-
leik í gær með því að vinna sigur í
fjórðu viðureign liðanna í Vodefone-
höllinni en sigurliðið mætir Haukum í
úrslitaeinvígi um Íslandsmeistaratit-
ilinn. »2
Valskonur náðu að knýja
fram oddaleik
Stjörnumenn gerðu góða
ferð til Keflavíkur í gær-
kvöld þegar liðin áttust
við í fyrsta leiknum í átta
liða úrslitum í Dominos-
deild karla í körfuknatt-
leik. Í Njarðvík fögnuðu
heimamenn hins vegar
sigri gegn Haukum í
fyrstu rimmu liðanna en
vinna þarf þrjá leik til að
komast í undanúrslitin.
»2-3
Stjarnan og
Njarðvík unnu
Íslenska kvennalandsliðið í íshokkíi
mætir Tyrkjum í fyrsta leiknum í 2.
deild heimsmeistaramótsins í
Skautahöllinni í Laugardal á mánu-
dagskvöldið. Ófærðin á Norðurlandi
setti strik í undirbúninginn því stór
hluti liðsins var veðurtepptur á Ak-
ureyri í gær og komst
ekki suður til æfinga.
Fyrirliðinn Anna
Sonja Ágústsdóttir
segir það þó
ekkert vanda-
mál því liðið
mæti
óvenjuvel
undirbúið
til leiks í
þetta mót.
»4
Mæta óvenjuvel
undirbúnar til leiks
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Bæði framhaldsskólanemendur og
-kennarar í verkfalli nýta sér sam-
félagsmiðlana á ýmsan hátt til að
eiga samskipti í verkfalli framhalds-
skólakennara sem hófst í byrjun vik-
unnar. Á samskiptasíðunni Twitter
skiptast bæði kennarar og nem-
endur á skoðunum undir merkinu
#verkfall. Skiptar skoðanir virðast
um ágæti verkfallsins, þannig virðist
það leggjast vel í suma nemendur
sem taka auknum frítíma opnum
örmum en aðrir nemendur ávíta þá
fyrir kæruleysi og spyrja hvers
vegna þeir séu eiginlega í skóla fyrst
þeir fagni verkfalli.
Nemendur Menntaskólans í
Reykjavík hafa komið sér upp Face-
book-síðu undir heitinu Verkfalls-
vikan í MR og þar segir m.a. að „það
þýði samt ekkert að fara í frí“. Á síð-
unni eru upplýsingar um námshópa
sem eru starfandi í skólanum þessa
dagana og þá eru þar líka tilkynn-
ingar um stoðhópa, þar sem nem-
endur geta komið saman og stutt
hver annan í námi.
Hvatning að læra með öðrum
„Við höfum öll verið að hjálpast
að, það er algengt að fólk mæti upp í
skóla á milli kl. níu og tíu á morgn-
ana. Við höfum gert þetta síðan
verkfallið byrjaði. Það eru kenn-
ararnir sem eru í verkfalli, ekki við,“
segir Lilja Dögg Gunnarsdóttir, for-
maður Framtíðarinnar, annars af
tveimur nemendafélögum í MR.
Að sögn Lilju Daggar settust for-
svarsmenn nemendafélaganna sam-
an niður og skipulögðu námið strax á
fyrsta degi verkfalls og bjuggu til
tvo hópa á Facebook fyrir náttúru-
fræði- og málabraut. „Nemendur
geta sett þar inn glósur og vikuáætl-
anir og þannig deilt með öðrum og
búið til vinnuhópa. Það er svo mikil
hvatning í því að læra með öðrum.“
Lilja Dögg segir fremur fáa hafa
mætt fyrsta daginn, en fjölgað hafi í
hópnum jafnt og þétt er líða tók á
vikuna. Hún segir nemendur á loka-
ári líklega flesta. „En yngri nem-
endur koma líka upp í skóla til að
læra.“
Sjálf hyggur Lilja Dögg á útskrift
í vor, áformað er að stúdentspróf
hefjist eftir um tvær vikur og hún
segist ekki hafa heyrt af neinum
breytingum þar á. „Við sem erum að
fara að útskrifast höfum auðvitað
áhyggjur. Það eru t.d. rétt um þrjár
vikur þangað til við ætlum að dimitt-
era. En við vonum öll það besta.“
Við erum ekki í verkfalli
MR-ingar koma
saman og læra í
verkfallinu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Standa saman „Við höfum öll verið að hjálpast að,“ segir Lilja Dögg Gísladóttir, formaður Framtíðarinnar.
MR Forsvarsmenn nemendafélaganna komu saman og skipulögðu námið.
Framhaldsskólakennarar eru
ekki síður iðnir en nemendur
þeirra við að nýta sér sam-
skiptamiðlana á verkfalls-
tímum.
Á Facebook-síðu verkfalls-
miðstöðvar Félags framhalds-
skólakennara eru upplýsingar
um hvenær miðstöðvarnar eru
opnar. Þar eru líka skipulagðir
viðburðir eins og gönguferðir
og greint frá framvindu verk-
fallsvörslu.
Skipulagt á sam-
skiptamiðlum
VERKFALLIÐ Á FACEBOOK
Fjórir nemendur Listdansskóla Ís-
lands taka þátt í ballettsólókeppninni
Stora Daldansen í Falun í Svíþjóð
sem hófst 20. mars og lýkur í dag en
á henni keppa bestu ballettdans-
nemar Norður- og Eystrasaltslanda.
Íslensku keppendurnir eru þær Birta
Thorarensen, Helga Kristín Ingólfs-
dóttir, Kristín Marja Ómarsdóttir og
Sara Þrastardóttir.