Læknablaðið - 15.12.2001, Blaðsíða 7
FRÁ RITSTJÓRN
Samskipti lækna og lyfjafyrirtækja
Umræðan um samskipti
lækna og lyl’jafyrirtækja er
ckki ný ai' nálinni. Fyrir 15
árum urðu allmikil skoðana-
skipti innan Félags íslenskra
heimilislækna um þessi mál.
Spunnust þau af svipuðum
ástæðum og þeim, sem nú
Sigurbjörn hafa nært umræðuna á vett-
Sveinsson vangi þjóðlífsins. Var því
meðal annars haldið fram,
að risna sem læknar nytu frá fyrirtækjum í lyfja-
dreifingu væri komin út fyrir eðlileg mörk. Bæri
læknum að eiga frumkvæði að siðbót. Á sama tíma
var svipuðum sjónarmiðum haldið á lofti víða í ná-
grenni okkar til dæmis í Svíþjóð og Bretlandi og
kynntust íslenskir læknar þeim bæði af eigin raun
og í tímaritum lækna.
Nokkuð góð eining skapaðist innan FÍH um að
félagið setti sér siðareglur að þessu leyti. Undirrit-
uðum var falið að leiða nefnd til að gera drög að
þessum ramma og var leitað fanga í nágrannalönd-
um okkar. Kom í ljós, að læknar voru misjafnlega á
veg komnir við mótun umgengnisreglna við lyfja-
iðnaðinn, en margt þó nýtilegt sem taka mátti upp.
Leiðbeiningar þær, sem stjórn FÍH gaf síðan félags-
mönnum sínum í febrúar 1987 (1), endurspegluðu
viðhorf lækna á Vesturlöndum til þessara mála og
voru vafalítið flestum heilsteyptari, sem þá lágu
fyrir. Sá var þó hængur á, að leiðbeiningarnar tóku
ekki afstöðu til samstarfs lækna og lyfjafyrirtækja
um rannsóknir í læknisfræði. Áhuginn á þeirri hlið
mála var minni og viðfangsefnið erfiðara. Þótti rétt
að læknar hefðu víðtækt samflot um slíkar leið-
beiningar, yrðu þær gefnar.
Áhugamenn um efnið töluðu fyrir því á vett-
vangi Læknafélags Islands. Haustið 1990 skipaði
stjórn LI nefnd til að vinna að gerð leiðbeininga
fyrir lækna að fara eftir í samskiptum sínum við
lyfjafyrirtæki. Nefndin, sem þrír akureyrskir lækn-
ar skipuðu, birti álitið í eigin nafni í Fréttabréfi
lækna í maí 1991 (2), eftir að stjórn LI dró birtingu
þess. Voru nefndarmenn óánægðir með þann drátt
(3). Aðalfundur LI sama ár ákvað síðan með
ályktun nr. 9 (4) að setja saman nefnd fimm lækna
til að gera tillögur til stjórnar um leiðbeinandi regl-
ur um samskipti lækna við lyfjafyrirtæki. Einnig
var þeim falið að fjalla um samskipti við heilbrigð-
isstofnanir í einkaeign, sérstaklega þær sem læknar
kunnu að eiga sjálfir hlut í og um innra eftirlit með
starfsemi lækna.
Höfundur er formaður Læknafélags íslands.
Aðalfundur LI 1992 var fáorður um málið. Álit
nefndar samanber ályktun aðalfundar 1991 lá fyrir
fundinum. Formaður starfshóps lagði lii að málinu
yrði vísað til stjórnar og var það samþykkt sam-
hljóða (5). Ljóst var, að ágreiningur var uppi
einkum um tvo síðari efnisþætti verkefnisins. Fyrir
fundinum lá einnig ítarleg ályktunartillaga frá
stjórn FIH, þar sem hún vann með drög nefndar-
innar frá 1990 og sagði í greinargerð (6). „Stjórn
FÍH telur umræðuna um samskipti lækna og lyfja-
fyrirtækja fullþroskaða meðal lækna. Hún hefur
því leyft sér að gera nokkrar orðalagsbreytingar á
því nefndaráliti, sem birtist á sínum tíma í Frétta-
bréfinu (5/1991 innskot, SS), án þess að um efnis-
breytingar sé að ræða.“ í ársskýrslu LÍ fyrir 1992-
1993 kom síðan fram, að stjórn félagsins hefur
samþykkt álit nefndarinnar og birti hún það í
Fréttabréfi lækna (7). (Fundargerð stjórnar
Læknafélags íslands, þriðjudaginn 1. júní 1993.)
Þessar leiðbeiningar eru því í fullu gildi enn í dag
að svo miklu leyti sem þær stangast ekki á við
samning þann, sem gerður hefur verið við Samtök
verslunarinnar (8).
I þeim samningi eru sett fram sameiginleg
markmið aðila og rammi um fræðslu-, kynningar-
og rannsóknarsamstarf Telja verður líklegra til ár-
angurs að ná tvíhliða samningum við lyfjadreifing-
una, fremur en að gefa út einhliða reglur. Þó má
vera, að það reynist nauðsynlegt meðal annars til
að slíkir samningar eigi sér eðlileg viðmið í sam-
þykktum lækna.
Mikilvægi samskipta lækna og lyfjafyrirtækja er
augljóst. Þau eiga að vera öllum í hag, lyfjafyrir-
tækjum, læknum og sjúklingum þeirra. Hvort sem
um er að ræða nýja þekkingu í lífvísindum, nýja
framleiðslu, nýjar ábendingar, nýja þekkingu um
aukaverkanir eða ný lyfjaform er brýn nauðsyn að
læknar fái alla þessa vitneskju til að taka ákvarð-
anir um úrræði þau, sem sjúklingar þeirra þarfnast
og standa þeim til boða. En leið þessarar þekkingar
til sjúklinganna er vissulega vörðuð hættum sem
læknum ber að forðast. Það er eðlileg krafa, að
ákvarðanir okkar séu byggðar á hlutlægu mati og
lausar við sjónarmið eða hagsmuni, sem kunna að
bera okkur af leið. Það er og eðlilegt, að almenn-
ingur og talsmenn hans séu áhugasamir um þau öfl,
sem koma vilja framleiðslu sinni á markað og eiga
ekki aðra kosti en að gera það um hendur lækna.
En vandi lækna er miklu stærri. í starfi hafa
læknar ætíð verið háðir þessum kröftum sem til
umræðu eru. Á öllum tímum hafa læknar þurft að
aga hugsun sína og veikleika við þörf sjúklingsins,
við þá staðreynd að veikindin, lyfin og aðgerðirnar
Frágangur
fræðilegra greina
Höfundar sendi tvær geröir
handrita lil ritstjórnar
Læknablaðsins, Hlíða-
smára 8, 201 Kópavogi.
Annað án nafna höfunda,
stofnana og án þakka sé
um þær að ræða. Greininni
fylgi yfirlýsing þess efnis
að allir höfundar séu
lokaformi greinar
samþykkir og þeir afsali
sér birtingarrétti til
blaðsins.
Handriti skal skilað með
tvöföldu línubili á A-4
blöðum. Hver hluti skal
byrja á nýrri blaðsíðu í
eftirtalinni röð:
• Titilsíða: höfundar,
stofnanir, lykilorð á ensku
og íslensku
• Ágrip og heiti greinar á
ensku
• Ágrip á íslensku
• Meginmál
• Þakkir
• Heimildir
Töflur og niyndir skulu vera
á ensku eða íslensku, að
vali höfunda.
Tölvuunnar myndir og gröf
komi á rafrænu formi
ásamt útprenti. Tölvugögn
(data) að baki gröfum fylgi
með, ekki er hægt að nýta
myndir úr PowerPoint eða
af netinu.
Sérstaklega þarf að semja
um birtingu Iitmynda.
Eftir lokafrágang berist allar
greinar á tölvutæku formi
með útprenti.
Sjá upplýsingar um frágang
fræðilegra greina:
http://www.icemed.is/
laeknabladid
Umræðuhluti
Skilafrestur efnis í næsta
blað er 20. undanfarandi
mánaðar nema annað sé
tekið fram.
Læknablaðið 2001/87 967