Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.05.2000, Qupperneq 26

Læknablaðið - 15.05.2000, Qupperneq 26
FRÆÐIGREINAR / KRABBAMEINSRANNSÓKNIR Ágrip erinda og veggspjalda Frá ráðstefnu á vegum Samtaka um krabbameinsrannsóknir á íslandi, haldin á laeknadögum 21. og 22. janúar 2000 ERINDI E 01 Sómatískar erfðaefnisbreytingar í ættlægum og sporadískum brjóstaæxlum Sigurður Ingvarsson, Bjarnveig Ingibjörg Sigbjörnsdóttir, Bjarni Agnar Agnarsson, Rósa Björk Barkardóttir, Valgarður Egilsson Frá Rannsóknastofu HÍ í meinafræði Við höfum sýnt fram á að ákveðnar litningabreytingar í brjóstaæxl- um einstaklinga með kímlínubreytingar í BRCAl eða BRCA2 genum eru mun tíðari en í sporadískum bijóstaæxlum. Brcal og Brca2 prótín taka þátt í viðgerðarferli á tvíþátta DNA skemmdum og skýrir þetta uppsöfnun litningabreytinga ef um stökkbreytingar er að ræða í prótínunum. Einnig kemur fram munur á litninga- breytingum í æxlum einstaklinga með BRCAl eða BRCA2 kím- línubreytingar. Efniviðurinn, rannsakaður með 111 microsatellite erfðamörkum dreifðum um erfðamengið, var 49 brjóstaæxli frá einstaklingum með BRCA2 999del5 kímlínubreytingu í saman- burði við 152 sporadísk bijóstaæxli. Sérstök áhersla var lögð á litn- ingasvæði 3p, 6q og 8p. í öllum tilfellum greindust tíðari úrfellingar í BRCA2 999del5 æxlum í samanburði við sporadísk æxli, eða 66%/29% á 3p, 75%/37% á 6q og 78%/50% á 8p. Mynstur breyt- inga á litningunum var frábrugðið í BRCA2 999del5 æxlum og sporadískum æxlum, það er almennt náðu breytingamar til stærri svæða á litningunum í BRCA2 999del5 æxlum. Úrfellingar á litn- ingasvæðum 3p, 6q og 8p greindust oft í sömu æxlum, ásamt öðrum einkennandi úrfellingum, og almennt hafa þessi æxli óstöðugt erfðamengi, bæði æxli frá BRCA2 999del5 einstaklingum og spora- dísk æxli. Lifun sjúklinga með úrfellingar á 3p, 6q eða 8p var styttri en sjúklinga án úrfellinganna. Með fjölbreytugreiningu var í öllum tilfellum sýnt fram á óháða áhættuþætti; RR=3,6 fyrir 3p; 2,0 fyrir 6q og 1,9 fyrir 8p. Við ályktum að litningasvæði 3p, 6q og 8p beri æxlisbæligen og að skert starfsemi þeirra hafi áhrif á æxlisvöxt í brjóstum, einkum í einstaklingum sem bera BRCA2 999del5 kím- línubreytinguna. E 02 Skimun fyrir BRCA1 og BRCA2 kímlínubreytingum í dönskum brjóstakrabbameinssjúklingum Jón Þór Bergþórsson'2, Winther K', Fenger K', Niebuhr A', Klausen S3, Borg A4, Nielsen KW’, HarboeTL', Rósa Björk Barkardóttir2, Ejlertsen B5, Niebuhr E' Frá "Dpt. Medical Genetics, Institute for Medical Biochemistry & Genetics, Copenhagen University, Denmark, "Rannsóknastofu HÍ í meinafræði, "Dpt. of Anatomy & Pathology, Herlev Hospital, Denmark, 4,Dpt. of Oncology, University Hospital of Lund, Sweden, "Danish Breast Cancer Cooperative Group (DBCG), Denmark Arfgengt brjóstakrabbamein hefur aðallega verið tengt tveimur genum, BRCAl og BRCA2, og er talið að kímlínubreytingar í þessum genum skýri um 3-10% af öllum brjóstakrabbameinstilfell- um sem greinast á Vesturlöndum. I þessari rannsókn var erfðaefni úr 119 dönskum konum sem greindar voru ungar (<45 ára) með ill- kynja bijóstakrabbamein skimað fyrir stökkbreytingum í BRCAl og BRCA2. Allir sjúklingarnir höfðu greinst með fleiri en eitt frumæxli sem auk lágs greiningaraldurs er einkenni ættlægs brjóstakrabbameins. Tilgangur rannsóknarinnar var að meta tíðni og breidd (spectrum) stökkbreytinga í þessum sérvalda efniviði og kanna tengsl þeirra við meingerð og fjölskyldusögu um krabba- mein. Fjörutíu og níu mismunandi basabreytingar fundust og af þeim voru 19 líklegar til að vera sjúkdómsvaldandi. í sjúklinga- hópnum voru 24 arfberar slíkra breytinga (20%). Prettán voru með stökkbreytingu í BRCAl (11%) og 11 með BRCA2 stökkbreyt- ingu (9%). Lítill munur virtist vera á tíðni breytinga í hópi sjúklinga með krabbamein í báðum brjóstum (bilateral) og hins vegar kon- um með fleiri en eitt frumæxli í sama bijósti (multicentric). Bijósta- og eggjastokkakrabbamein í fyrsta stigs ættingjum reyndist áber- andi bundið við arfbera. Tvær stökkbreytingar fundust í fleiri en einum sjúklingi og voru þær báðar í BRCAl geninu. Önnur þess- ara breytinga (del2954C) hefur einnig fundist í hárri tíðni í Svíþjóð en hin (C1697R) er bundin dönskum fjölskyldum. í framhaldinu er fyrirhugað að skima fyrir breytingunum sem fundust í þessari rann- sókn í stærri hópi ungra brjóstakrabbameinssjúklinga (n=1400) til þess að fá betra mat á tíðni og athuga samband mismunandi stökkbreytinga við meingerðar- og meðferðarþætti í Danmörku. E 03 Genetic defects in lobular breast cancer Chen Huiping, JR Sigurgeirsdóttir, Jón Gunnlaugur Jónasson, Bjarni Agnar Agnarsson, Bjarnveig Ingibjörg Sigbjörnsdóttir, Jónína Þ. Jóhannsdóttir, Valgarður Egilsson, Sigurður Ingvarsson Frá Rannsóknastofu HÍ í meinafræði We have studied a set of 40 human lobular breast cancers for loss of heterozygosity (LOH) at various chromosome locations and for mutations in the coding region plus flanking intron sequences of the E-cadherin gene. We have also investigated 55 lobular breast tumours for deletions at the FHIT gene and for the level of Fhit expression by immunohistochemical detection. We found a high frequency of LOH (100%) at 16q21-22.1. A significantly higher level of LOH was detected in ductal breast tumours at chromo- some arms lp, 3p, 9p, llq, 13q and 18q compared to lobular breast tumours. Furthermore, we found a significant association between LOH at 16q containing E-cadherin locus and lobular histological type. Six different somatic mutations were detected in the E-cad- herin gene, of which three were insertion, two deletions and one splice site mutation. Mutations were found in combination with LOH of wild type E-cadherin locus and loss or reduced E-cadherin expression detected by immunohistochemistry. Deletions within the FHIT gene have been found in 16% of lobular breast tumours. \ 350 Læknablaðið 2000/86
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.