Læknablaðið - 15.12.2001, Blaðsíða 39
RÆÐA & FRÉTTIR / A F SJÓNARHÓLI STJÓRNAR LÍ
U M
framkvæmd ferliverkasamninganna aftur undir
Tryggingastofnun ríkisins.
Pað er skiljanlegt að stjórnvöld reyni að halda
kostnaði við heibrigðisþjónustuna í lágmarki, það
ber þeim að gera og okkur sem vinnum við fram-
kvæmd hennar ber að sjálfsögðu að stefna að sama
marki. Það er einnig skylda okkar að sjá lil þess að
almenningur fái þá læknisþjónustu sem þörf er á
hverju sinni.
Þegar sjúklingi er neitað um aðgerð við rifnum
liðþófa, svo dæmi sé tekið, vegna þess að fjárveiting-
in hjá viðkomandi sjúkrahúsi er uppurin og hann
verður að leita annað til að fá lækningu, þá er eitt-
hvað að kerfinu. Hér erum við ekki að tala um sparn-
að, því aðgerðin er borguð úr sama sjóðnum, það vill
bara svo til að fjárveitingin til þeirra lækninga sem
hér var þörf á var búin við sjúkrahúsið í hans heima-
byggð. Tekið skal fram að hér er ekki við stjórnendur
viðkomandi sjúkrahúsa að sakast, þeir hafa ekkert
fjármagn sem þeir geta lagt til þessarar starfsemi
umfram það sem fjárveitingar gera ráð fyrir.
Sé það meiningin með frumvarpi um breytingar á
lögum um heilbrigðisþjónustu, að svipuðu fyrir-
komulagi verði komið á við greiðslur til sjálfstætt
starfandi sérfræðinga og nú gildir um framkvæmd
ferliverka, er fyllsta ástæða til að vara við samþykkt
þess. Það fyrirkomuiag þjónar ekki hagsmunum al-
mennings og mun aðeins lengja biðlista og auka
greiðslur sjúkratrygginga til þeirra sem bíða eftir
læknishjálp.
Árshátíð Læknafélags Reykjavíkur
Árshátíö Læknafélags Reykjavíkur verður haldin
viö lok Læknadaga laugardaginn 19. janúar 2002
á Broadway, Ármúla 9.
Tekið verður á móti gestum kl. 19 með fordrykk.
Borðhald hefst stundvíslega kl. 19:45.
Boðið verður upp á glæsileg skemmtiatriði.
Guitar Islancio mun leika af alkunnri snilld.
Egill Ólafsson og Sigrún Hjálmtýsdóttir
syngja við undirleik Jónasar Þóris.
Milljónamæringarnir ásamt Ragnari Bjarnasyni,
og Bjarna Arasyni leika fyrir dansi.
«f/al'Sedt//
()(/ /H'iy/iiff/1 /cræ /fted ///'o oe/tce/níftf/ii
/({//(/(/(/({// o(j /i(iulaf///tzi ir /y'órtumo(f/t{(in oi//isoe/)/)((/tt, (hsa/til
(y/He/i/tiefi (hj /i((/'lö/f((t() e/t/t(/
c7h€Ö/1's/í ,s((/i/i((/(((írfe/€f(( /netf oani//i(is, fto/'i/t f/Ht/tily/oo/y
Munið að þetta er árshátíð íslenskra lækna og þangað koma ekki einungis læknar í Læknafélagi
Reykjavíkur heldur læknar af erlendri grundu, læknar landsbyggðarinnar, unglæknar og eldri læknar.
Fyrir þá sem hafa áhuga er hægt að leita tilboða í gistingu á Radisson SAS Hótel íslandi, sími:
595 7000.
Stjórn Læknafélags Reykjavíkur
Læknablaðið 2001/87 999