Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.12.2001, Page 69

Læknablaðið - 15.12.2001, Page 69
UMRÆÐA & FRETTIR /BROSHORNIÐ 21 Bjarni Jónasson Sendiö efni í anda læknaskops í Broshornið, Læknablaðinu, Hlíðasmára 8, 201 Kópavogi eða í bréfasíma 564 4106 eða á netfang: bjcirni.jonasson@ gb.hgsl.is Getið þess hver sendir, en það sem birtist verður undir dulnefni. Læknablaðið áskilur sér rétt til að lagfæra texta. Af „sjússuml‘ og blóðflæði Kynöskur „Ég er komin út af manninum mínum,“ sagði konan við lækninn sinn. „Þegar við stundum kynlíf öskrar hann alveg rosalega í hvert skipti sem hann fær full- nægingu." „Það er nú svo sem ekkert athugavert við það í sjálfu sér. Mörgum konum finnst meira að segja æsandi að heyra karlinn öskra," sagði læknirinn. „Það þætti mér líka, ef hann væri ekki alltaf að vekja mig með þessum öskrum." Handþvottur Þegar maður lendir í djúpum, heimspekilegum pæl- ingum veltir maður því fyrir sér hvað skurðlæknar hafa eiginlega verið að bardúsa, sem réttlætir allan þennan handþvott! Uppörvun Ef þú ert niðurdreginn og heldur að þú þurfir víagra skaltu hitta fagmann. Ef það dugar ekki geturðu farið til læknis. Hundrað pund Lyflæknir og skurðlæknir hittust á götu í London. Lyflæknirinn: „What did you operate Mr. Jones for?“ Skurðlæknirinn: „A hundred pound." Lyflæknirinn: „No, I mean what had he got?“ Skurðlæknirinn: „A hundred pound." Enginn veit... Þreyttur unglæknir heyrðist tauta fyrir munni sér við enn ein bústaðarskiptin: „Enginn veit hvað átt hefur fyrr en flutt hefur.“ Fljótt, fljótt Er hröð fæðing ekki óðagot? Sjúss fyrir háttinn Læknar eru stundum spurðir út í atriði sem ekki er auðvelt að svara. Stundum þyrfti læknirinn að spyrja einhvers á móti. Sjúklingurinn: „Er ekki í lagi þótt ég fái mér vískí- sjúss fyrir háttinn?“ Læknirinn: „Ég fæ nú ekki séð að það geti skaðað þig neitt að ráði.“ Það sem læknirinn vissi ekki var að sjúklingurinn háttaði sig átta sinnum á dag. Skorið við nögl Margrét var nývöknuð eftir aðgerðina og garnir hennar gauluðu. Sjúkraliðinn kom með kvöldmatinn til hennar á bakka. Margrét leit yfir bakkann og gat ekki orða bundist. „Kjötbiti sem er þynnri en blað- síða í bók, kexkaka sem er jafnstór og baun og mat- skeið af rjómaís. Kallar þú þetta kvöldmat?“ „Mér þykir það leitt,“ sagði sjúkraliðinn, „en þetta er víst allt og sumt sem ég má færa þér að svo stöddu. Get ég annars gert eitthvað annað fyrir þig?“ „Já þakk," sagði Margrét, „mér þætti vænt um að þú sæktir frímerki handa mér svo ég geti lesið með matnum." Það sem sjúklingurinn má alls ekki heyra á aðgerðarstofunni „Flýtum okkur svo við missum ekki af Bráðavaktinni.“ „Þetta hláturgas er meiriháttar. Má ég fá aðeins í við- bót?“ „Hafðu ekki áhyggjur. Ég held að hnífurinn bíti alveg nógu vel.“ „Ég er ekki viss um hvað þetta er, en viltu fyrir alla muni flýta þér að setja það á ís.“ „Vissi læknirinn að maðurinn mundi líta svona út eftir aðgerðina?“ „Eldur, eldur, ailir út!“ „Hverdjö... hér vantarblaðsíðu47íkennslubókina." „Það er best að varðveita þetta stykki. Við gætum þurft á því að halda við krufninguna." Hætt við aðgerð Svo var það konan sem ætlaði að fara í aðgerð hjá lýtalækni en hætti við þegar hún sá læknastofuna hans skreytta með myndum eftir Picasso. Heilræði Farðu aldrei til læknis sem er með dauðar plöntur á stofunni hjá sér. Aukið blóðflæði Læknaneminn var á fullu í andlegum undirbúningi fyrir stefnumótið við draumadísina. Áætlunin gekk út á að sækja dömuna og snæða síðan dýrindis kvöld- verð á fínum veitingastað. Hvað síðan tæki við átti að ráðast af aðstæðum. Læknaneminn hafði pata af því að tiltekin pillutegund mundi auka blóðflæðið til neðri hluta búksins. Hann var tilbúinn að leggja eitt og annað á sig til þess að kynorkan yrði sem mest þegar á hólminn væri komið. Hann gleypti því töflu og fór svo og hitti dömuna. Stefnumótið endaði hins vegar óvænt þar eð herrann fékk brátt gyllinæðar- kast. Læknablabið 2001/87 1029 L

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.