Læknablaðið - 15.12.2001, Blaðsíða 61
UMRÆÐA & FRETTIR / HEILBRIGÐISAÆTLUN
Heilbrigðisáætlun til ársins 2010 og raunveruleikinn
Ólafur Ólafsson
Höfundur er fyrrverandi
landlæknir og formaöur Félags
eldri borgara.
PANN 20. MAÍ SÍÐASTLIÐINN SAMÞYKKTI ALÞINGI
þingsályktun um heilbrigðisáætlun til ársins 2010.
Hér fylgja nokkur orð um ályktunina, en undirrit-
aður tók þátt í fyrstu fundum nefndarinnar fyrri hluta
vetrar 1998.
Hinn nýi siður að setja upp markmið fyrir heil-
brigðisáætlun til næstu 5-10 ára í anda Alþjóðaheil-
brigðisstofnunarinnar (WHO) er í sjálfu sér góðra
gjalda verður, til dæmis er inngangur ályktunarinnar
um stöðu, horfur, stjórnkerfi og skipulag heilbrigðis-
þjónustunnar ágætur. Ennfremur ummæli um sam-
ábyrgð, jafnrétti og forgangsröðun. En þegar kemur
að markmiðum virðist mér sem ýmsar væntingar séu á
sveimi í pólitísku gufuhvolfi án tengsla við efnahag,
lagaákvæði og fjármagn, gert er ráð fyrir verulegum
niðurskurði í þjónustunni sem er með öllu órökstudd-
ur. Aðallega skortir leiðbeiningar um aðgerðir og mun
nákvæmari áætlun um fjármagnsþörf. Nauðsynlegt
hefði verið að áætluninni fylgdu greinargóðar
leiðbeiningar um aðferðir og leiðir til fjármögnunar.
Annars verða markmiðin einungis sambland af vísind-
um, stjómmálum og draumórum. Pess skal getið að á
árunum 1970-1995 náðist sæmilegur árangur í heil-
brigðisþjónustunni án fyrirfram ákveðinna prósentu-
útreikninga. En vissulega fóm saman mikil fagvinna
og gerð leiðbeininga. Þess má geta að bætt lífskjör hafa
áreiðanlega haft mikil áhrif. Nefna má nokkur dæmi:
• Heildarævilíkur jukust um 5,5 ár
• Ævilíkur fólks á aldrinum 0-64 ára jukust um þtjú ár
• Burðarmálsdauði lækkaði um 60%
• Rauðuhundatilfellum fækkaði um 97%
• Engin börn fæddust sködduð vegna rauðra hunda
• Mislingatilfellum fækkaði um 94%
• Hettusóttartilfellum fækkaði um 97%
• Haemophilus heilabólgu var útrýmt
• Berklatilfellum fækkaði um 97%
• Dánartíðni vegna kransæðasjúkdóma minnkaði
um 40% hjá einstaklingum á aldrinum 0-64 ára
• Heilablæðingartilfellum fækkaði verulega
• Dánartíðni vegna umferðarslysa barna minnkaði
um 50% en heildardánartíðni í slysum um 60%
• Dánartíðni vegna leghálskrabbameins minnkaði um
50% en tíðni nýgengis minnkaði um nálega 40%
• Aðgerðum vegna magasára fækkaði um 80%
• Fimm ára líftími barna með blóðkrabba jókst um
70-80%
• Frábær árangur náðist við meðferð eitlakrabba-
meins
• Reykingatíðni minnkaði um 28% (1980-1990)
Fleira mætti telja til.
í forvarnar- og lækningaskyni var beitt ákveðnum
aðferðum eftir góðum leiðbeiningum lækna með
þátttöku annars heilbrigðisstarfsfólks og almennings.
í sumum tilfellum hafa læknar barist fyrir og náð að
breyta lögum, til dæmis varðandi slysavarnir, sótt-
varnir og aðrar forvarnir. En jafnframt hefur verið
barist fyrir auknum fjárveitingum sem stundum feng-
ust eftir blóð og svita.
Eftir að stjórnmálamenn fjölguðu rekstrar-, við-
skipta- og tæknimenntuðu fólki í æðstu stjórn heil-
brigðismála og á sjúkrastofnunum og dregið var úr
áhrifum lækna hefur orðið breyting á. Vissulega vinn-
ur þetta fólk góða vinnu eins og þekking þeirra leyfir.
En markmiðssetningin hefur breyst og er nú mjög í
anda skrifstofumanna við Alþjóðaheilbrigðisstofn-
unina. Dæmi þessa má lesa um í umræddri heilbrigð-
isáætlun. Farið er fögrum orðum um heilsugæslu en
lítið rætt að nær enginn unglæknir hefur hafið nám í
heilsugæslu síðustu átta til níu árin. Hins vegar er
ekkert minnst á nauðsynlegar aðgerðir vegna þessa.
• Á næstu 10 árum skal draga úr tíðni geðraskana
um 10%. Hvernig?
• Draga skal úr tíðni sjálfsvíga um 25%. Hvernig?
• Dregið verður úr áfengis- og vímuefnaneyslu ungs
fólks um 25%. Þetta markmið er nokkuð sérkenni-
legt því að samkvæmt opinberum yfirlýsingum átti
ísland að verða án vímuefna árið 2000! Hvernig?
• Dregið verður úr muni á lífslíkum einstakra þjóð-
félagsstétta, að minnsta kosti um 25%. Hvernig?
• Nú eru yfir 7000 manns á biðlistum sjúkrahúsa.
Furðulegt er að 2000 manns skuli bíða eftir heyrn-
artækjum!
• Tryggt verði að þeir sem erfitt eiga með að gæta
réttar síns vegna æsku, fötlunar, hvort heldur and-
legrar eða líkamlegrar, eða öldrunar njóti jafn-
ræðis við aðra. Hvernig?
Ég veit ekki hvort hugur fylgir máli sérstaklega
varðandi það síðastnefnda. Öryrkjar hafa skrifað
bónarbréf um úrbætur á kjörum sínum til yfirvalda í
15-20 ár án árangurs. Að lokum þurfti hæstaréttar-
dóm til þess að hagur öryrkja skánaði. Stjórnvöld
tóku dómi þessum ekki fagnandi eins og landslýður
veit. Ég hef þó grun um að heilbrigðisráðherra hafi
viljað fylgja dómnum eftir að fullu. Við kröfum eldri
borgara er þagað þunnu hljóði. Eldri borgarar undir-
búa nú aðra lögsókn til þess að ná rétti sínum. Til þess
að ná áttum og ná framangreindri áætlun þarf til
muna meiri vinnu, leiðbeiningar og ekki síst leiðbein-
ingar um fjármögnun.
Heimild
Health in Iceland 1998.
Læknablaðið 2001/87 1021