Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.05.2002, Page 52

Læknablaðið - 15.05.2002, Page 52
UMRÆÐA & FRÉTTIR / HJARTAVERND í KÓPAVOGI Gerbreytt aðstaða og 40 nýír starfsmenn Þröstur Haraldsson Hjartavernd er með tvœr og hálfa hœð íþessu reisulega húsi við Holtasmára t Kópavogi. Ljósm. Tölvumyndir. Uggi Agnarsson lœknir og Lilja Petra Ásgeirsdóttir ómtœknir rannsaka sjúkling í ómtœki. Hjartavernd er að flytja í nýtt húsnæði en í fram- tíðinni verður þátttakendum í hóprannsóknum og öðrum sem erindi eiga við samtökin stefnt í Holta- smára 1 í Kópavogi. Þar er nýrisið stórt og glæsilegt hús og fær Hjartavernd til umráða hálfa þriðju hæð, alls 2500 fermetra. Við þetta gerbreytist öll starfs- aðstaða félagsins eins og blaðamanni Læknablaðsins varð ljóst þegar hann gekk um salarkynnin í Holta- smáranum með Vilmundi Guðnasyni forstöðulækni. Húsaskipan á nýja staðnum er þannig að á neðstu hæð er myndgreiningardeild þar sem gefur að líta fullkomnustu tæki sinnar tegundar hér á landi. Þar er fyrst lil að taka segulómtæki sem varð frægt fyrir það að hrynja úr krana og eyðileggjast þegar verið var að koma því fyrir í húsinu. Höfð voru snör handtök og nýtt tæki útvegað sem komið er á sinn stað. Einnig er þarna öflugt tölvusneiðmyndatæki, ómtæki og sægur af tölvum sem notaðar eru við myndgreiningu. Sú tíð er liðin að menn séu að rýna í filmur á ljósatöflum, allar myndir eru á rafrænu og tölvutæku formi sem auðveldar greiningu, vinnslu og varðveislu þeirra. Á næstu hæð er móttaka og hefðbundin aðstaða til sýnatöku, mælinga og viðtala við sjúklinga og þátt- takendur í rannsóknum. Þar eru einnig rammgerðar skjalageymslur og vinnuaðstaða fyrir vísindamenn. Á efstu hæðinni sem Hjartavernd ræður yfir er svo rannsóknarstofa með fjölda nýrra tækja, kæli- og frystigeymsla fyrir sýni og skrifstofur stjórnenda. Viðamesta rannsóknin að hefjast Þeir sem þekkja til fyrra húsnæðis samtakanna í Lág- rnúla sjá fljótt að aðstaða til rannsókna og annarra starfa er allt önnur. Vilntundur staðfesti það og bætti því við að nýju húsakynnin gerðu samtökunum kleift að bæta við sig allt að 40 nýjum starfsmönnum, þar á meðal ntörgum læknum og vísindamönnum. „Með þessurn nýja tækjabúnaði og fjölgun starfs- fólks getum við tekist á hendur rannsóknir sem ekki hefur verið hægt að gera hér á landi.“ Helsta ástæða flutninganna er sú að Hjartavernd fékk stóran styrk frá bandarísku heilbrigðisstofnun- 428 Læknablaðið 2002/88

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.