Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.2001, Blaðsíða 77

Læknablaðið - 15.01.2001, Blaðsíða 77
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ÍÐORÐASAFN LÆKNA 129 Ýmislegt smálegt Jóhann Heiðar Jóhannsson Netfang: johannhj@landspitali.is Dægradvölin Dægradvölin í síðasta pistli var úr Læknablaði Guðmundar Hannessonar, prófessors, frá árunum 1902-1904. Blaðið handskrifaði hann og „hektograferaði“ og sendi síðan læknum á Norður- og Austurlandi, en Guðmundur var þá starfandi á Akureyri. I nóvemberblaði sínu árið 1903 fjallar hann um „hæmaturi" með fyrrgreindum hætti. Dægradvöl IV er heldur yngri. Spurt er um höfund hnitmiðaðra athugasemda um klæðnað manna. Dægradvöl IV „Yfirleitt á að haga klæðnaði í hverju landi eptir landsháttum, en ekki eptir útlendri tízku.“ „Klæði geta ekki sjálf hitað líkamann. Pau gjöra einungis að hindra líkams- hitann að rjúka burt. Þau fataefni eru því hlýjust, sem leiða illa hita.“ „Ullarnœrföt œttu allir að nota hér á landi bæði vetur og sumar.“ „í stórhríðum á veturnar er áríðandi að klæða sig svo, að ekki næði eða snjói inn á mann beran.“ „Sérstaklega þarf að vanda útbúnað um háls, hendur og fætur, því þar næðir mann helst.“ „Ef kvennfólk fer út í stórhríð og ætlar sér lengri leið, er sjálfsagt að það klæði sig í öllum aðalatriðum eins og karlmenn. Góðar brækur eru á við mörg pils.“ I Þetta sinnið er ætlunin aö segja frá ýmsum minni háttar verkefnum sem borist hafa á undanförnum vikum, ýmist í tölvupósti, símleiðis eða munnlega á förnum vegi. Flest hafa verið leyst með því að fletta upp í íðorðasafninu og fyrirspyrjendur hafa fengið svörin jafnóðum. Sjálfnæmi Spurt var um íslenskt heiti á autoininuinc disorder og autoimniune disease. Fyrirspyrjanda var ljóst að Iðorðasafn lækna notar heitið sjálfsnœmi um autoininiunity en fannst heitið sjálfsnœmissjúkdómur nokkuð stirðlegt. Undirritaður sagðist sammála og sjálfur sleppa „s“-inu. Vísað var í þýðingu Orða- nefndar á alþjóðlegu sjúkdómaheitunum, ICD-10, frá 1996, sjálfnæmissjúkdómur. Þar er þýðingin á disorder einnig samræmd svo autoimmune disorder verður sjálfnæmisröskun. Hér á röskun vel við þó ekki sé það jafn ásættanlegt í ýmsum öðrum heitum, svo sem þunglyndisröskun og kvíðaröskun (sjá pistil 115, Lbl 1999;85:835). Vöðvabólga í tölvuskeyti var spurt um enskt heiti á því fyrirbæri sem vöðvabólga nefnist á íslensku. Nánari skýring fylgdi ekki og undirritaður varð að skálda í eyðurnar. Beint lá við að benda fyrirspyrjanda á gríska heitið myositis (mys: vöðvi, og -itis: bólga) sem tekið hefur verið óbreytt upp f ensku. íðorðasafnið birtir reyndar íslenska heitið vöðvaþroti með flettiorðinu myositis, þó vöðvabólga sé oftast notuð í samsetningum. í svarinu var þess einnig getið að í daglegu tali væri oft ekki gerður greinarmunur á ósértækum vöðvaverkjum, myalgia, og vefjafræðilegri bólgu, myositis. Tvíblind rannsókn í öðrum tölvupósti var spurt um íslenskt heiti á ensku sam- setningunni double-blind. Hún er oftast notuð til að lýsa klínískum rannsóknum, sem þannig eru skipulagðar að hvorki rannsakandi né sjúklingur fær að vita hver fær virka meðferð og hver fær óvirka meðferð, til dæmis lyfleysu. Hefð er komin á meðal lækna að nefna slíka rannsókn tvíblinda. Iðorðasafnið birtir þetta heiti, en getur þess einnig að slíka tilraunaaðferð megi nefna ókynnisaðferð. Vafasamt er að það heiti muni ná vinsældum. Multicenter Sami aðili spurði um íslenskt heiti á multicenter og var þá að vísa í rannsókn þar sem margar læknisfræði- eða vísindastofnanir tækju þátt. Undir- ritaður stakk upp á fjöl- fyrir multi- og stofnun fyrir center. Multicenter study yrði þá fjölstofnana- rannsókn eða -athugun. Upp rifjaðist reyndar að Asbjöm Jónsson, yfirlæknir, hafði fengið úrlausnina tilvísunarmiðstöð til að leysa verkefnið referral center (sjá pistil 95, Lbl 1997;83:852). Gaman væri að vísbendingum um aðrar hugmyndir. Launkrabbamein Pedro Riba, læknir á Akureyri, sendi tölvupóst snemma í haust og setti fram tillögu að íslensku heiti á latent carcinoma. fullmynduðu krabbameini sem ekki hefur gefið sig til kynna á neinn hátt og ekki gert neinn óskunda (sjá pistil 118, Lbl 2000;86:64). Um heitið launkrabbamein er ekki nema gott eitt að segja, en tillaga Bjarna Bjarnasonar, sem kynnt var í umræddum pistli, var leynikrabbamein. Sinarbólga Þýðandi nokkur var að fást við þýðingu af íslensku yfir á ensku og sendi tvö heiti úr lista yfir sjúkdóma, sem tiltekið lyf ætti að lækna, sinabólga og sinaskeiðabólga. Hafði þýðandinn fengið þær upplýsingar hjá lækni að sinar gætu ekki bólgnað og því væri ekki um tvö aðskilin fyrirbæri að ræða. Vildi þýðandinn samkvæmt því nota einungis eitt heiti á enskunni. Því var fljótsvarað að Iðorðasafn lækna geymdi bæði heitin, sinarbólga og sinaskeiðarbólga (sinaslíðursbólga). Hið fyrra væri nefnt tendinitis eða tendonitis á fræðimálinu og hið síðara tenosynovitis eða tendovaginitis. Háræðastjarna Þá barst loks fyrirspurn frá tryggingarfélagi um hvernig þýða ætti spider naevi. Því var fljótsvarað að spider naevus (ft. naevi) væri lítil háræðameinsemd í húð, greinótt eða stjörnulaga, sem líktist svolítið kónguló (e. spider). Meinsemdin getur fundist í tengslum við lifrarsjúkdóm, sérstaklega skorpulifur. Iðorðasafn lækna nefnir hana hárœðastjörnu. Læknablaðið 2001/87 77
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.