Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.05.2000, Qupperneq 43

Læknablaðið - 15.05.2000, Qupperneq 43
UMRÆÐA & FRÉTTIR / NAFNGIFTIR Veiklað „Infirmarium" Sennilega fer best á því að aldrei verði með fullu ljóst hver stakk upp á að nota einhvers konar latínu í merki hins nýja háskólasjúkrahúss. Það má hins veg- ar koma fram að háskólahlutinn, það er að segja læknadeild Háskóla íslands með öllum námsbraut- um sínum, var ekki spurð álits. Árið 1997 var skipt yfir í nýja alþjóðaskráningu sjúkdóma, ICD-10, þar sem annað hvort er notað landsmálið, íslenska á ís- landi, eða alþjóðalæknisfræðimálið, enska. Latína er ekki lengur alþjóðalæknisfræðimál enda er latínu- kunnátta flestra stúdenta úr menntaskóla nú næsta líti! og villur í notkun latínu, þegar menn reyna það, eru tíðar. Því skýtur það skökku við að setja Infirm- arium academicum inn í nafngift spítalans. Á ensku er spítalinn látinn heita University Hospital og ef eitt- hvað erlent átti að standa nálægt merkinu, hefðu það átt að vera ensku orðin. Merkið er einnig ágætt eitt og sér án nokkurra sérstakra stafa ofan við það. Spítalar urðu ekki til fyrr en á alllangt var liðið á miðaldir og tengdust háskólum sem kennslustofnanir á 19. öld. Aðeins tiltölulega fáir spítalar í hinum eldri borgum Stóra-Bretlands (en ekki höfuðborginni, Lundúnum) bera heitið Infirmary. Þá er oftar en ekki um að ræða spítala sem stofnaðir voru um eða fyrir miðja 19. öldina, yfirleitt til að aðstoða þá sem minna máttu sín í þjóðfélaginu. Öll nýrri sjúkrahús í Bretlandi, hvað þá í öðrum Evrópulöndum eða vest- anhafs, heita einfaldlega hospital. Að kalla hið nýja háskólasjúkrahús Inftrmarium er því mjög gamal- dags og ekki í takt við það sem nú er gert annars stað- ar. Það verður ekki betra við að hnýta við það aca- demicum. Aðeins eitt sjúkrahús veit ég um á Norður- löndum sem kennt er við akademíu. Það er í Uppsöl- um og kallast á sænsku Akademiska sjukhuset og Academic Hospital á ensku. Þar, í hinum elsta há- skólabæ á Norðurlöndum, er hefð fyrir því að kenna ýmislegt fleira í bæjarlífinu við akademíuna. I minni latnesku orðabók (Cassel’s New Latin Dictionary, 1964), er enska orðið hospital þýtt með valetudinarium, það er að segja staður þar sem mönnum batnar. Orðið infirmatio er til í orðabókinni og þýðir a weakening, a refuting, invalidating. Infirm- itas er einnig til og þýðir weakness, feebleness, mental weakness, instability, fickleness. Sögnin infirmo þýðir to weaken, og sá sem er infirmus, sem einnig er til í kvenkyni og hvorugkyni, er weak, feeble, timorous. Infirmarium er ekki nefnt þar sem orð. í latneskri orðabók Kristins Ármannssonar segir að sjúkrahús megi einnig þýða með orðinu nosocomium. Cassel segir að university skuli þýða með academia og það LANDSPITALI HÁSKÓLASJÍJKRAHÚS sé síðlatneska, en Universitas er einnig fullgilt eins og allir vita (Universitas Islandiae). Ég hef að auki leitað í svotil öllum latneskum orðabókum Háskólabókasafns, enskum, norrænum, frönskum og þýskum. í öllum orðabókum um klass- íska latínu, þar með talið Oxford Latin Dictionary frá 1968, Forcellinis Totis Latinitatis Lexicon frá 1865 (sex bindi), Thesaurus Linguae Latinae frá 1943 og jafnvel í bók með það ágæta heiti Latin for the Illiter- ate frá 1996, finnst þetta orð ekki. í J.F. Niermeyers Mediae Latinitatis Lexicon frá 1976 finnst orðið in- firmaria (kvenkynsorð) í merkingunni munkaspítali (monastic infirmary) í texta frá 1130 og orðið in- firmitorium frá um 1170, bæði komin úr frönskum króníkum (infirmerie d'un monastére). Þá finnst í því stóra sjö binda riti Glossarium Mediae et Infimce Latinitatis eftir D.P. Carpenter (París, 1844) orðið infirmatorium frá 1219 og infirmatoria frá 1345 og infirmerium er einnig nefnt í merkingunni klaustur. Loks í Revised Medieval Latin Wordlist frá 1965 er getið um hið nýja latneska heiti háskólasjúkrahússins í Reykjavík, infirmarium, og vitnað í rit frá 12. öld og frá um 1400. Þar er infirmitorium jafngilt. Svo virðist sem nýja íslensk-latneska orðið infirmarium frá árinu 2000, samhljóða tiltölulega sjaldséðri orðmynd frá miðöldum, geti verið búið til upp úr hinu enska in- firmary, sem aftur er komið á miðöldum úr frönsku (infirmerie). Með svipuðum hætti er librarium skylt library. í Oxford English Dictionary, 2nd Ed., 1989 (20 bindi), er þessi uppruni enska orðsins áréttaður og orðið sagt eiga upprunalega við „the sick-quarters in a religious establishment, for the treatment of sick and wounded“ en hafi á 18. öld verið „the common name for a public (provincial) hospital". Ef nota ætti eignarfallsmyndina af orðinu háskóli (iacademia) með infirmaríinu, sýnist mér ennfremur Reynir Tómas Geirsson Höfundur er prófessor við Kvennadeild Landspítala - háskólasjúkrahúss við Hringbraut, 101 Reykjavík. Læknablaðið 2000/86 363
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.