Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.05.2002, Page 39

Læknablaðið - 15.05.2002, Page 39
FRÆÐIGREINAR / KLÍNÍSKAR LEIÐBEININGAR Klamýdía: greining, meðferð og eftirlit Samantekt vinnuhóps á vegum Landlæknisembættisins Konur og karlar með einfalda sýkingu EP 1 azitrómýsín 1 gr í einum skammti eöa A. 2 doxýcýklín 100 mg x 2 í sjö daga eöa 123 3 ófloxasín 200 mg á dag í sjö daga eöa iH 4 erýtrómýsín 500 mg x 4 í sjö daga eða 5 mínócýklín 100 mg á dag í níu daga Þungaðar konur H 1 erýtrómýsín 500 mg x 4 í sjö daga eöa Iffl 2 amoxícíllín 500 mg x 3 I sjö daga SS Kona sem fer í fóstureyðingu ætti aö fá fyrirbyggjandi sýklameðferð nema staðfest sé með prófi að hún er ekki smituð af klamýdíu. Einstaklinga með einkenni eöa merki um klamýdíusýkingu og rekkjunauta þeirra ætti að meðhöndla án þess að bíða eftir niðurstöðu prófs. Rekkjunautar þurfa að koma í skoöun, meöal annars til að rekja smit. Ef um fast samband er að ræða skal meðhöndla rekkjunaut þó klamýdíupróf sé neikvætt. Leiðbeiningarnar gerði vinnuhópur á vegum Iandlæknis, en hann skipa Jón Hjaltalín Ólafsson, Ólafur Steingrímsson, Rannveig Einarsdóttir, Reynir Tómas Geirsson, Sigurður Helgason og Steingrímur Davíðsson. Leiðbeiningarnar voru fyrst birtar í byrjun árs 2001 og endurskoðaðar í janúar 2002 án þess að tilefni gæfist tii breytinga. Endurskoðun er áætluð 2003. Að rekja smit | IE0 Sjúklingur skal njóta aðstoðar sérþjálfaðs heilbrigðisstarfsmanns við að rekja smit. EBi Sjúklingi skal boðið að hafa sjálfur samband við rekkjunauta eða láta heilbrigðisstarfsmann annast það án þess að nafn sjúklings komi fram. Einnig má gefa sjúklingi ákveðinn frest til að láta rekkjunauta vita. Hafi þeir ekki haft samband eftir þann tíma skulu þeir boðaðir í sýnatöku án þess að nafns sjúklings sé getið. ■ I öllum tilvikum ætti að reyna af fremsta megni að rekja smit sex mánuði aftur í tímann. Ef lengra er um liðið frá samneyti við síðasta rekkjunaut ætti samt að reyna að ná I viðkomandi. Tilkynningaskylda | Munið að klamýdía er tilkynningaskyld sýking og hvert tilfelli þarf að tilkynna til sóttvarnalæknis. Eftirlit K Hafa ætti samband við alla eftir meðferð til að kanna meðferðarheldni og meta líkur á endursmiti. B Ef meðferðarheldni er talin léleg eða hætta á endursmiti er ráðlagt að staðfesta árangur meðferðar með prófi. Fræðsla | ffij Allir sjúklingar með klamýdíu eiga að fá viðeigandi heilbrigðisfræðslu, þar á meðal skriflegar upplýsingar. B Nota ætti öll tækifæri sem bjóöast til að koma viðeigandi fræðslu um kynsjúkdóma og kynlíf á framfæri. Læknablaðið 2002/88 415

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.