Læknablaðið - 15.01.2001, Blaðsíða 76
DIDRONATE*
bifosfónat• etídrónat
¥IÐ BEINÞYNNINGU
• Eykur beíeimassa
• Fækkar beinbrrotum
ProaerScGomble
ö
Thorarensen Lyf
Vatnagarðar 18 • 104 Reykjavík • Sími 530 7100
Eiginlcikar: Etídrónat er bífosfónat
og líkist pýrófosfati að byggingu.
Áhrif þess á beinmyndun eru flókin,
en vitað er að það binst hýdroxýapatít
kristöllum og hindrar stækkun þeirra.
Aðal áhrifin eru minnkun á bein-
þynnihgu. Aðgengi lyfsins eftir
inntöku er lágt eða aðeins um 3% og
er enn minna ef lyfið er tekið með
mat. Um það bil 50% útskilst með
þvagi innan 24 klst., en hluti þess
binst í beinum, en þaðan losnar það
mjög hægt. Engin lyíjaumbrot hafa
sannast.
Ábendingar: Beinþynning eftir
tíðahvörf þar sem hætta er talin á
samfallsbrotum í hrygg.
Frábendingar: Osteomalacia, nýma-
bilun.
Meðganga og brjóstagjöf: Lyfið er
ekki ætlað konum á barneignaraldri
en í dýratilraunum hafa sést ýmis
konar gallar í beinmyndun fóstra, en
þýðing þessa er óviss fyrir menn. Ekki
er vitað hvort lyfið útskilst í brjósta-
mjólk.
Aukaverkanir: Algengar(> 1%):
Meltingarfœri: Ógleði, niðurgangur.
Sjaldgœfar (0,1-1%): Húð: Ofnæmis-
bjúgur, kláði, útbrot. Mjög sjaldgœfar
(<0,1%): Blóð: Agranulocytosis,
fækkun á hvftum blóðkornum,
pancytopenia. Öndunarfœri: Versnun
á astma, bólga í tungu. Stoðkerfi:
Liðverkir. Taugakerfi: Úttauga-
einkenni. Annað: Hárlos, höfuðverkur,
sinadráttur.
Skammtastærðir handa fullorðn-
um: Lyfið á að taka einu sinni á dag,
að minnsta kosti 1 klst. fyrir mat eða
að minnsta kostí 2 klst. efúr mat. Lyfið
má taka með vatni eða ávaxtasafa, en
varast ber vökva með miklu kalkinni-
haldi s.s. mjólk. Ráðlagður skammtur
er 2 töflur (400 mg) á dag í 14 daga,
síðan er gefið kalk í inntöku 500 mg
næstu 76 daga og er þá bytjað á nýjan
leik.
Skamnitastærðir handa börnurn:
Lyfið er ekki ætlað bömum.
Innihaldsefni: Hver tafla inniheldur:
Etídronatum INN, dínatríumsalt, 200
mg.
Pakkningar og hámarksverð í smá-
sölu frá 1.7.2000: 28 stk.: 5.083 kr.;
60 stk.: 8.978 kr.
Greiðslufyrirkomulag: Elli- og
örorkulífeyrisþegar greiða að hámarki
1.250 kr. fyrir lyfið og aðrir að
hámarki 4.500 kr.
Afgreiðslutilhögun: Lyfið er lyf-
seðilsskylt. Heimilt er að ávísa lyfinu
til 100 daga notkunar í senn.
J