Læknablaðið - 15.12.2001, Blaðsíða 11
FRÆÐIGREINAR / RITSTJÓRNARGREIN
Lyfj aiðnaðurinn og læknisfræðin
Vilhjálmur
Rafnsson
Höfundur er ábyrgðarmaður
Læknablaðsins.
Fjölmiðlar á Íslandi hafa undanfarið vakið at-
hygli Á tengslum lyfjafyrirtækja og lækna. Pessi mál
eru oft til umræðu í fagtímaritum nágrannalandanna
og þá gjarnan mest talað um kynningar á lyfjum,
gjafir og hlunnindi sem læknar fá frá lyfjafyrirtækjum
(1-6). í sumum löndum er reynt að hafa hemil á slíku
með lagasetningu (2), en annars staðar reyna félög
lækna að taka sjálf á þessum málum (6).
I þessum línum verður ekki fjallað um gjafir og
styrki til einstakra lækna og hópa þeirra né kynningar
lyfjafyrirtækja á framleiðslunni, enda er það gert á
öðrum stað í blaðinu. Hér verður þó bent á, að upp-
lýsingar hafa birst um að læknar sem halda fyrirlestra
á kynningum lyfjafyrirtækjanna fá greitt fyrir það
ásamt ferðakostnaði frá fyrirtækjunum (7). Upphæð-
irnar sem um ræðir geta samanlagt numið meiru en
laununum sem læknarnir fá frá sjúkrahúsunum þar
sem þeir vinna og dæmi eru um að læknar missi þessa
aukavinnu hjá lyfjafyrirtækjunum, komi þeir ekki
fram með umfjöllun sem fyrirtækjunum hugnast (7).
Lyfjafyrirtækin koma náið að rannsóknum í lækn-
isfræði með eigin rannsóknum en líka sem styrktar-
aðilar rannsókna, með starfrækslu rannsóknarsjóða
og einnig sem skipuleggjendur og stjórnendur ein-
stakra rannsóknarverkefna þar sem læknar eru fram-
kvæmdaaðilar. Margir telja eðlilegt og sjálfsagt að
lyfjafyrirtækin kosti og láti gera rannsóknir á áhrifum
og öryggi lyfja. Ritstjórar læknisfræðitímarita leggja
mikla áherslu á að skýrt sé frá tengslum lyfjafyrir-
tækja og höfunda læknisfræðilegra greina og að höf-
undar séu ábyrgir og sjálfstæðir gagnvart kostunarað-
ila, eins og nýverið hefur verið sagt frá hér í blaðinu
(8,9). Dæmi eru um, að lyfjafyrirtæki hafi stöðvað
rannsóknir sem verið var að gera og aldrei látið vinna
úr né birt þær upplýsingar, sem þegar höfðu fengist.
Getur hver og einn hugleitt af hverju gripið er til
slíkra ráða (10-13). Ekki er vitað nákvæmlega um
umfang slíkra atvika, en talað er um að háskólastofn-
anir eigi að styðja við og hjálpa vísindamönnum til að
vera óháðir kostunaraðilum (14). Jafnframt hefur
réttilega verið vakin athygli á að á þeim stöðum þar
sem viðskiptasjónarmið hafa fengið forgang við fjár-
mögnun stofnana, geti þetta verið haldlítið ráð
(14,15).
Á hinn bóginn hefur þótt ástæða til að undirstrika
hér hlutverk vísindasiðanefnda sem óháðra aðila,
sem gegni veigamiklu hlutverki (13,15,16). Því er
haldið fram að sjúklingar séu fengnir í klínískar rann-
sóknir vegna vísindanna og þeim talin trú um að með
þátttöku séu þeir að leggja sitt af mörkum til læknis-
fræðilegrar þekkingar, en ekki eingöngu að stuðla að
viðskiptahagsmunum kostunaraðila rannsóknarinn-
ar og er síðarnefnda atriðinu oftar en ekki haldið frá
í upplýsingum til þátttakenda. Ef allar niðurstöður
rannsóknarinnar eru hins vegar ekki birtar opinber-
lega að rannsókn lokinni, er ekki verið að bæta við
læknisfræðilega þekkingu og má því segja að þátttak-
endur hafi verið fengnir í rannsóknarhópinn með
svikum (16). Þetta er því viðfangsaefni vísindasiða-
nefnda og siðaráða, sem ættu að setja vísindamönn-
um þau skilyrði, að þeir birti niðurstöðurnar (16) eða
að nefndirnar og ráðin verði eftirlitsaðilar með því að
svo verði gert (13). Enn aðrir hafa lagt til að ábyrgð-
armenn rannsókna svari vísindasiðanefndinni hinni
skýru spurningu: „Ert þú frjáls og óháður að birta
niðurstöður þessarar rannsóknar?“ og hafi kostunar-
aðili neitunarvald, þá eigi vísindasiðanefndin að
hafna umsókn um rannsóknina (15). í þessum um-
ræðum er ekki gert ráð fyrir öðru en að kostunaraðili
hafi rétt til að gera athugasemdir við handrit fyrir
birtingu og að hann geti fengið hæfilegan frest á birt-
ingu til þess að vernda viðskiptahagsmuni sína. Á
málþingi í tengslum við formannaráðstefnu Lækna-
félags Islands fyrir þremur árum, var rætt um það,
hvort og hvernig niðurstöður rannsókna birtast. Þar
var sú skoðun reifuð, að óbirtar niðurstöður teldust
ekki lil vísinda (17).
Meira en 15 ár eru liðin síðan læknablöð víða um
heim tóku upp þá stefnu að vilja segja frá því, ef höf-
undar greina hefðu fjárhagsleg tengsl við lyfjafyrir-
tæki eða aðra aðila sem umfjöllunin varðaði. Talið er
sjálfsagt að lesendur fái upplýsingar um slík tengsl,
þegar þeir kynna sér efni greinanna. Nýleg rannsókn
á því, hversu oft höfundar segja frá hagsmunatengsl-
um í virtum læknatímaritum sýndi að einungis í 52
greinum af 3642 lýstu höfundar yfir slíkum tengslum
(18). Fram kom að yfirlýsingar um hagsmunatengsl
voru tíðari á seinni árum en fyrir 10 árum. Mikil um-
ræða er um hvort hagsmunatengsl skekki niðurstöð-
ur eða túlkun rannsókna. Það er ekki minni hiti í
þeirri umræðu en þegar rætt er um hugsanleg áhrif
gjafa og kynninga lyfjafyrirtækjanna á lyfjaávísanir
lækna. Fyrir fjórum árum birtist rannsókn sem sýndi
að höfundar greina í læknatímaritum, sem töluðu
Læknablaðið 2001/87 971