Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.03.2000, Page 52

Læknablaðið - 15.03.2000, Page 52
Eitt samfallsbrot í hrygg eykur hættuna á mjaðmarbroti um 480% hjá konum á aldrinum 60-79 ára4 .1 I FOSAMAX®* (ALENDRÓNAT, MSD) getur komið í veg fyrir allar tegundir beinbrota vegna beinþynningar123** • Marktækt (P<0,05) minni hætta á öllum tegundum beinbrota vegna beinþynningar123 • Marktæk (P< 0,001) aukning í BMD eftir 3 mánuði1 1 JPols HAP Felsenberg D Hanlev DA et al Results of the FOSIT study. Osteoporosis Intemational 1999; 9, (5); 461-68.2.)Black DM. et al„ Randomised trial of effect of alendronate on risk of fracture in women with existing vertebral fractures. The Lancet 1996; 348 (9041 >153541.3.) Cummíngs S.R. et.al., Effect of Alendronate on Risk of Fracture in Women With Low Bone Density but Without Vertebral Fractures. JAMA, dec.1998;280;2077-82.4.)Lauritzen JB, Hoftebrud og ekstem beskyttelse, Konsensus-rapport, 1995, Statens Sundhedsvidenskabelige Forskningsrád og Dansk Sygehus Institut. * Skráð vörumerki Merck & Co., Inc., Whitehouse Station.N.J. USA. ** I prospektive, randomiserede, dobbeltblinde, placebokontrollerede studier. FOSAMAX MSD, 940093 Töflur; M 05 BA 04 Virkt innihaldsefni: Acidum alendronatum 10 mg. Ábendingar FOSAMAX skal aðeins nota við beinþynningu hjá konum eftir tíðahvörf. Frábendingar; Sjúkdómar í vélinda, sem seinka magatæmingu eins og þrengsli eða velindislokakrampi. Vangeta til að standa eða sitja upprétt í a.m.k. 30 mínútur. Ofnæmi fyrir einhverju af innihaldsefnum lyfsins. Lágt kalsíum í blóði. Ómeðhöndlaðar truflanir á kalsíum- og steinefnaefnaskiptunum. Meðganga og brjóstagjöf: F0SAMAX hefur hvorki verið rannsakað hjá þunguðum konum né konum meö börn á brjósti, en F0SAMAX er ekki ætlað konum á barneignaaldri. Varúð: FOSAMAX getur valdið staðbundinni ertingu á slímhimnu í efri hluta meltingarfæranna. Aukaverk- anir í vélinda, eins og vélindabólga, vélindasár og fleiður hafa verið skráðar hjá sjúklingum, sem hafa verið meöhöndlaðir með F0SAMAX. í nokkrum tilfellum hafa þær verið alvarlegar og þörf verið á sjúkrahúsinnlögn. Þess vegna á að fylgjast með sérhverju merki eða einkennum, sem benda til hugsanlegra áhrifa á vélinda, og sjúklingarnir skulu fá leiðbeiningar um að hætta meðferð með FOSAMAX, og leita læknis, ef þeir fá kyngingartregðu.verk við kyngingu, verk aft- an bringubeins, nýjan brjóstsviða eða versnun á brjóstsviða. Hættan á að fá alvarlegar aukaverkanir í vélinda virðist meiri hjá sjúklingum, sem taka ekki F0SAMAX samkvæmtfyrirmælum eða sem halda áfram að taka FOSAMAX eftir að hafa fengið einkenni, sem gefa vísbendingu um ertingu í vélinda. Mjög mikilvægt er, að sjúklingum séu gefnar fullkomnar upplýsingar um skömmtun og að þeir skilji þær. Sjúklingarnir skulu upplýstir um, að ef þeir fylgja ekki leiðbeining- unum, sé hætta á vandamálum í vélinda meiri. Vegna hugsanlegra ertandi áhrifa FOSAMAX á slímhimnu efri meltingarvegar og möguleika á versnun sjúkdóms, sem er til staðar, á að sýna varkárni, þegar FOSAMAX er gefið sjúklingum með kvilla í efri hluta meltingarvegar, eins og kyngingartregðu, sjúkdóma í vélinda, magabólgu, skeifugarnarbólgu eða magasár. Ekki er mælt með FOSAMAX handa sjúklingum með kreatínklerans < 35 ml/mín. Lágt kalsíum í blóði á að meðhöndla áöur en meðferð með FOSAMAX er hafin. Aðrar truflanir í steinefnaefnaskiptunum (eins og t.d. D-vítamín skortur) á að meðhöndla vel. Aukaverkanir FOSAMAX þolist yfirleitt vel. Aukaverkanir hafa oftast verið vægar og skammvinnar og er venjulega ekki þörf á að hætta meðferð vegna þeirra. í tveimur stórum klínískum rannsóknum sem stóðu í 3 ár og voru nánast eins í uppsetningu, þoldist FOSAMAX og sýndarlyf sambærilega. Algengar(>}%): Melt- ingarfæri: Kviðverkir, meltingaróþægindi, hægðatregða, niðurgangur, uppþemba, bakflæði magasýru, vélindisfleiður, kyngingartregða, aukinn vindgangur, tjöruhægðir. Stoðkerfi: Verkir í stoðkerfi (beinum, vöðvum eða liðum). Miðtauga- kerfi: Höfuðverkur. Sjaldgæfar (0,1-1%): Almennt: Útbrot, hörundsroði. Meltingarfæri: Ógleði, uppköst, vélindisbólga, vélindisfleiður, sár á vélinda, þrengslamyndun í vélinda. Skilningarvit: Æðahjúpsbólga. Mjög sjaldgæfar (<0,1%): Al- mennt: Ofnæmisviðbrögö, þ.m.t. ofsakláði og ofsabjúgur. Meltingarfæri: Sáramyndun í munni og koki. Maga eða skeifugarnarsár, sem sum hafa verið alvarleg og með eftirstöövum, orsakasamband hefur þó ekki verið staðfest við töku F0SAMAX. í klínískum rannsóknum hefur sést einkennalaus, væg, skammvinn lækkun á kalsíum og fosfati í sermi hjá sjúklingum sem tóku F0SAMAX. Milliverkanir: F0SAMAX á ekki að gefa samtímis kalsíumbætiefnum, sýrubindandi lyfjum og öörum lyfjum til inntöku, þar sem þau geta haft áhrif á frásog af alendrónati. Þess vegna á sjúklingurinn að bíða í a.m.k. hálfa klukkustind eftir inntöku á F0SAMAX áður en önnur lyf eru tekin inn. Frásog af bisfosfónötum minnkar mikið þegar fæðu er neytt samtímis inntöku þeirra. Skammtastærðir handa fullorðnum: 10 mg einu sinni á dag. F0SAMAX skal taka a.m.k. 1/2 klst. Áður en matar eða drykkjar er fyrst neytt að morgni eða lyf tekin inn, þar sem sumir drykkir (þ.m.t. ölkelduvatn), matur og sum lyf geta líklega minnkað frásog á alendrónati. Sjúklingar mega ekki leggjast fyrr en 1/2 klst. eftir lyfjainntöku. Mikilvægt er, að sjúklingar með beinþynningu fái nægjanlegt kalsíum í fæði. Eng- ar skammtabreytingar eru nauðsynlegar fyrir aldraða né fyrir sjúklinga með væga skerðingu á nýrnastarfsemi. Ekki er ráðlegt að gefa F0SAMAX handa sjúklingum með alvar- lega truflun á nýrnastarfsemi. Skammtastærðir handa börnum: F0SAMAX er ekki ætlað börnum. Pakkningar, verð (febrúar^OOO): 28 stk. 4522 kr. 98 stk. 13407 kr. Afgreiðslutil- högun: Lyfseðilsskylda. Greiðsluþáttaka: E. Handhafi markaðsleyfis: Merck Sharp & Dohme B.V., Haarlem, Holland Umboðsaðili á íslandi: Farmasía ehf, Síðumúla 32,108 Reykjavík. M MERCK SHARP& DOHME J/t FARMASÍA ehf. - byggir upp bein alendronat

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.