Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.11.2003, Blaðsíða 65

Læknablaðið - 15.11.2003, Blaðsíða 65
UMRÆÐA & FRÉTTIR / BROSHORNIÐ 42 Opin búð og veik ímyndun Bætt á sig þyngd Eldri herra kom til heimilislæknisins út af þrálátum hósta. Þeir höfðu þekkst í tvo áratugi og samskiptin verið góð og gefandi fyrir báða. Gamli maðurinn hafði alla tíð verið grannvaxinn og hinn spengilegasti. Það hefði þurft blindan mann til að taka ekki eftir því að nokkur kíló höfðu bæst við þau hóflegu 65 kíló sem höfðu fylgt þeim gamla í seinni tíð. „Ertu eitthvað að horfa í það við mig, Bjarni minn, að ég hef aðeins bætt á mig?“ spurði öldungur- inn sposkur á svip. „Nei, svo sem ekki og ég verð að segja að þú máttir nú alveg við því að þyngjast aðeins, Georg minn,“ sagði Bjarni læknir. „Æ, það gerir víst ekkert til. Ég verð hvort eð er aldrei áttatíuogsex ára aftur,“ sagði Georg og brosti. Opin búð Haraldur var reffilegur ekkjumaður á áttræðisaldri sem missti allt sem hann lifði fyrir þegar konan hans dó. Við tóku erfið ár og hann kom alloft við hjá Bjarti heimilislækni sínum til að fá ráðleggingar en mest þó til að létta á sér. Um síðir tóku við bjartari tímar og Haraldur fékk áhuga á lífinu og tilverunni á nýjan leik. Hann hafði meira að segja áhuga á að fá að vita eitt og annað um svokölluð rislyf og bað svo um að fá að prófa viagra. Það var auðsótt mál og líf tók að fær- ast í það sem dautt var talið. Haraldur var sæll og sáttur. Þegar hann kom svo uppáklæddur og fínn til heimilislæknisins til að fá fjölnota lyfseðil komst læknirinn ekki hjá því að taka eftir því að maðurinn var með opna buxnaklauf. „Það er kannski betra að þú heyrir það frá mér svona áður en þú ferð héðan frekar en að heyra það úti í bæ að þú ert með opna búð, Haraldur minn.“ „Jæja, er það svo, minn kæri? Það er víst engin hætta á að neinn gægist þarna út,“ sagði Haraldur brosandi og svo hlógu þeir báðir. Tveir á nærbuxunum Rúmlega þrítugur karlmaður kom á heilsugæslustöð og bar sig illa út af inngróinni nögl á hægri stórutá. Hann var ekki fyrr kominn inn þegar stór og stæðileg hjúkka skipaði honum valdsmannsleg á svip að fara inn á skoðunarherbergi og klæða sig úr fötunum. „En mér er bara illt í tánni,“ sagði maðurinn. „Svona gerðu eins og ég segi,“ sagði hjúkkan ákveðin og maðurinn þorði ekki annað en gegna. í skoðunarherberginu sat annar karlmaður hálf- strípaður. „Þetta er alveg fáránlegt,“ sagði maðurinn með tána. „Ég kem hingað með inngróna nögl á tá og er látinn hátta mig.“ „Ég skil nú ekki hvað þú ert að fárast yfir því,“ sagði hinn maðurinn. „Ég kom til að gera við sím- ann.“ Af bílaviögeröum Bíllinn bilaði og læknirinn fór með hann á verkstæði. „Þið bílaviðgerðamenn eruð með miklu hærra kaup á tímann en við læknarnir," sagði sá sem átti bilaða bílinn. „Það getur vel verið, „doksi“ minn, en þið eruð alltaf að gera við sama módelið sem hefur ekkert breyst frá því Adam var og hét. Við bílaviðgerða- mennirnir þurfum stöðugt að halda okkur við af því að á hverju ári kemur nýtt módel.“ Veik ímyndun ímyndunarveikur maður hitti lækni sinn og sagðist vera með lífshættulegan lifrarsjúkdóm. „Hvaða vit- leysa er þetta?“ spurði læknirinn. „Það er engin leið til þess að þú gætir vitað að þú værir með þann sjúk- dóm því þeir sem fá hann finna ekkert fyrir honum.“ „Ég er einmitt nákvæmlega með þau einkenni,“ sagði sá ímyndunarveiki og var ekki skemmt. Lægri kyngeta Gamall maður kom til læknis og sagði áhyggjufullur: „Heyrðu Tómas læknir, þú verður að lækka kynget- una hjá mér.“ Tómas var alls óviðbúinn þessari ósk mannsins en vildi vera viss um að hann hefði heyrt rétt. „Hvað segirðu, viltu að ég lækki kyngetuna þína?“ „Já, nákvæmlega,“ sagði sá gamli, „hún er öll í hausnum á mér og ég verð að ná henni niður.“ Bjarni Jónasson bjarni.jonasson@gb.hgst.is Læknablaðid 2003/89 889
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.