Læknablaðið - 15.03.2000, Blaðsíða 40
virkar.hratt
• viö bráðum verk og bólgu
• verkjastillandi ínnan hálftíma
Voltaren Rapid (Noartis 930159)
TÖFLUR; M 01 A B 05 R, E
Hver tafla inniheldur: Diclofenacum INN, kaliumsalt, 50 mg.
Eiginleikar: Lyfið inniheldur kalíumsalt af díklófenaki, sem hefur sterk bólgueyðandi,
hitalækkandi og verkjastillandi áhrif. Lyfið hamlar myndun prostaglandína i
likamanum. Aðgengi lyfsins er nálægt 50%. Lyfið frásogast hratt og blóðþéttni nær
hámarki að meðaltali 20-60 mín. eftir inntöku Helmingunartimi í blóði er 1-2 klst.
Próteinbinding i blóði er 99,7%. Lyfið skilst út sem umbrotsefni, um 60% i þvagi og
40% í saur.
Ábendingar: Skammtímameðferð í eftirfarandi bráðatilfellum: verkir og bólga eftir
slys og aðgerðir; tiðaverkir, bólgur í eggjaleiðurum, vöðvagigt, bakverkir; sem
hjálparmeðferð við alvarlegum sýkingum i eyra, nefi eða hálsi.
Frábendingar: Sár i maga eða skeifugörn, ofnæmi fyrir díklófenaki eða öðrum
bólgueyðandi lyfjum sem ekki eru sterar (NSAID).
Meðganga og brjóstagjöf: Lyfið ætti ekki að nota á meðgöngu nema brýna nauðsyn
beri til og þá aðeins í lægsta skammti sem hefur virkni. Þetta á sérstaklega við um
siðustu 3 mánuði meðgöngu. Við inntöku 50 mg skammta á 8 klst. fresti skilst virka
efnið út í brjóstamjólk, en í það litlu magni, að ekki er talið að það hafi áhrif á
barnið.
Aukaverkanir: Algengar (>1%): Óþægindi i meltingarvegi, höfuðverkur, svimi, útbrot,
hækkun á transaminösum i blóði.
Sjaldgæfar (0,1-1%): Sár í maga eða skeifugörn, blæðing i meltingarvegi, truflun á
nýrnastarfsemi, lifrarbólga, ofnæmisviðbrögð.
Mjög sjaldgæfar (<0,1%): Brisbólga, himnulík þrengsli í þörmum, mengisbólga
(aseptic meningitis), lungnabólga, regnbogaroðsótt (erythema multiforme), Steven
Johnson heilkenni, Lyell's heilkenni, roði í húð, purpuri, húðblæðingar, blóðmein
(blood dyscrasias), truflanir i hjarta- og æðakerfi, sjón- eða skyntruflanir.
Milliverkanir: Lyfið getur aukið blóðþéttni litíums og dígoxins. Pað getur hindrað
virkni þvagræsilyfja. Samtímis gjöf annarra bólgueyðandi lyfja af þessum flokki getur
aukið tiðni aukaverkana. Lyfið virðist hvorki hafa áhrif á lyfjahvörf
blóðþynningarlyfja né sykursýkislyfja, en rétt er að sýna aðgát ef slik lyf eru gefin
samtimis diklófenaki. Varlega verður að fara ef NSAID eru gefin innan við 24 klst fyrir
eða eftir gjöf metótrexats þar sem þéttni metótrexats i blóði getur hækkað og leitt til
aukinna eituráhrifa lyfsins. Áhrif NSAID á prostaglandín í nýrum getur aukið
nýrnaskemmandi áhrif ciklósporíns. í einstaka tilvikum hafa komið fram krampar, sem
gætu stafað af samtimis gjöf kínólóna og NSAID.
Varúð: Varúðar skal gæta hjá sjúklingum með einkenni/sögu um sjúkdóma í
meltingarvegi, astma, truflun í starfsemi lifrar, hjarta eða nýrna. NSAID geta dulið
sýkingar eða hindrað samloðun blóðflagna tímabundið. Porfýría. Varúðar skal gæta
við gjöf lyfsins hjá öldruðum. Einnig skal gæta varúðar hjá sjúklingum sem hafa skert
utanfrumurúmmál. Truflun á starfsemi miðtaugakerfis getur haft áhrif á hæfni
manna til stjórnunar ökutækja og véla. Við langtímameðferð þarf að fylgjast með
lifrarstarfsemi og blóðhag.
Skammtastærðir handa fullorðnum: 75-150 mg/dag gefið i 2-3 skömmtum Við
tiðaverkjum allt að 200 mg á dag.
Ekki er mælt með hærri dagsskammti en 200 mg.
Skammtastærðir handa börnum: Lyfið er ekki ætlað börnum.
Pakkningar: Töflur 50 mg: 10 stk. (þynnupakkað); 30 stk. (þynnupakkað),100 stk.
(þynnupakkað)
Verð: (1.10. 1999): 10 stk:462. 30 stk.; 1254,100 STK, 3108
Umboðsaðili á íslandi: Thorarensen Lyf, Vatnagarðar 18, 104 Reykjavík. Simi: 531 7000