Læknablaðið - 15.12.2001, Blaðsíða 66
UMR/EÐA & FRÉTTIR / LUNGNAMÆLINGAR
Samstarf um lungnamælingar
Samstaifssamningur
innsiglaður. Frá vinstri
Hjörleifur Þórarinsson,
Gunnar Guðmundsson,
Sigurður Guðmundsson og
Þorsteinn Njálsson.
Lungnamælingar EIGA AÐ VERA SJÁLFSÖGÐ ÞJÓN-
usta sem hægt á að vera að framkvæma á öllum
heilsugæslustöðvum landsins. Þetta er eitt af mark-
miðum samnings sem var undirritaður í húsakynnum
Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur á dögunum, eins
og segir í fréttatilkynningu. Landlæknisembættið,
Tóbaksvarnarnefnd, Loftfélagið og GlaxoSmith-
Kline ætla að starfa sameiginlega að aukinni fræðslu
og upplýsingagjöf innan heilbrigðiskerfisins á sviði
lungnasjúkdóma og greiningu á orsökum vaxandi
tíðni þeirra hér á landi.
Það voru Sigurður Guðmundsson landlæknir,
Þorsteinn Njálsson formaður Tóbaksvarnarnefndar,
Gunnar Guðmundsson lungnalæknir fyrir hönd
Loftfélagsins og Hjörleifur Þórarinsson fyrir hönd
GlaxoSmithKline sem undirrituðu samstarfssamn-
inginn. Við undirritunina kom fram að talið sé sér-
staklega brýnt að víðtækt samstarf takist meðal aðila
heilbrigðiskerfisins um að spoma gegn þeirri alvar-
legu þróun sem felst í ört vaxandi tíðni langvinnra
lungnateppusjúkdóma sem rekja má að stórum hluta
til langvarandi tóbaksreykinga. Þessir sjúkdómar
hafa stundum verið nefndir „hinir gleymdu sjúkdóm-
ar“ sökum þess hversu lítillar athygli þeir hafa notið,
bæði meðal heilbrigðisstarfsfólks og almennings.
Talið er að 16.000 til 18.000 manns þjáist af völd-
um langvinnrar lungnateppu hér á landi. Aðalorsök-
in er að fjölmennir árgangar áranna 1930 til 1965 eru
að færast upp aldursstigann, en reykingar hafa verið
nokkuð útbreiddar meðal þeirra. Um 90% þeirra
sem þjást af völdum sjúkdómanna eru reykingafólk.
Haldi fram sem horfir er talið að langvinnir lungna-
teppusjúkdómar verði þriðja algengasta dánarorsök-
in hér á landi á næstu 20 árum en í dag eru þeir sjötta
algengasta dánarorsök íslendinga.
Samningsaðilar ætla að beita sér fyrir markvissri
notkun á lungnamælum til greiningar á lungnasjúk-
dómum og mun GlaxoSmithKline greiða kostnað af
nýjum lungnamælum sem afhentir verða þeim 26
heilsugæslustöðvum sem samkvæmt niðurstöðum
landlæknisembættisins þurfa á endurnýjun slíks
tækjabúnaðar að halda. Úr fréttatiikynningu.
Alþjóðlegi alnæmisdagurinn 1. desember2001
Kjörorð dagsins: Snertir mig - en þig?
Alþjóðlegi ALNÆMISDAGURINN verður hald-
inn í fjórtánda sinn þann 1. desember en hann er
haldinn á vegum Sameinuðu þjóðanna. Þar hefur
verið komið upp samstarfsvettvangi margra al-
þjóðlegra stofnana sem vinna að alnæmisvörnum
undir heitinu UNAIDS. Kjörorði dagsins er ætlað
að örva umræðu um hlut karlmanna í þeirri vá
sem alnæmisfaraldurinn er. Karlar og þá einkum
ungir karlmenn eru stærsti áhættuhópurinn þegar
alnæmissmit er annars vegar og þeir eru líka sá
hópur sem helst stuðlar að útbreiðslu smitsins.
í ávarpi UNAIDS í tilefni dagsins segir meðal
annars: „Það þarf að hvetja feður dagsins í dag og
feður framtíðarinnar til þess að velta betur fyrir
sér hvaða áhrif kynhegðun getur haft á félaga
þeirra og börn, þar á meðal það að láta eftir sig
börn sem alnæmismunaðarleysingja og að bera
HlV-veiruna inn í fjölskylduna."
Meðfylgjandi er tafla frá sóttvarnalækni sem
sýnir útbreiðslu alnæmis hér á landi.
Tafla Einstaklingar greindir með HiV-smit og ainæmi og dánir af alnæmi
Ár Með hiv-smit Með alnasmi Dánir
Karlar Konur Alls Karlar Konur Alls Karlar Konur Alls
1983 i - í - - - - - -
1984 - - - - - - - - -
1985 15 i 16 i - í i - í
1986 11 2 13 3 - 3 - - -
1987 4 1 5 1 - 1 2 - 2
1988 10 3 13 3 2 5 1 i 2
1989 5 1 6 3 - 3 - - -
1990 5 - 5 3 - 3 4 i 5
1991 8 2 10 6 2 8 2 - 2
1992 10 1 11 3 - 3 2 - 2
1993 2 1 3 6 1 7 7 í 8
1994 6 2 8 5 1 6 4 i 5
1995 5 2 7 4 - 4 3 - 3
1996 4 2 6 3 - 3 1 - 1
1997 8 1 9 1 - 1 1 - 1
1998 5 3 8 2 - 2 - - -
1999 7 5 12 - - - 1 - 1
2000 7 3 10 1 - 1 1 - 1
2001* 4 1 5 1 - 1 - - -
Alls 117 31 148 46 6 52 30 4 34
*Til 30. júní
1026 Læknablaðið 2001/87