Læknablaðið - 15.05.2000, Page 43
UMRÆÐA & FRÉTTIR / NAFNGIFTIR
Veiklað „Infirmarium"
Sennilega fer best á því að aldrei verði með fullu
ljóst hver stakk upp á að nota einhvers konar latínu í
merki hins nýja háskólasjúkrahúss. Það má hins veg-
ar koma fram að háskólahlutinn, það er að segja
læknadeild Háskóla íslands með öllum námsbraut-
um sínum, var ekki spurð álits. Árið 1997 var skipt
yfir í nýja alþjóðaskráningu sjúkdóma, ICD-10, þar
sem annað hvort er notað landsmálið, íslenska á ís-
landi, eða alþjóðalæknisfræðimálið, enska. Latína er
ekki lengur alþjóðalæknisfræðimál enda er latínu-
kunnátta flestra stúdenta úr menntaskóla nú næsta
líti! og villur í notkun latínu, þegar menn reyna það,
eru tíðar. Því skýtur það skökku við að setja Infirm-
arium academicum inn í nafngift spítalans. Á ensku
er spítalinn látinn heita University Hospital og ef eitt-
hvað erlent átti að standa nálægt merkinu, hefðu það
átt að vera ensku orðin. Merkið er einnig ágætt eitt
og sér án nokkurra sérstakra stafa ofan við það.
Spítalar urðu ekki til fyrr en á alllangt var liðið á
miðaldir og tengdust háskólum sem kennslustofnanir
á 19. öld. Aðeins tiltölulega fáir spítalar í hinum eldri
borgum Stóra-Bretlands (en ekki höfuðborginni,
Lundúnum) bera heitið Infirmary. Þá er oftar en
ekki um að ræða spítala sem stofnaðir voru um eða
fyrir miðja 19. öldina, yfirleitt til að aðstoða þá sem
minna máttu sín í þjóðfélaginu. Öll nýrri sjúkrahús í
Bretlandi, hvað þá í öðrum Evrópulöndum eða vest-
anhafs, heita einfaldlega hospital. Að kalla hið nýja
háskólasjúkrahús Inftrmarium er því mjög gamal-
dags og ekki í takt við það sem nú er gert annars stað-
ar. Það verður ekki betra við að hnýta við það aca-
demicum. Aðeins eitt sjúkrahús veit ég um á Norður-
löndum sem kennt er við akademíu. Það er í Uppsöl-
um og kallast á sænsku Akademiska sjukhuset og
Academic Hospital á ensku. Þar, í hinum elsta há-
skólabæ á Norðurlöndum, er hefð fyrir því að kenna
ýmislegt fleira í bæjarlífinu við akademíuna.
I minni latnesku orðabók (Cassel’s New Latin
Dictionary, 1964), er enska orðið hospital þýtt með
valetudinarium, það er að segja staður þar sem
mönnum batnar. Orðið infirmatio er til í orðabókinni
og þýðir a weakening, a refuting, invalidating. Infirm-
itas er einnig til og þýðir weakness, feebleness, mental
weakness, instability, fickleness. Sögnin infirmo þýðir
to weaken, og sá sem er infirmus, sem einnig er til í
kvenkyni og hvorugkyni, er weak, feeble, timorous.
Infirmarium er ekki nefnt þar sem orð. í latneskri
orðabók Kristins Ármannssonar segir að sjúkrahús
megi einnig þýða með orðinu nosocomium. Cassel
segir að university skuli þýða með academia og það
LANDSPITALI
HÁSKÓLASJÍJKRAHÚS
sé síðlatneska, en Universitas er einnig fullgilt eins og
allir vita (Universitas Islandiae).
Ég hef að auki leitað í svotil öllum latneskum
orðabókum Háskólabókasafns, enskum, norrænum,
frönskum og þýskum. í öllum orðabókum um klass-
íska latínu, þar með talið Oxford Latin Dictionary frá
1968, Forcellinis Totis Latinitatis Lexicon frá 1865
(sex bindi), Thesaurus Linguae Latinae frá 1943 og
jafnvel í bók með það ágæta heiti Latin for the Illiter-
ate frá 1996, finnst þetta orð ekki. í J.F. Niermeyers
Mediae Latinitatis Lexicon frá 1976 finnst orðið in-
firmaria (kvenkynsorð) í merkingunni munkaspítali
(monastic infirmary) í texta frá 1130 og orðið in-
firmitorium frá um 1170, bæði komin úr frönskum
króníkum (infirmerie d'un monastére). Þá finnst í því
stóra sjö binda riti Glossarium Mediae et Infimce
Latinitatis eftir D.P. Carpenter (París, 1844) orðið
infirmatorium frá 1219 og infirmatoria frá 1345 og
infirmerium er einnig nefnt í merkingunni klaustur.
Loks í Revised Medieval Latin Wordlist frá 1965 er
getið um hið nýja latneska heiti háskólasjúkrahússins
í Reykjavík, infirmarium, og vitnað í rit frá 12. öld og
frá um 1400. Þar er infirmitorium jafngilt. Svo virðist
sem nýja íslensk-latneska orðið infirmarium frá árinu
2000, samhljóða tiltölulega sjaldséðri orðmynd frá
miðöldum, geti verið búið til upp úr hinu enska in-
firmary, sem aftur er komið á miðöldum úr frönsku
(infirmerie). Með svipuðum hætti er librarium skylt
library. í Oxford English Dictionary, 2nd Ed., 1989
(20 bindi), er þessi uppruni enska orðsins áréttaður
og orðið sagt eiga upprunalega við „the sick-quarters
in a religious establishment, for the treatment of sick
and wounded“ en hafi á 18. öld verið „the common
name for a public (provincial) hospital".
Ef nota ætti eignarfallsmyndina af orðinu háskóli
(iacademia) með infirmaríinu, sýnist mér ennfremur
Reynir Tómas
Geirsson
Höfundur er prófessor við
Kvennadeild Landspítala -
háskólasjúkrahúss við
Hringbraut, 101 Reykjavík.
Læknablaðið 2000/86 363