Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.03.2000, Side 78

Læknablaðið - 15.03.2000, Side 78
LAUSAR STÖÐUR FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ Á AKUREYRI Staða yfirlæknis á meinafræðideild Laus er til umsóknar staða yfirlæknis á meinafræðideild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri. Umsækjandi skal hafa fullgild réttindi í líffærameinafræði. Á deildinni eru unnin öll venjuleg störf í líffærameinafræði auk réttarkrufninga. Þátttaka í kennslu heilbrigðisstétta er áskilin og áhersla lögð á rannsóknavinnu. Vaktskylda fylgir starfinu. Meinafræðideild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri er eina meinafræðideildin á landinu utan höfuðborgarsvæðis- ins. Á allra næstu árum er áætlað að aðstaða deildarinnar verði bætt og hún flytji í nýtt húsnæði. Um fullt starf er að ræða og veitist staðan frá 1. nóvember 2000. Nánari upplýsingar veitir Þorgeir Þorgeirsson yfirlæknir í síma 463 0224 Staða sérfræðings í myndgreiningu Laus er til umsóknar staða sérfræðings við myndgreiningardeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri. Umsækjandi skal hafa fullgild réttindi í myndgreiningu. Æskilegt er að umsækjandi hafi einnig góða reynslu í myndgreiningu með segulómun. Starfinu fylgir vaktskylda, þátttaka í kennslu heilbrigðisstétta og rannsóknavinna. Við deildina vinna um 20 starfsmenn og fjöldi rannsókna hefur verið um og yfir 22 þúsund síðustu árin. Á deildinni eru auk hefðbundinna rannsókna framkvæmdar tölvusneiðmyndatökur, æðarannsóknir og ómskoðanir ásamt brjóstamyndatöku (hópskoðun og klínískar rannsóknir) og beinþéttnimælingum. Hafinn er undirbúningur að um- fangsmikilli endurnýjun tækjabúnaðar (tölvusneiðmyndatæki og fleira) auk fjárfestinga í nýjum rannsóknasviðum (ísótópar, segulómun, stafrænn (digital) skyggnibúnaður og fleira) sem mun standa yfir á næstu árum og því kjörið tækifæri fyrir hæfan einstakling til að taka þátt í framtíðaruppbyggingu deildarinnar. Starfshlutfall er samkomulag. Staðan veitist frá 1. september 2000. Nánari upplýsingar veitir Þedro Riba forstöðulæknir í síma 463 0260. Staða sérfræðings í fæðinga- og kvensjúkdómalækningum Laus er til umsóknar staða sérfræðings í fæðinga- og kvensjúkdómalækningum við kvennadeild Fjórðungssjúkra- hússins á Akureyri. Umsækjandi skal hafa fullgild réttindi í fæðinga- og kvensjúkdómalækningum. Starfinu fylgir vaktskylda á kvennadeild, þátttaka í kennslu heilbrigðisstétta og þjálfun aðstoðar- og deildarlækna, auk þátttöku í rannsóknavinnu. Starfsskylda er við heilbrigðisstofnanir á Norðurlandi. Stöðuhlutfall er samkomulag. Staðan veitist frá 1. júní 2000 eða eftir samkomulagi. Nánari upplýsingar veitir Vilhjálmur Andrésson forstöðulæknir í síma 463 0130. Staða sérfræðings í barnalækningum Laus er til umsóknar staða sérfræðings í barnalækningum við barnadeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri. Um- sækjandi skal hafa fullgild réttindi í barnalækningum og eftir atvikum einhverja undirsérgrein þeirra. Barnadeild FSA, sem er eina barnadeild landsins utan Reykjavíkur, mun á yfirstandandi ári flytja í nýtt og rúmgott húsnæði, sem hannað hefur verið með þarfir barna í huga. Deildin veitir alla almenna barnalæknisþjónustu, auk þjónustu við veika nýbura í samvinnu við vökudeild Landspítalans. Þá eru á deildinni framkvæmdar þroskaskoð- V. 220 Læknablaðið 2000/86

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.