Skessuhorn - 26.11.2014, Qupperneq 65
65MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 2014
Velkomin í Grundarfjörð
Aðventudagur Kvenfélagsins Gleym mér ei
Samkomuhúsinu í Grundarrði kl. 14:00 – 17:00
Dagskrá:
Vinasöngur Grunnskólans
Kór eldri borgara
Íþróttamaður ársins
Söngatriði: Amelía, Gréta og Kristbjörg
Úrslit úr ljósmyndasamkeppni Grundararðarbæjar
Vinningar í Jólahappdrættinu afhentir
Sölubásar
Súkkulaði- og vöusala
Happdrættismiðar verða seldir í Samkaupum
föstudaginn 28. nóvember, kl. 16:00 – 18:00
Kvenfélagið þakkar öllum þeim sem styrktu
Jólahappdrættið í ár
Aðventunefnd
Lionsklúbburinn tendrar ljósin á jólatrénu
á torginu kl. 17:00
Kirkjukórinn leiðir söng
Hvetjum foreldra til að mæta með
börnin sín og gera sér glaðan dag
Aðventunni fagnað í Grundarrði
Sunnudaginn 30. nóvember
Grundarfjar rbær
Guðsþjónusta í Grundararðarkirkju kl. 11:00
TSC alhliða net- og tölvuþjónusta
Allt í jólabaksturinn.
Fylgist með tilboðum.
Jólakveðja
Tónleikar fimmtud. 4. des.
Adam Edvald og hljóm-
sveitin Quest
1500 kr
Dansleikur annan í jólum
frá miðnætti - 80‘s ball
Opið:
Mánud. - fimmtud. kl. 11-23
Föstud. - laugard. kl. 11-01
Sunnud. kl. 12 - 22.30
Lokað 24. og 25. des.
Gamlársdag er lokað til miðnættis. Dansleikur frá miðnætti.
Lokað 1. og 2. jan.
Veitingahús - Kaffibar
Rú Ben - Grundargötu 59 - Grundafirði - Sími 438 6446
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
4
Vinahúsið Grund sem Grundar-
fjarðardeild Rauða kross Íslands
heldur úti, hélt upp á fimm ára
starfsafmæli sitt miðvikudaginn 19.
nóvember sl. Þá var slegið til alls-
herjar veislu í Sögumiðstöðinni en
þar hittast aðstandendur vinahúss-
ins tvisvar í viku. Einnig er haldið
svokallað karlakaffi einu sinni í viku
í verkalýðshúsinu. Vinahúsið fet-
ar í fótspor deildarinnar á Akranesi
sem hefur starfrækt endurhæfing-
arhúsið Hver í nokkur ár. Markmið
Vinahússins er að vera athvarf fyrir
þá sem af einhverjum ástæðum hafa
dottið út úr hlutverkum sínum í líf-
inu og er hver einstaklingur boðinn
velkominn á sínum eigin forsend-
um. Maður er manns gaman er eitt
af slagorðum og endurspeglaðist
það vel í afmælisveislunni þar sem
verulega glatt var á hjalla. Steinunn
Hansdóttir veitti fjölda gjafa við-
töku en hún er í forsvari fyrir Vina-
húsið í Grundarfirði. Það er ansi
kröftugur hópur fólks sem stendur
að þessu enda afraksturinn góður
en hópurinn hefur til dæmis stað-
ið að fatasendingum til Hvíta Rúss-
lands eins og komið hefur fram hér
í Skessuhorni.
tfk
Útskriftarnemar Fjöl-
brautaskóla Snæfellinga
sem hyggja á útskrift í des-
ember blésu til námsmara-
þons síðasta fimmtudag.
Þá lærðu þeir frá hálf níu
um morguninn og fram
á næsta morgunn. Nem-
endurnir voru sjö í hús-
næði skólans og einn í
deild skólans frá Patreks-
firði sem tók þátt í gegn-
um fjarfundabúnaðinn.
Það var hugur í hópnum
þegar fréttaritari Skessuhorns kíkti
í heimsókn og ætluðu krakkarnir að
klára þetta með sóma eins og þeim
einum er lagið. tfk
Á dögunum undirrituðu Háskólinn
á Bifröst og Kompás samning um
virkt samstarf háskólans og þekk-
ingarsamfélagsins. Kompás er vett-
vangur um miðlun hagnýtrar þekk-
ingar eða verkfærakista atvinnu-
lífs og skóla, sem byggir á sam-
starfi fjölda fyrirtækja, stofnana,
ráðuneyta, sveitarfélaga, stéttar-
félaga, háskóla og fræðsluaðila um
land allt. „Með samstarfinu er Há-
skólinn á Bifröst að efla enn frekar
góð tengsl sín við íslenskt atvinnu-
líf. Nemendur háskólans fá innsýn
í hagnýt verkfæri og fræðsluefni
frá atvinnulífinu sem nýtast þeim í
náminu og hvetur þá til þróunar og
rannsókna eða að útbúa ný verkfæri,
sem Kompás kemur aftur á fram-
færi við atvinnulífið. Þannig stuðl-
ar samstarfið annars vegar að teng-
ingu akademískrar þekkingar og
hagnýtrar þekkingar í þágu íslensks
atvinnulífs og skóla og hins vegar
að aukinni framleiðni, framþróun,
hagsæld, og samfélagsábyrgð,“ seg-
ir í tilkynningu frá skólanum.
mm
Brynjar Þór Þorsteinsson, markaðs-
stjóri Háskólans á Bifröst, og Björgvin
Filippusson, stofnandi Kompás
þekkingarsamfélagsins, skrifa undir
samninginn og handsala samstarfið.
Samstarf Háskólans á Bifröst
og þekkingarsamfélagsins
Hressir fjölbrautaskólanemar í námsmaraþoni í
Grundarfirði.
Námsmaraþon hjá
fjölbrautaskólanemum
Þorsteinn Steinsson bæjarstjóri afhendir blómvönd frá Grundarfjarðarbæ.
Fimm ára afmæli Vinahússins Grundar
Margir litu inn í Vinahúsið í tilefni afmælisins.
Sævör Þorvarðardóttir afhendir
Steinunni Hansdóttir forstöðukonu
blómvönd í tilefni tímamótanna.