Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.03.2000, Síða 19

Læknablaðið - 15.03.2000, Síða 19
FRÆÐIGREINAR / MAGALÆKNINGAR dóma í efri meltingarvegi og hafa rannsóknir rennt sterkari stoðum undir hugmyndir manna um þátt hennar í sjúkdómum í efri meltingarvegi. Nú er talið að H. pylori sýkingar tengist tilurð allt að 95% greindra skeifugarnarsára (ulcus duodeni) og um 90% magasára (ulcus ventriculi) (3). Einnig hefur verið sýnt fram á að eftir upprætingu á H. pylori fækkar endurkomum (relapse) ætisára (ulcus pepti- cum) marktækt (3-5). Auk tengsla H. pylori við ætisár í efri meltingarvegi hefur bakterían verið tengd við maga- og skeifugarnarbólgur (gastritis, duodenitis), magakrabbamein og hugsanlega meltingarónot án sára (non ulcer dyspepsia). Pessi tengsl eru hins vegar ekki eins skýr og tengsl bakteríunnar við ætisár. Þó virðast H. pylori sýkingar hafa nokkuð sterk tengsl við tilurð non-cardia kirtlakrabbamein (adenocarci- noma) (6) og lággráðu (low grade) MALT (Mucosa Associated Lymphoid Hssue) eitlafrumuæxli (lymph- oma) þar sem sýnt hefur verið fram á bata hjá sjúk- lingum í kjölfar upprætingar á H. pylori sýkingu (7- 9). Tengslin við meltingarónot án sára hafa hins vegar verið mjög umdeild og niðurstöður rannsókna mis- vísandi (10-14). Fram til þessa hefur verið deilt um það hverjir þeirra sem hafa virka H. pylori sýkingu skuli fá upp- rætingarmeðferð. Faraldsfræðilegar rannsóknir benda til þess að um 30% íbúa hins vestræna heims hafi mótefni gegn II. pylori bakteríunni (2). Talið er að þetta hlutfall sé jafnvel enn hærra hér á landi og liggi nærri 40% (15). I ljósi þessara talna virðist ógjörning- ur að meðhöndla alla sem sýkst hafa. Allir eru nú sammála um að meðhöndla þá sem hafa ætisár og eru H. pylori jákvæðir svo og sjúklinga með langvarandi magabólgur (chronic gastritis) og lággráðu MALT eitlafrumuæxli (16). Ekki eru þekktar tölur um algengi virkra H. pylori sýkinga á meðal íslensku þjóðarinnar, hvorki í þýð- inu öllu né meðal einstaklinga með einkenni frá efri meltingarvegi. Engar framskyggnar athuganir hafa heldur verið gerðar á því, hvaða ástæður séu algeng- astar fyrir tilvísunum til holsjárskoðana hjá melting- arsérfræðingum né heldur hversu vel þessar ástæður falli að þeim niðurstöðum sem fást við holsjárskoð- anir. Gerð hefur verið afturskyggn rannsókn á ábendingum og niðurstöðum magaspeglana, sem náði að hluta til tímabils áður en H. pylori varð þekktur meinvaldur (17). Tilgangur þeirrar framskyggnu rannsóknar sem hér er greint frá var að svara þremur spurningum: I. Hversu stór hluti þeirra sjúklinga sem vísað er til holsjárskoðunar á efri meltingarvegi vegna ein- kenna hafa virka H. pylori sýkingu í magaslím- húð? 2. Hvernig er samsvörun milli ábendingar tilvísandi læknis og niðurstöðu holsjárskoðunar? 3. í hve stórum hluta sjúklinga fer saman vefræn sjúkdómsgreining og virk H. pylori sýking? Efniviður og aðferðir Rannsakaðir voru 562 sjúklingar sem vísað var til hol- sjárskoðunar á efri meltingarvegi á speglunareiningu meltingarsjúkdómadeildar St. Jósefsspítala í Hafnarfirði á árunum 1996 og 1997. Sjúklingarnir voru á aldrinum sjö til 90 ára og meðalaldur var 52,4 ár (staðalfrávik 18,2 ár). Hópurinn skiptist þannig að karlar voru 247 (44%) og konur 315 (56%). Karlamir voru á aldrinum sjö til 90 ára, meðalaldur 49,6 ár (staðalfrávik 18,6 ár) en konurnar voru á aldrinum 12 til 90 ára og meðalaldur þeirra var 54,5 ár (staðalfrá- vik 17,6 ár). Alls vom 2047 magaspeglanir fram- kvæmdar á speglunareiningu meltingarsjúkdóma- deildar St. Jósefsspítala í Hafnarfirði á því tímabili sem rannsóknin fór fram. Astæður þess að ekki var tekið stærra hlutfall (27%) magaspeglana með í þessa rannsókn liggja fyrst og fremst í tvennu. Annars vegar því að sjúklingar voru teknir í rannsóknina reglu- bundið á nokkmm tímabilum en ekki samfellt og hins vegar voru þær speglanir sem gerðar voru á sjúkling- um sem vitað var að fengið höfðu upprætingarmeð- ferð við H. pylori ekki teknar með við gagnaöflun. Virk sýking er þegar sýnt er fram á að sjúklingur hefur bakteríuna í magaslímhúð. Skilyrði fyrir þátttöku í rannsókninni var að sjúk- lingur væri með einkenni frá efri meltingarvegi. Með einkennum er átt við hvert það ástand sem leiddi til þess að sjúklingur gekkst undir holsjárskoðun á efri meltingarvegi. Sjúklingar með einkenni, sem gengust undir rannsókn í því skyni að fylgja eftir upprætingar- meðferð við H. pylori, voru eins og áður segir útilok- aðir við gagnaöflun. Við speglanirnar voru notuð Olympus GIF - 100 (Olympus Optical Co. (Europa) GMBH, Hamborg, Þýskalandi) og Olympus GIF -130 (Olympus Optical Co. (Europa) GMBH, Hamborg, Þýskalandi) spegl- anatæki. Fyrir rannsókn fengu sjúklingarnir kokdeyfingu með lídókaín-úða (Xylocaine®, Astra, Södertálje, Svíþjóð). Lyfjaforgjöf var gefin í bláæð, ýmist petidín (petidín LÍ, Lyfjaverslun Islands, Reykjavík, Island) 50 mg og/eða díazepam (Stesolid Novum, Dumex- Alpharma A/S, Kaupmannahöfn, Danmörk) 5-10 mg. Skoðaður var efri meltingarvegur frá speldislág (vallecula epiglottica) niður í fallhluta skeifugarnar (pars descendens duodeni). Við skoðanirnar voru tekin vefjasýni frá magahelli (antrum ventriculi) og magabol (corpus ventriculi) og gerð CLO (Camp- hylobacter Like Organism) rannsókn (CLOtest™, Delta West Pty Ltd, V-Ástralíu) til greiningar á virkri H. pylori sýkingu. Nægjanlegt var að önnur CLO rannsóknin væri jákvæð til þess að sjúklingurinn væri úrskurðaður H. pylori jákvæður. Þegar um var að ræða sjúklinga sem voru að nota (eða höfðu notað síðustu vikuna fyrir rannsóknina) lyf sem geta haft hemjandi áhrif á úreasa virkni bakteríunnar (pró- tónudæluhemla (proton pump inhibitors-PPI) og/eða Læknablaðið 2000/86 169
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.