Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.12.2001, Page 51

Læknablaðið - 15.12.2001, Page 51
UMRÆÐA & FRÉTTIR / AUGNLÆKNINGAR Á ÍSLANDI Saga augnlækninga á íslandi frá öndverðu til 1987 Brugðið upp augum, saga augnlækninga á Íslandi frá öndverðu til 1987, er komin út á vegum Háskólaútgáfunnar. í þessu fyrsta sagnfræðiriti sinnar tegundar, hefur höfundi tekist að tvinna saman sögu þjóðar og fræða frá áhugaverðum sjónarhornum, sem gerir frásögn bókarinnar aðgengilega fyrir stóran hóp lesenda. Meðal viðfangsefna má nefna augnsjúkdóma í fornum ritum, alþýðuráð og alþýðulækningar við augnveiki. Helstu brautryðjendum augnlækninga, þeim Birni Ólafssyni augnlækni og Guðmundi Hannessyni prófessor eru gerð ítarleg skil. Rakin er erfið starfsaðstaða og kjör augnlækna langt fram eftir 20. öldinni og hvernig úr rættist. Þá eru raktar þær pólitísku, fræðilegu og viðskiptalegu deilur sem tengdust augnlækningum. Jafnframt er fjallað um mikilvægustu áfanga sögu augnlækninga, hvernig miðstöð augnlækninga þróaðist á Landakoti, sem og aðdragandann að tilurð Sjónstöðvar íslands sem stofnuð var árið 1987. Þá er í bókinni ítarleg skrá yfir orð og orðasambönd um sjón og augu en þau eru bæði mörg og mikið notuð í daglegu máli. Höfundur Brugðið upp augum er Guðmundur Björnsson augnlæknir sem lést fyrr á þessu ári. Eftir að starfsævi hans sem augnlæknis lauk árið 1989 hóf hann að rita sögu augnlækninga á íslandi en hann hafði safnað heimildum til þess um árabil. Hann lauk að mestu við handritið árið 1997 en ritnefnd hefur síðan yfirfarið það og búið til prentunar undir forystu Jóns Ólafs Isbergs sagnfræðings. Bókin skiptist í 10 kafla, er rúmar 250 blaðsíður og hana prýða fjöldi ljósmynda, taflna og myndrita. Bókarkápu hannaði Alda Lóa Leifsdóttir. Hér á eftir fylgir brot úr fimmta kafla sem fjallar um augnlækningar á árunum 1969-1987 þar sem fjallað er um stofnun augndeildar á Landakoti. BRUGÐID UPP AUGUM Saga augnlæknlnga á fslandi Irá dndueröu lil 1387 GUÐMUIMDUR BJÚRIMSSOIM 5. kafli Augnlækningar 1969-1987 Stofnun augndeildar á Landakoti Þegar augndeildin á Landakoti var stofnuð haustið 1969 hafði lítil sem engin þróun í sjónverndarmálum átt sér stað hér á landi um áratuga skeið. Spítala- þjónusta og þjónusta við landsbyggðina stóð í stað og var orðin allsendis ófullnægjandi. Við læknadeild háskólans var engin augndeild og verkleg kennsla stúdenta í augnlækningafræðum var heldur engin né göngudeild fyrir augnsjúklinga. Augnlæknar réru einir á báti. Blindutíðni af völdum hægfara gláku var mikil, enda ekki unnið skipulega að því að draga úr þeirri óheilla þróun að fólk yrði blint ef það fengi sjúkdóminn. Leit að gláku á byrjun- arstigi var vart hafin. Sjónskerðing af völdum sykur- sýki fór vaxandi. Engin skipuleg leit að sjóngöllum á forskólastigi var hafin svo að meirihluti 4-5 ára barna fékk ekki þá augnlæknisþjónustu, sem þau þörfnuð- ust. Miðað við nágrannalöndin höfðum við dregist aftur úr hvað augnlæknisþjónustu snerti og þurftum að senda augnsjúklinga til útlanda í meðferð vegna aðstöðuleysis hér heima. Það kom í ljós að sjónvernd er einn veigamesti þáttur í heilsugæslu bæði frá sjónarmiði þjóðfélagsins og einstaklinga þess en meginþættir hennar eru forvarnir og viðeigandi meðferð á greindum sjúkdómum. Einnig að sjónvernd þarf að ná til allra aldursflokka þjóðfélagsins. Meðal yngstu aldurs- flokkanna er augnskekkja og ýmsir sjóngallar algeng- ustu kvillar sem þarf að greina og veita viðeigandi meðferð í tæka tíð. Meðal ungs fólks eru slysin algengust, sykursýkin hjá þeim miðaldra og meðal aldraðs fólks er hægfara gláka og ellirýrnun í miðgróf sjónu veigamest. Það var deginum ljósara að heildarskipulag sjón- verndarmála væri veigamikill þáttur í heilsugæslu samfélagsins og gæti haft örlagarík áhrif fyrir marga þegna þjóðfélagsins. Enda þótt Landakotsspítali hafi verið aðalvettvangur augnskurðlækninga allt frá því að starfsemi hófst þar á haustdögum árið 1902, var Læknablaðið 2001/87 1011

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.