Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.05.2002, Síða 71

Læknablaðið - 15.05.2002, Síða 71
UMRÆÐA & FRÉTTIR / BROSHORNIÐ 26 Af hiksta og beinagrind í gegnumlýsingu „Heyrðu mig læknir, hvað er eiginlega að manninum mínum?“ spurði Lára áhyggjufull. „Það er ekki alveg á hreinu,“ sagði læknirinn, „og þess vegna ætla ég að senda hann í gegnumlýsingu." „Það er nú algjör óþarfi því ég er búin að sjá í gegnum þann ímyndunarveika mann frá því við kynntumst." Lækning við hiksta Maður nokkur kom hlaupandi inn á bráðamóttök- una. Hann var mjög áhyggjufullur á svip og gekk að fyrsta lækninum sem hann sá og spurði: „Hver er besta leiðin til að stöðva hiksta?" Eins og hendi væri veifað löðrungaði læknirinn manninn. Sá síðarnefndi varð vægast sagt mjög undrandi og var greinilega brugðið. „Hvað á svona háttarlag að þýða?“ spurði hann og varð hinn argasti. „Eins og þú veist þá ertu ekki með hiksta núna,“ sagði læknirinn eins biíðlega og hann gat. „Það getur vel verið,“ sagði maðurinn, „en það er konan mín sem bíður í bíl hérna fyrir utan sem er enn að hiksta.“ Viö dauðans dyr Hjartalínuritið gaf til kynna að hjartað hætti að slá og gamli maðurinn missti meðvitund. Eftir endurlífgun í um það bil tuttugu sekúndur fór hjartað í gang aftur og nokkru síðar komst maðurinn til meðvitundar á ný. Þegar sá gamli var orðinn málhress greindi lækn- irinn honum frá því að hjartað hefði stoppað og spurði hvort hann gæti munað eftir einhvetju sér- stöku frá þeirri stund. „Eg sá skært ljós,“ sagði mað- urinn, „og fyrir framan mig stóð hvítklæddur maður.“ Læknirinn varð mjög forvitinn að heyra meira af reynslu mannsins sem staðið hafði við dauðans dyr. „Gætirðu nokkuð lýst þessari mannveru nánar sem þú sást standa fyrir framan þig?“ spurði læknirinn. „Alveg sjálfsagt. Það varst þú.“ Viö fjórða mann Læknirinn fékk símtal frá starfsbróður sínum. „Okk- ur vantar fjórða mann í póker,“ sagði röddin í síman- um. „Eg kem strax,“ sagði læknirinn. Þegar hann var að fara í frakkann spurði frúin: „Er það eitthvað alvarlegt?" „Já, það má eiginlega segja það. Þeir þurftu að kalla í þrjá lækna til viðbótar." Beinagrind í skápnum Læknissonurinn fimm ára var að leika sér ásamt vini sínum inni á skrifstofu föður síns sem nýbúið var að taka í gegn í hólf og gólf. Leikfélaginn reif upp hurð á skáp og þar blasti við honum beinagrind sem hékk á slá. Drengurinn varð logandi hræddur en sonur lækn- isins greip í handlegginn á honum og reyndi að róa hann með því að segja að pabbi sinn væri búinn að eiga beinagrindina í mörg ár. „Af einhverri undarlegri ástæðu þykir honum vænt um beinagrindina," sagði læknissonurinn. „Af hverju?“ spurði vinurinn. „Ég veit það ekki,“ sagði sonurinn, „ef til vill er hún af fyrsta sjúklingnum hans.“ Lestur vísindarita Læknanemar: lesa heila grein í læknablaði en skilja lítið sem ekkert af því sem um er fjallað. Lœknakandídatar: nota læknablöð sem kodda þegar þeir halla sér á næturvaktinni. Aðstoðarlœknar: lesa útdráttinn úr grein en kæra sig kollótta um sjálfa greinina. Heimilislœknar: lesa ekki læknablöð en hafa augun opin fyrir greinum um læknisfræði í Time og News- week. Yfirmenn lœknadeilda: lesa heila grein í læknablaði en skilja lítið sem ekkert af því sem um er fjallað. Ein með útferö Alexandrína hitti heimilislækninn sinn og kvartaði um útferð. Hann bað hana að klæða sig úr og halla sér á skoðunarbekkinn. Síðan setti hann á sig gúmmí- hanskana og tók að skoða konuna neðan beltis. „Ertu eitthvað aum hérna?“ spurði læknirinn. „Nei, alls ekki, ég er með útferð úr eyranu." Fyrir lífstíö Konan hringdi í öngum sínum til læknisins. „Er það satt að ég þurfi að taka lyfið alla ævi sem þú ert nýbú- inn að skrifa út fyrir mig?“ „Já, það verður víst að vera svo,“ sagði læknirinn. Það var dauðaþögn í símanum en svo hélt konan áfram: „Þá verður þú að segja mér hvað ég er alvar- lega veik því á lyfseðlinum stóð: „Afgreiðist einu sinni. ““ Bjarni Jónasson bjarni.jonasson@gb.hgst.is Læknablaðið 2002/88 447
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.