Læknablaðið - 15.11.2004, Qupperneq 10
RITSTJÓRNARGREINAR
með gagnvirkum sjónvarpstengingum á heimili sínu.
Með hagnýtingu skipulegra flæðirita og aðstoðar fag-
fólks getur sjúklingurinn til dæmis sjálfur fylgst með
eigin mælingarniðurstöðum og stýrt skammtastærð
algengra lyfja, svo sem blóðþynningar-, blóðþrýst-
ings-, sykursýkis- og skjaldkirtilslyfja. Bætt upplýs-
ingaflæði auðveldar sjúklingnum að velja strax réttan
stað í heilbrigðisþjónustunni og forðar þannig fjölda
óþarfra heimsókna á bráðamóttökur sjúkrahúsanna
vegna vandamála sem ekki krefjast bráðra eða sér-
hæfðra úrlausna. Þessu gæti fylgt mikið hagræði og
sparnaður í heilbrigðiskerfinu.
Heilbrigðisþjónustan er smám saman að færast í
átt að einstaklingsmiðaðri þjónustu þar sem sjúkling-
urinn sjálfur er þátttakandi og meðvirkur í ákvarðana-
töku. Meiri áhersla er lögð á fyrirbyggjandi aðgerðir
og greiningu sjúkdóma á frumstigi. Sjúklingar gera
aukna kröfu um skjóta sjúkdómsgreiningu og bestu
mögulega meðferð. Hlutverk læknisins er að breyt-
ast og verður sífellt meira ráðgefandi í stað þess að
stjórna með valdboði.
Saga læknisfræðinnar geymir mörg dæmi um litlar
uppgötvanir sem ollu straumhvörfum vegna þess að
framsýnir menn kunnu að tileinka sér nýjungar og
þróa þær áfram. Upplýsingatækni nútímans býr yfir
möguleikum til gríðarlegra framfara í læknisfræði.
Við læknar þurfum koma auga á þessa möguleika og
nýta þá til að þróa fræðigreinina á komandi árum.
Fræðigreinar íslenskra lækna í erlendum tímaritum
Hans Tómas Björnsson sem er læknir í rannsóknarnámi í Bandaríkjunum hefur
birt eftirfarandi greinar í erlendum tímaritum, sú fyrrnefnda er yfirlitsgrein og
tímaritið heitir Trends in Genetics.
Björnsson HT, Fallin MD, Feinberg AP. An integrated epigenetic and genetic
approach to common human disease. Trends Genet 2004 Aug; 20: 350-8.
Björnsson HT, Gius D, Feinberg AP. The new field of epigenomics: impli-
cations for cancer and other common disease research. Cold Spring Harbor
Symposia on Quantitative Biology. 2004. Symposium 69. Cold Spring Har-
bor Press.
Hans Tómas Björnsson.
Ársæll Jónsson öldrunarlæknir er meðal höfunda greinar sem birtist í Danish
Medical Bulletin síðastliðið haust. Hún er samstofna grein hans og fleiri í Lækna-
blaðinu í ársbyrjun 2002: Öldrunarendurhœfing innan öldrunarlœkninga á Norð-
urlöndum, Læknablaðið 2002; 88: 29-38. Greinin er samvinnuverkefni kennara í
öldrunarlækningum. Tilvísun til hennar er:
Jónsson Á, Gustafson Y, Schroll M, Hansen FR, Saarela M, Nygaard H,
et al. Geriatric rehabilitation as an integral part of geriatric medicine in the
Nordic countries. Dan Med Bull 2003; 50: 439-45.
738 Læknablaðið 2004/90