Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.2001, Síða 57

Læknablaðið - 15.12.2001, Síða 57
UMRÆÐA & FRÉTTIR / LEIÐBEININGAR LÍ FRÁ 1993 Leiðbeiningar Læknafélags íslands um samskipti lækna við framleiðendur og söluaðila lyfja og lækningatækja Tillögur nefndar LÍ sem starfaði frá mars 1992 til apríl 1993 Inngangur Pað er réttur framleiðenda og söluaðila lyfja og lækn- ingatækja að geta komið á framfæri við lækna upplýs- ingum um vörur sínar, séu upplýsingarnar byggðar á traustum rökum og nái jafnt til kosta og galla. Enn- fremur er þeim nauðsyn á samvinnu við lækna um vöruþróun og rannsóknarstarf. Stuðningur fyrirtækj- anna við fræðslu- og vísindastörf er læknastéttinni og þjóðfélaginu nauðsynlegur. Læknum ber að gæta þess að þessi samskipti skerði á engan hátt læknisheiður né rýri hæfni þeirra til að leggja hlutlægt mat á þá valkosti sem í boði eru við meðferð sjúklinga. Hafi þeir sér til hliðsjónar heitorð lækna, Codex Ethicus Læknafélags íslands frá 1992, lög Læknafélags Islands og læknalög. Eftirfarandi Ieiðbeiningar eiga að auðvelda samskipti lækna og fulltrúa framleiðenda lyfja og lækningatækja, svo að báðir hafi sóma af. Fræðslu- og kynningarstarf söluaðila lyfja og lækningatækja 1. Kynnum lyfja og lækningatækja ber að leita leyfis yfirlæknis eða viðkomandi læknis fyrir kynningar- fundi, og gera þá grein fyrir fundarefninu. Æski- legt er að læknar taki í sameiningu á móti kynnum lyfja og lækningatækja svo að umræður komi að sem mestum notum í menntunarlegu tilliti. 2. Á fræðslu- og kynningarfundum er læknum heim- ilt að þiggja hóflegar veitingar í fundarhléi. Ekki er viðeigandi að læknar taki við öðrum gjöfum frá kynningaraðilum en fræðsluefni og sýnishornum sem tengjast því. Stuðningur við endurmenntun og viðhaldsmenntun lækna 1. Heimilt er þeim sem veita læknum endurmenntun á fundum, námskeiðum og ráðstefnum að þiggja stuðning framleiðenda og söluaðila lyfja og lækn- ingatækja. Slíkur stuðningur skal að öðru jöfnu takmarkast við fagleg og vísindaleg viðfangsefni og vera án allra skuldbindinga um efnistök. 2. Læknar sem taka að sér fræðslu og fyrirlestrahald í þágu framleiðenda og söluaðila lyfja og lækn- ingatækja skulu fá greiddan útlagðan kostnað og endurgjald fyrir vinnuframlag sitt í samræmi við reglur Læknafélags íslands. Læknar eru frjálsir að formi og innihaldi fyrirlestra sinna. 3. Læknum er heimilt að þiggja ferðastyrki fyrir sjálfa sig af faglegum ástæðum til viðhalds- og endurmenntunar. Ber læknum skylda til að gera gæðakröfur í þessu sambandi og taka aðeins þátt í viðurkenndum vísindaráðstefnum um viðfangs- efni sín. Auglýsingar 1. Leyfilegt er að gefa framleiðendum lyfja og lækn- ingatækja kost á að kynna framleiðsluvörur sínar í tengslum við fundi lækna, námskeið og ráðstefn- ur. Gildir það einkum um þau fyrirtæki sem eru beinir stuðningsaðilar. Kynning á varningi, sem tengist því efni sem um er fjallað, hefur að öðru jöfnu forgang. 2. Allri auglýsinga- og kynningarstarfsemi fyrirtækja á fræðslusamkomum lækna ber að halda greini- lega aðskildri frá annarri fræðilegri umfjöllun. 3. Læknum ber að gæta þess að auglýsingum um lyf og lækningatæki sé ekki komið fyrir á stöðum sem almenningur á aðgang að, sbr. lyfjalög. Vísinda- og rannsóknarstörf 1. Læknum er heimilt að eiga samvinnu við fram- leiðendur lyfja og lækningatækja í vísinda- og rannsóknarskyni. Þeim ber þá að huga vel að regl- um um þetta efni, einkum Helsinkiyfirlýsingunni frá 1964 með síðari breytingum og Codex Ethicus L.í. 4. og 19. gr. Bæði getur verið um að ræða stuðning fyrirtækja við ákveðin rannsóknarverk- efni lækna og rannsóknir á lyfjameðferð og notkun tækja, sem læknar taka að sér að gera í þágu fyrirtækja. Skilyrði fyrir slíkri samvinnu er að stjórnandi rannsóknarinnar hafi góða vísinda- lega þekkingu og reynslu til starfans. 2. Æskilegt er, að læknar geri skriflegan samning við framleiðendur lyfja eða lækningatækja þegar um slíka samvinnu eða stuðning er að ræða. í samn- ingnum er tekið fram hver þóknun læknis eða fjár- stuðningur fyrirtækis sé. Ennfremur er þar kveðið á um hvernig nota megi niðurstöður, svo að tryggt sé að þær megi birta án tillits til hvers eðlis þær verða. 3. Læknum er heimilt að taka við greiðslu fyrir þá vinnu sem þeir inna af hendi við rannsóknarstarf- ið. Ennfremur má veita viðtöku þóknun vegna annars kostnaðar við rannsóknina, svo sem vegna efnis, ferða og uppihalds, samkvæmt venjum sem gilda um opinbera starfsmenn. Sama gildir um Htnabiaðið/Fréttabréflækna aðstoðarfólk lækna. 1993; 11 (8); 16-7.] Læknablabið 2001/87 1017
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.