Skessuhorn - 26.11.2014, Side 87
87MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 2014
Persónuleg og góð
þjónusta við landbúnað,
sjávarútveg, íslenskan
iðnað og einstaklinga
Kemi • Tunguhálsi 10, 110 Reykjavík • www.kemi.is • Sími: 544 5466
Opið: Mánudag - fimmtudags: Frá kl. 8.00-17.30. Föstudaga: Frá kl. 8.00-17.00.
KÍKTU Í KEMI OG SKOÐAÐU ÚRVALIÐ!
– Þekking og þjónusta í 20 ár
ir þessir atburðir, orð og athafnir,
örugglega haft mikil áhrif á hina
ungu aldamótamenn á Akranesi.
Endalok hinna
fyrstu tækja
Júlíus Þórðarson var spurð-
ur um afdrif Akranestraktorsins:
„Ég hafði orð á því við þá Bjarna
Ólafsson og pabba, að nú mundi
ég í þeirra sporum steypa pall við
skurðinn þar sem vélin hafði ver-
ið að vinna og stilla henni upp til
frambúðar. Sýna þar fyrsta trak-
tor á Íslandi. Þá sló Bjarni á hné
sér og sagði: „Ég ætti það eftir! Ég
held að það sé búið að eyða nógu
undir hana líka“. Og svo settu þeir
hana beina leið í brotajárn til Eng-
lands, og þar fór hún örugglega í
vopnasmíði…“ Af fyrstu skurðgröf-
unni er það að segja að Karl Auð-
unsson á Jaðri gerir hana upp fyr-
ir landbúnaðarsýningu. Eftir það er
hún flutt upp að Görðum á Akra-
nesi, þar sem hún er í góðri umsjón
hans og eftirliti. Eftir að árin líða
fór vélin að skemmast og kom þá til
tals að farga henni. Þegar hér var
komið sögu barst Pétri G. Jónssyni
hjá Þjóðminjasafni Íslands þetta til
eyrna, en hann brást þegar við og
bjargaði gröfunni frá glötun. Pét-
ur var elsti sonur sr. Jóns M. Guð-
jónssonar stofnanda Byggðasafns-
ins í Görðum. Pétur kom gröfunni
fyrst í hús í Árbæjarsafni en síðar í
geymslu Þjóðminjasafnsins í Kópa-
vogi. Þar bíður hún nú örlaga sinna
í miður góðu ástandi, svo ekki sé
meira sagt, og þarf snöggar hendur
til að bjarga henni þaðan! En það
er af fyrsta þilfarsvélbátnum Fram
að segja að hann var um síðir lík-
lega seldur til Vestmannaeyja þar
sem hann var rifinn, um 1915 eða
16.
Lokaorð í bundnu máli
Fyrsti vélbáturinn, Fram var
oft fenginn til fólksflutninga til
Reykjavíkur. Guðmundur Þórðar-
son frá Hamri, sem var býli nokkru
fyrir innan Ós í núverandi landi
Vallaness, tók sér far til Reykjavík-
ur, en skipstjóri var Bjarni Ólafs-
son. Þetta mun hafa verið 1907. Á
leiðinni til Reykjavíkur gerði Guð-
mundur þessar vísur:
Báturinn Fram - um flyðru-
hvamminn skríður
Heitir Bjarni – hann er barn að
aldri
heppinn skýr og hugaður
linna tjarna lárviður
honum stýrir Ólafsbur
lítt ágjarn en góðsamur.
Fyrir vísur þessar fékk Guð-
mundur ókeypis far til Reykjavíkur,
sem mun hafa verið ein króna.
Ásmundur Ólafsson tók saman.
Heimildir: Rit Ólafs B. Björnssonar, bernsku-
minningar Sigurðar í Tryggvaskála, æviskrár
Akurnesinga og Borgfirðinga, viðtöl við Júl-
íus Þórðarson o.fl.
Myndirnar eru allar varðveittar á Ljósmynda-
safni Akraness og birtar með góðfúslegu
safnsins.
Einn af fyrstu fólksbílunum á Akranesi. Farþegar frá vinstri: Júlíus Þórðarson, Ása Finsen, Ólafur B. Björnsson, Elín Ásmunds-
dóttir og Bjarni Ólafsson, skipstjóri. Bjarni flutti inn fyrstu dráttarvélina til landsins 1918 ásamt Þórði Ásmundssyni. Einnig
keyptu þeir félagar fyrsta bílinn til Akraness árið 1922, en það var vörubíll af Ford gerð, sem þeir notuðu við atvinnurekstur
sinn á Akranesi og í Elínarhöfða. Hér má einnig geta þess að þeir hálfbræður Ólafur B. Björnsson og Bjarni Ólafsson voru
fyrstir manna til að setja upp rafstöð á Akranesi, en ljósin frá þeirri rafstöð voru svo kveikt á jólum 1918, og þóttu mikil við-
brigði frá olíulömpunum. Þórður Ásmundsson setti árið eftir -1919- upp rafstöð í verslunarhús sín og leiddi frá henni í fimm
næstu hús. Myndin er líklega tekin um 1930. Myndhöfundur: Hansína Guðmundsdóttir.
Fyrsta vélfrystihúsið á Akranesi tók til starfa árið 1928 og hófst vélfrystingin
í íshúsi Þórðar Ásmundssonar neðst við Suðurgötu. Húsið ráku saman Bjarni
Ólafsson & Co. og Þórður Ásmundsson. Einnig má geta þess hér að fyrsta
íslenska frystivélin var smíðuð af Vélsmiðjunni Héðni í Reykjavík og sett upp í
Heimaskagafrystihúsinu á Akranesi árið 1954, en áður höfðu slíkar vélar verið
innfluttar. Ljósmyndari óþekktur.
Júlíus Þórðarson á Grund mun hafa keypt fyrsta mótorhjólið sem kom til Akra-
ness, fyrir 1930. Hjólið var af gerðinni Harley Davidson. Hér er Júlíus í hópi skáta
sem gistu í tjöldum við Akrafjall. Júlíus var einn þeirra fyrstu á Akranesi að stunda
vélgæslu, fyrst hjá Óskari Halldórssyni í frystihúsi hans, Herðubreið í Reykjavík og
á Ísafirði. Myndhöfundur: Guðjón Bjarnason.