Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.2001, Blaðsíða 79

Læknablaðið - 15.01.2001, Blaðsíða 79
UMRÆÐA & FRÉTTIR / FARALDSFRÆÐI 3 Faraldsfræði í dag p<0,05! Orsakasamband? María Heimisdóttir Netfang: mariah@decode.is Hagnýt túlkun læknisfræðilegra rannsókna beinist iðulega að því að meta hvort um orsaka- samband sé að ræða. Leiðir meðferð A í raun til árangurs? Auka hárlitarefni í raun hættu á krabba- meini? Orsakasamband er hins vegar ekki alltaf augljóst og þarf að meta aðrar mögulegar skýringar á niðurstöðunum. I síðustu dálkum hefur verið rætt um tölfræðilegan marktækileika niðurstaðna. Tölfræði- legur marktækileiki er nauðsynleg forsenda orsaka- sambands en er ekki nægileg sönnun þess. Til að kanna hvort um orsakasamband geti verið að ræða þarf einnig að útiloka aðrar „falskar“ skýringar á niðurstöðunum, það er skekkju (bias) og röskun (confounding). Tölfræðilegur marktækileiki er mælikvarði á hve líklegt er að ákveðnar niðurstöður stafi af tilviljun einni saman og þannig sé ekki um raunverulegt sam- band, hvað þá orsakasamband, að ræða. Auk tilviljana, geta skekkja og röskun einnig leitt til niðurstaðna þar sem atriði A og B virðast tengd hvoru öðru þó í reynd sé ekkert (eða takmarkað) samband þar á milli. Slíkt er nefnt sýndarsamband (spurious association). Talað er um skekkju þegar hönnun rannsóknar eða aðferðir við gagnasöfnun (eða gagnavinnslu) leiða til kerfisbundinnar villu í samanburði hópa þannig að niðurstöður rannsóknar- innar endurspegla ekki það ástand sem til staðar er í þýðinu almennt. Sem dæmi um skekkju má hugsa sér ferilrannsókn á sambandi sjúkdóms og umhverfis- þáttar. Ef beitt er næmari aðferðum til að greina sjúkdóminn meðal þeirra sem hafa verið útsettir fyrir umhverfisþættinum en hinna sem ekki er svo ástatt um, er líklegt að fleiri tilfelli greinist í fyrri hópnum, þó í raun sé sjúkdómurinn jafnalgengur í báðum hóp- unum. Röskun lýsir hins vegar brenglun á sambandi (áhættu)þátta og sjúkdóma (eða annarra útkoma, svo sem einkenna). Röskunin (eða brenglunin) stafar af áhrifum þriðja þáttarins, sem er tengdur áhættu- þættinum en er jafnframt tengdur sjúkdómnum og er í raun oft sjálfstæður áhættuþáttur fyrir sjúkdóminn. Tengsl tóbaksreykinga, gulra fingra og lungna- krabbameins eru oft notuð sem dæmi um röskun. Gulir fingur eru mun algengari meðal einstaklinga með lungnakrabbamein en meðal heilbrigðra. Gulir fingur eru þó ekki orsök krabbans en eru nátengdir sterkasta áhættuþættinum, sígarettureykingum. Ekki er víst að um orsakasamband sé að ræða þó tilviljun og sýndarsamband (skekkja og röskun) hafi verið útilokuð sem skýringar á niðurstöðunum. Utilokun þessara þátta bendir aðeins til þess að niðurstöðurnar séu „sannar“, það er að þær endur- spegli hið raunverulega samband til dæmis um- hverfisþáttar og sjúkdóms í úrtakinu. Pað samband getur þó átt sér aðrar skýringar en þær að umhverfis- þátturinn leiði til sjúkdómsins, til dæmis getur verið að umhverfisþátturinn komi iðulega fyrir með sjúk- dómum (correlation) án þess að valda honum. Fjöl- mörg skilmerki (criteria) eru notuð til að meta líkur á orsakasambandi en þau helstu tengjast styrk tengslanna, líffræðilegum grundvelh og samræman- leika við aðrar niðurstöður. Með styrk tengsla er átt við stærð eða umfang niðurstaðna, svo sem hlutfallslegrar áhættu. Sem dæmi má nefna vel hannaða og framkvæmda feril- rannsókn (sýndarsamband ólíklegt) sem sýnir töl- fræðilega marktæka tíföldun á hlutfallslegri áhættu. Parna er orsakasamband mun líklegra en ef aðeins væri um tvöföldun á hlutfallslegri áhættu að ræða. Með líffræðilegum grundvelli orsakasambands er átt við að þekktir líffræðilegir ferlar renni stoðum undir samband, til dæmis umhverfisþáttar og sjúk- dóms. Sem dæmi má nefna að þekkt sé viðtæki á frumuhimni sem umhverfisþátturinn geti haft áhrif á og stuðlað að sjúkdómi. Samræmanleiki við niðurstöður annarra rann- sókna er mjög sterk vísbending um orsakasamband í faraldsfræðilegum rannsóknum. Niðurstöður faralds- fræðilegra rannsókna sem allar ber að sama brunni, þrátt fyrir að vera framkvæmdar á mismunandi tíma, á mismunandi hátt, undir ólíkum kringumstæðum og á ólíkum hópum, gefa mjög sterklega til kynna að um raunveruleg orsakatengsl sé að ræða. Slík fjölbreytni í aðferðafræði og aðstæðum gerir niðurstöðurnar (sem heild) að nokkru leyti sambærilegar þeim er byggjast á tilraunum og styður þannig orsaka- samband. Önnur skilmerki sem notuð eru til að meta hvort um orsakasamband geti verið að ræða eru til dæmis tímaröð og samband milli skammta og svörunar (dose-response relationship). Það að orsök komi á undan afleiðingu er nú ekki mikil speki en hins vegar er mikilvægt að hafa í huga að ákveðinn tími þarf að líða frá tilkomu orsakar og þar til afleiðingin kemur fram. Umhverfismengun í síðustu viku er ekki líkleg til að vera orsök langvinns sjúkdóms sem greinist í dag. Samband milli skammta og svörunar getur einnig verið mjög sterk vísbending um orsakatengsl. Aukin dánartíðni vegna hjartasjúkdóma eftir því sem fólk reykir meira styður þannig að um orsakatengsl sé að ræða. Læknablaðið 2001/87 79
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.