Læknablaðið - 15.03.2000, Síða 67
UMRÆÐA & FRÉTTIR / GÖMUL LÆKNISRÁÐ
Tjarnarplásturinn
Hallgerður
Gísladóttir
skrifar
Þegar spurningaskrá um gömul læknisráð var
send út árið 1994 minntust nokkrir heimildarmenn úr
Eyjafjarðarsýslu og V-ísafjarðarsýslu á plástur, sem
hefði verið notaður þar við ýmiss konar kvillum, svo
sem gigt og ígerð. Þegar betur var að gáð reyndist
plásturinn vera af sömu rót á báðum stöðum og má
rekja hann til Þórunnar Hjörleifsdóttur ljósmóður (f.
1844) sem var langdvölum á Tjörn í Svarfaðardal, en
við þann bæ kenndu margir plásturinn og kölluðu
Tjarnarplástur. I kvæði til Þórunnar eftir Jón Björns-
son er meðal annars þetta sem vísar til lækninga
hennar:
verkin þín í veikra hreysum
varpa þó á hjartans haf
líknarinnar göfga, fagra geislastaf
Pórunn Hjörleifsdóttir
ásamt fjórum börnum
sínum. Við lilið hennar
situr Angantýr en fyrir
aftan, talið frá vinstri:
Guðlaug, Björg og Nanna
(yngri). Myndin erfengin
úr bók Kristjáns Eldjárns
um Arngrím málara og er
hún I eigu fjölskyldu
Kristjáns.
Faðir Þórunnar, séra Hjörleifur Guttormsson var
prestur á Skinnastað í Öxarfirði og seinna á Tjöm en
móðir hennar Guðlaug Björnsdóttir ljósmóðir austan
úr Hróarstungu sem hafði orð á sér fyrir að vera
læknir góður eins og dóttirin. Þórunn var gift Arn-
grími Gíslasyni málara og bjuggu þau í Gullbringu,
bæ sem enn stendur í brekkunni fyrir ofan bæinn á
Tjörn og er málarastofa Arngríms þar, nú friðuð.
Afkomendur þeirra héldu síðan áfram að búa til
plásturinn eftir uppskrift Þórunnar. Hér að neðan
eru skráð munnmæli um Tjarnarplásturinn úr gögn-
um þjóðháttadeildar, en vel kann að vera að heimild-
ir um hann leynist víðar.
Einn af heimildarmönn-
um þjóðháttadeildar um
þetta efni er raunar
barnabarn Arngríms og
Þórunnar, Ingunn Ang-
antýsdóttir nú á tíræðis-
aldri, búsett á Þingeyri.
Faðir hennar, Angantýr
Arngrímsson, flutti til
Þingeyrar og breiddi út
hróður plástursins vestra
en sumir þar nefna hann
eftir Angantý:
„Angantýsplástur var
mjög vel látinn, hann var
minnir mig þannig að
fletja mátti efni hans út
með fingrunum, það var
svart og seigt og minnti á
malbik,“ segir dýrfirskur
heimildarmaður.
Annar sem alinn var
upp á Flateyri, en reyndar ættaður úr Svarfaðardal,
segir:
„En svo var eitt lyf, sem hafði alveg sérstöðu og
var mikill leyndardómur og hvísl þegar um það var
rætt en það var Tjarnarplásturinn. Mamma geymdi
hann í sérstakri skúffu í „servantinum“ sínum og
þetta var kolsvart eins og lakkrís og vel um búið. Ef
tók að grafa í einhverjum var gripið til Tjarnarplást-
ursins. Þá var tekinn svolítill biti af þessum svarta
klumpi og honum velt í lófa og mýkt svipað og börn
gera við leir. Þegar plásturinn var hæfilega mjúkur
var hann lagður yfir kýlið og svo bundið vel um. Það
var segin saga að máttur þessa plásturs var slíkur, að
aldrei varð neitt úr meininu en það dróst saman og
eftir sat ljós nabbi, sem þornaði og hvarf. Þegar ég
spurði sem barn um þennan plástur var mér sagt, að
það væri aldrei nema einn í ættinni, sem kynni upp-
skriftina og honum bar að skila henni til yngri ætt-
ingja með þeim orðum, að segja engum frá því hvern-
ig plásturinn væri búinn til.“
Ingunn Angantýsdóttir var níu ára gömul þegar
Þórunn amma hennar dó hálfáttræð árið 1918. Hún
man vel eftir því þegar þegar amma hennar var að
sjóða efnablönduna í plásturinn og eins eftir því
þegar faðir hennar var að búa hann til. Ekki kunni
Ingunn uppskriftina að plástrinum en vissi að í hon-
um hafði verið kamfóra, bómolía og menja. Ingunn
hafði heyrt að plásturinn kæmi upphaflega frá Hól-
um fyrir langalöngu og hefði fyrst verið kallaður
Hólaplástur. Hann hefði síðan gengið niður í beinan
ættlegg. Faðir hennar hefði gert mikið af því að búa
til plástra handa sjómönnum með fingurmein, en
fiskimenn fengu oft ígerð í fingur. Ýmsar sögur eru til
um lækningar fyrir tilstuðlan plástursins, til dæmis
segir Ingunn að móðir hennar, Elín Tómasdóttir frá
Völlum (f. 1879) hafi verið flutt dauðvona sem ung-
lingur, greind með berkla, heim af Akureyrarspítala
til að deyja heima. Móðir hennar tók það til ráðs að
leita til Þórunnar Hjörleifsdóttur sem lagði plástur-
inn góða við síðuna á henni, þar sem hún var slæm af
kvölum. Og eftir nokkra daga opnuðust undir honum
tvö sár og út löðraði gröftur. Þetta reyndist sem sagt
hafa verið brjósthimnubólga sem læknaðist upp úr
þessu og seinna giftist Elín Angantý syni Þórunnar.
Þórunn og móðir Elínar suðu grasasmyrsl til að
græða síðusár Elínar en merki um þau sáust alla tíð
og sagði Ingunn að þessi saga hefði síðast verið rifjuð
upp þegar hún var að þvo móður sinni, háaldraðri, en
þá blöstu örin við. Elín hafði því óbilandi trú á plástr-
inum og notaði hann mikið. Angantýr hætti að gera
plástra fyrir fólk eftir að pensilín fór að verða algengt
Læknablaðið 2000/86 211