Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.12.2001, Page 10

Læknablaðið - 15.12.2001, Page 10
Sigurvegarar hversdagsins iiijamf-* OLVC FyNTEX® FLUOXETIN Yfir 30 milljónir manna um heim allan hafa treyst á Fontex gegn þunglyndi. Góður vitnisburður Iækna er ekki tilviljun. Þeir vita að forysta okkar á markaðnum er verðskulduð. Ábendingar: Þunglyndi. ICD 10: Til meðferðar á vægum - erfiðum geðdeyfðarköstum. með eða án kvíða. Lotugræðgi. Áhrif af meðferð við lotugræðgi í meira en 8-12 vikur er óviss. Þráhyggjusýki. Skammtar og lyfjagjöf: Fyrir fullorðna: Við þunglyndi. með eða án kvíða: 20 mg einu sinni á dag. Við lotugræðgi: 60 mg á dag. Við þráhyggjusýki: 20 mg á dag. ef ekki næst viðunandi árangur. má auka skammtinn eftir 3-4 vikur. Allar ábendingar: Skammta má hækka eða lækka. Skammtar yfir 80 mg/dag hafa ekki verið rannsakaðir. Aldraðir: Rannsóknir benda ekki til þess að nauðsyn sé á skammtabreytingum hjá öldruðum. Fyrir böm: Upplýsingar um reynslu og áhrif skortir. Flúoxetin má taka án tillits til máltíða. Ekki er nauðsynlegt að minnka skammta smám saman þegar meðferð er hætt, þar sem flúoxetín og virka umbrotsefnið norflúoxetín hafa langan helmingunartíma. Vlð alvarlega skerta lifrarstarfsemi og/eða ef lyfið er gefið samtimis öðrum lyfjum: Til greina kemur að gefa þessum sjúklingum lægri eða færri skammta. Frábendingar: Ofnæmi fyrir flúoxetini eða öðrum innihaldsefnum lyfsins. Meðganga og brjóstagjöf. Sérstakrar varúðar ber að gæta við flogaveiki. alvarlega nýrnabilun. lifrarsjúkdóma. nýlegt hjartadrep og hjá öldruðum. Varnaðarorð og varúðarreglur: Forðast skal samtímis meðferð með MAO-hemli. vegna hættu á serótóninheilkenni. Ef sjúklingur hefur áður verið í meðferð með óafturkræfum MAO-hemli þurfa a.m.k. 2 vikur að líða. áður en meðferð með flúoxetini hefst. Flytja má sjúklinga. sem eru í meðferð með afturkræfum MAO-hemlum með stuttan helmingunartíma (t.d. móklóbemíði) yfir á flúoxetin eftir einn sólarhring. Hins vegar þurfa um 5 vikur að líða. áður en sjúklingar. sem eru í meðferð með flúoxetíni, eru settir á MAO-hemil. Við meðferð á þunglyndlstímabilum sjúklinga með geðklofa geta geðveikleinkenni versnað. Hjá sjúklingum með manio depressive sjúkdóm. getur sjúkdómurinn sveiflast yfir í maniu. Gæta ber varúðar hjá sjúklingum með skerta lifrarstarfsemi. Útbrot. bráðaofnæml og stigvaxandi bráðaofnæml. stundum alvarlegu. með einkennum í húð. nýrum. lifur eða lungum hefur verði lýst hjá sjúklingum sem fengu flúoxetín. Hætta skal meðferð ef fram koma útbrot eða önnur ofnæmisviðbrögð sem ekki eiga sér aðra orsök. Eins og með önnur þunglyndislyf, er mælt með því að flúoxetin sé notað með varúð ef sjúklingur hefur sögu um krampa. Lýst hefur verið tllfellum um lækkun natríums. I flestum tilfellum hefur verið um að ræða aldraða sjúklinga. sem fengu jafnframt meðferð með þvagræsilyfjum. eða með vökvatap af öðmm orsökum. Blóðsykurslækkun hefur komið fram hjá sykursjúkum í flúoxetín meðferð. en blóðsykurshækkun eftir að meðferð er hætt. Meðferð með flúoxetíni getur leitt til tannskemmda vegna munnþurrks. Milliverkanir: Gæta skal varúðar þegar lyf sem umbrotin eru með cýtókróm P450IID6 og hafa tiltölulega þröngan lækningalegan stuðul eru notuð samtímis flúoxetini. eða ef flúoxetín hefur verið notað á siðustu 5 vikum. Plasmaþéttni fenýtóíns. halóperidóls. karbamazepíns. klózapins. díazepams. alprazólams. litíums. imipramíns og desipramíns getur breyst. og í einstaka tilfellum geta klínísk eitrunareinkenni komið fram. Samtímis notkun flúoxetíns og litíums getur orsakað skjálfta og skort á samhæfingu (serótónínhellkenni). Einkennin hverfa þegar meðferð er hætt. Gæta skal varúðar við skömmtun þessara lyfja og fylgjast með klínisku ástandi. Flúoxetin er mikið próteinbundið og því getur samtímis notkun lyfja sem eru mikið próteinbundin. haft áhrif á blóðþéttni þeirra beggja. Við samtimls notkun flúoxetíns og warfaríns hefur f einstaka tilfellum komið fram breyting i segavarnandi áhrifum. Fylgjast skal með sjúklingum í warfarín meðferð í upphafl eða við lok flúoxetín meðferðar. Samtímis notkun flúoxetíns og raflostsmeðferðar (ECT) hefur í einstaka tilfellum lengt krampaköst. Ef gefa á lyf sem hafa milliverkanir við flúoxetín eða vlrka umbrotsefnið norflúoxetín eftir að meðferð lýkur. er mikilvægt að hafa i huga langan helmingunartíma þeirra. Nauðsynlegt getur vertð að breyta skömmtum sykursýkilyfja. ef sjúklingur er samtímis í meðferð með insúlíni og/eða sykursýkilyfjum til inntöku. Ekki ætti að nota tryptófan með lyfinu. Aukaverkanir: Eftirfarandi aukaverkanir tengjast verkunarhætti sérhæfðra serótónínupptökuhemla (SSRI): Almennar: Ósjálfráð einkenni þ.m.t. munnþurrkur. aukin svitamyndun. æðavíkkun og kuldahroUur. Ofnæmiseinkenni (sjá Vamaðarorð og varúðarreglur). Serótónínheilkenni. sem lýsir sér með breytingum á geði og vöðvavirkni ásamt truflunum á starfsemi ósjálfráða taugakerfisins. Ljósnæmi. Meltingarfæri: Niðurgangur. ógleði. uppköst, meltingartruflanir. kyngingartregða. bragðskynstruflanir og mjög sjaldan lifrarbólga. Innkirtlar: Ónóg seytun ADH. Blóðrás og sogæðakerfi: Bjúgur (ecchymosis). Miðtaugakerfi: Óeðlllegar hreyfingar/sjálfti. Lystarleysi. Kvíði og skyld einkenni. Svimi. Þreyta. Erfiðleikar við einbeitingu og hugsanatruflanir. Manía. Svefntruflanir. Óndunarfæri: Geispar. Húð: Hárlos. Skynfæri: Sjóntruflanir. Þvag- og kynfæri: Þvagteppa. Langvinn stinning. Truflanir á kynlifl. þ.m.t. minnkuð kynhvöt. seinkað eða ekkert sáðlát. ná ekki fullnægingu og getuleysi. Einkenni eins og svimi. náladofi. höfuðverkur. kvíði og ógleði hafa komið fram þegar meðferð með geðdeyfðarlyfjum er hætt. Hættan á þessum elnkennum er minni hjá flúoxetini en öðrum geðdeyfðarlyfjum þar sem bæði flúoxetín og virka umbrotsefnið hafa tiltölulega langan helmingunartíma. Pakkningar og verð 1. febrúar 2000: Hylki 20 mg: 100 stk. — 11.899 kr. Lausnartöflur til inntöku 20 mg: 30 stk. — 5.309 kr.; 100 stk. — 14.847 kr. Mlxtúra 4 mg/ml: 70 ml — 3.954 kr. Hámarksmagn sem ávisa má með lyfseðli er sem svarar 30 daga skammti. Lyfið er lyfscðilsskylt og greiðslufyrirkomulag er B. Markaðsleyfishafi er Eli Lilly Danmark A/S. A. Karlsson hf. • Brautarholt 28 • 105 Reykjavík Sími 5 600 900 • Fax 5 600 901 • www.lilly.com

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.