Læknablaðið - 15.12.2001, Blaðsíða 33
FRÆÐIGREINAR / MAURASÝKING
sylvaticus, Mus musculus) en undanfarna áratugi
hefur óværa af hundruðum músa verið rannsökuð
hér á landi (9).
Áður hefur komið fram að maurinn er hitakær.
Ósennilegt er að hann þrífist hér á landi á nagdýra-
stofnum sem lifa fjarri upphituðum mannabústöðum
frekar en til dæmis í Skandinavíu þar sem loftslag er
greinilega einnig of kalt til að maurinn fái þrifist þar
á villtum nagdýrastofnum. Flest bendir því til að O.
bacoti hafi borist nýlega til landsins þótt ekki sé Ijóst
með hvaða hætti það gæti hafa gerst. Hugsanlegt er
að þeir hafi borist hingað með stökkmúsum eða ein-
hverjum öðrum dýrum, til dæmis kanínum (Orycto-
lagus cuniculus) eða hömstrum (Cricetus spp.) sem
einstaklingar eða forsvarsmenn verslana hafa á síð-
ustu árum fengið leyfi til að flytja til landsins, að upp-
fylltum ákveðnum skilyrðum yfirdýralæknis. Þá gæti
maurinn hafa borist hingað með ólöglega innfluttum
gæludýrum því einhver brögð virðast vera að því að
slfkt sé gert. Því til staðfestingar hafa eigendur gælu-
dýraverslana bent á að þeir hafa fengið í hendurnar
litarafbrigði stökkmúsa sem aldrei hefur verið leyft
að flytja inn. Þótt ofangreindir möguleikar virðist
líklegastir gæti rottumaurinn engu að síður hafa bor-
ist til landsins á einhvern annan hátt.
Lokaorð
Stökkmýs hafa verið seldar hér á landi í allmörg ár og
eru nú gæludýr á hundruðum heimila. Sama gildir
raunar um aðrar tegundir gæludýra (til dæmis kanín-
ur, hamstra, mýs og rottur) sem rottumaurinn þrífst
ágætlega á. Eigendur sumra gæludýraverslana ala
upp gæludýrin sem höfð eru tii sölu og geta þar af
leiðandi fylgst með heilbrigði þeirra. Hitt þekkist þó
einnig að eigendur gæludýraverslana kaupi og selji
unga sem aldir hafa verið upp í heimahúsum. Þessi
aðferð til að afla söludýra býður upp á dreifingu
smits af margvíslegum toga og ætti alls ekki að við-
gangast.
Þakkir
Lars Lundqvist, Náttúrufræðistofnun Háskólans í
Lundi, Svíþjóð, staðfesti greiningu O. bacoti og veitti
höfundi upplýsingar um útbreiðslu tegundarinnar í
Skandinavíu. Gunnar Örn Guðmundsson, héraðs-
dýralæknir í Gullbringu- og Kjósarsýslu og Halldór
Runólfsson, yfirdýralæknir veittu upplýsingar um út-
breiðslu rottumaursins hér á landi og innflutning
stökkmúsa. Þeim er öllum þakkað liðsinnið.
Heimildir
1. Evans GO, Till WM. Studies on the British Dermanyssidae
(Acari: Mesostigmata). Part II. Classification. Bulletin of the
British Museum (Natural History) Zoology 1966; 14(5): 107-
370.
2. Noble ER, Noble GA, Schad GA, Maclnnes AJ. Parasitology.
The Biology of Animal Parasites. Sixth edition. Philadelphia
and London: Lea & Febiger; 1989.
3. Beaver PC, Jung RC, Cupp EW. Clinical Parasitology. 9th
edition. Philadelphia: Lea & Febiger; 1984.
4. Azad AD. Mites of public health importance and their
control. Mites. Vector Control Series WHO/VBC/86.931.
Geneva: World Health Organization; 1986.
5. Schmidt GD, Roberts, LS. Foundations of Parasitology. Fifth
edition. Boston: Wm. C. Brown Publishers; 1996.
6. Dove WE, Shelmire B. Some observations on tropical rat
mites and endemic typhus. J Parasitol 1932; 18:159-68.
7. Richter SH. Bit á mönnum af völdum staraflóar, rottuflóar og
rottumaurs. Læknablaöiö 1977; 63:107-10.
8. Jóhannesdóttir EE. Sníkjudýr brúnrottu (Rattus nor egicus).
Námsverkefni. Reykjavík: Líffræöiskor Háskóla íslands; 2000:
12 bls.
9. Skírnisson K. Nagdýr. í: Sigbjarnarson G, Hersteinsson P,
ritstj. Villt íslensk spendýr. Reykjavík: Hið íslenska Náttúru-
fræðifélag og Landvernd; 1993: 327-46.
Fræðigreinar íslenskra lækna
í erlendum tímaritum
Sendið hciti greinar, nöfn höfunda og hirtingarstað.
Almennt er miðað við greinar sem birst hafa á
yfirstandandi og síðasta ári. Til glöggvunar verður
íslenskra höfunda getið með fornafni þótt svo hafí
ekki verið við birtingu.
• Laurberg P, Pedersen KM, Ástráður B. Hreiðars-
son, Nikulás Sigfússon, Iversen E, Knudsen PR.
Iodine intake and the pattern ofthyroid disorders.
A comparative epidemiological study of thyroid
abnormalities in the elderly in Iceland and in Jut-
land, Denmark. J Clin Endocrinol Metabol 1998;
88:765-9.
• Laurberg P, Andersen A, Ástráður B. Hreiðars-
son, Jörgensen T, Knudsen N, Nöhr S, et al. Iodine
intake and thyroid disorder in Denmark. Back-
groundforan iodine supplementation program. In:
Delange F, et al, eds. Elimination of Iodine Defi-
ciency Disorder (IDD) in Central and Eastern
Europe, The Commonwealth of Independent
States, and the Baltic States. Geneva: WHO
Nutrition; 1998: 31-42.
• Laurberg P, Nöhr SB, Pedersen KM, Ástráður B.
Hreiðarsson, Andersen S, Búlow Pedersen I, et al.
Thyroid disorders in mild iodine deficiency
[review]. Thyroid 2000; 10: 951-3.
• Sigurður Y. Kristinsson, Eirný Þ. Þórólfsdóttir.
Talseth B, Einar Steingrímsson, Árni V. Þórsson,
Þórir Hclgason, Ástráður B. Hreiðarsson, Reynir
Arngrímsson. MODY in Iceland is associated with
nuitations in HNF-1 alfa and a novel mutation in
NeuroDl. Diabetologia 2001; 44: 2098-103.
Læknablaðið 2001/87 993