Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.11.2004, Blaðsíða 43

Læknablaðið - 15.11.2004, Blaðsíða 43
FRÆÐIGREINAR / HEILABILUN ALDRAÐRA aðrar konur. Óljóst er af hverju meðalaldur kvenna við vistun lækkaði ekki samfara aukinni heilabilun eins og raunin er hjá körlum en erlendar rannsóknir hafa sýnt að heilabilun flýtir fyrir vistun (23). Heild- arstig við vistun hækkuðu samfara aukinni heilabilun og kemur það ekki á óvart þar sem margir þættir vist- unarmatsins tengjast vitrænni getu. Karlar lifðu skemur eftir því sem heilabilun var meiri við fyrsta vistunarmat og var sá munur á mörk- unum að vera marktækur, p=0,06. Konur lifðu lengur eftir því sem heilabilun var meiri við fyrsta mat. Fyrri rannsóknir hafa sýnt fram á tengsl heilabilunar við skemmri lifun (20,22,24) en þetta samband sást ekki hjá konum í þessari rannsókn. Það er þó ekki óeðli- legt að þetta samband hafi ekki komið fram þar sem þessi rannsókn er ekki heppileg til að athuga lifun eftir greiningu heilabilunar. Til að mynda er ákveðin valskekkja á hópnum en hann samanstendur af öllum þeim sem undirgengust vistunarmat og eru mismun- andi ástæður fyrir því hvenær aldraðir fá vistunarmat. Mögulegt er að aldraðir sem voru taldir með enga eða væga heilabilun hafi verið veikari við fyrsta mat í hjúkrunarþörf en þeir öldruðu sem taldir voru með heilabilun og lifðu því skemur. Ástæðan fyrir því að þeir fengu vistunarmat voru því aðrar skerðingar en vitræn. Einnig er greining heilabilunar á vistunarmati ekki sú sama og hefðbundin læknisfræðileg greining á heilabilun. Þessi heilabilunarrannsókn er því ekki sambærileg við flestar aðrar rannsóknir á heilabilun og verður að líta á allan samanburð í því ljósi. Konur með enga eða væga heilabilun við fyrsta vistunarmat lifðu skemur en konur með þó nokkra, mikla eða afar mikla heilabilun. Munurinn skýrist að mestu leyti af því að meðalaldur kvenna með enga eða væga heilabilun er hærri við fyrsta mat eða 83,8 ± 0,5 ár en meðalaldurinn hjá konum með þó nokkra, mikla eða afar mikla er 82,8 ± 0,4 ár. Konur lifa nokk- uð lengur eftir fyrsta vistunarmat heldur en karlar og má því álykta að þær séu líkamlega hraustari þegar þær sækja fyrst um vistun á hjúkrunarheimili en karl- ar. Skýringin á því að konur sækja fyrr um er líklega sú að konurnar vantar stuðning til þess að geta verið lengur heima. Bæði lifa karlar skemur en konur og einnig eru þeir oftar eldri en eiginkonur sínar og hafa því oftar stuðning eiginkonunnar heima. Til að jafna þennan mun þyrftu konur í auknum mæli að finna sér yngri maka! Fyrirfram bjuggust höfundar við því að eftir því sem heilabilun væri meiri og þar með heildarstig þá myndi biðtími minnka. Hjá konum minnkar biðtím- inn eftir því sem heilabilun er meiri en það er eðlileg forgangsröðun. Hins vegar jókst biðtíminn hjá körlum eftir því sem heilabilun var meiri. Eftir því sem heila- bilun er meiri þá ætti þörf fyrir vistun að vera meiri og biðtími hlutfallslega styttri. Mismunandi aðstæður aðstandenda kunna að ráða nokkru um mismunandi Tafla VIII. Spáþættir lifunar hjá konum skoðaðir eftir stigi heilabilunar. Heilabilun Fjöldi Áhættu- stuðull Vikmörk p-gildi Engin 339 Aldur við fyrsta mat 1,034 1,018 -1,051 < 0,001 - 339 Lyfjagjöf 1,053 1,005 -1,104 0,031 - 339 Líkamlegt heilsufar 1,036 0,995-1,079 0,088 - 339 Hæfni til að klæðast 0,954 0,903 -1,009 0,099 - 339 Stjórn á þvaglátum og hægðum 1,037 0,989 -1,087 0,136 Væg 296 Aldur við fyrsta mat 1,054 1,034 -1,063 < 0,001 296 Stjórn á þvaglátum og hægðum 0,940 0,885-0,998 0,042 296 Hæfni til að klæðast 1,059 0,999 -1,123 0,053 - 296 Hreyfigeta 1,059 0,990 -1,132 0,095 Þó nokkur 438 Aldur við fyrsta mat 1,042 1,025 -1,059 < 0,001 - 438 Hreyflgeta 1,058 1,011 -1,107 0,016 - 438 Hæfni til að klæðast 1,053 1,004 -1,104 0,032 Mikil eða afar mikil 326 Aldur við fyrsta mat 1,040 1,022 -1,059 < 0,001 - 326 Hreyflgeta 1,062 1,020 -1,105 0,003 - 326 Hæfni til að matast 1,062 0,998-1,129 0,056 Tafla IX. Skipting heilabilaðra á hjúkrunarheimili Stig heila- 0 3 5 7 10 5, 7 eða 10 Meöalstig fyrir bílunar heilabilun Hjúkrunarheimili 1 13% 23% 33% 26% 6% 64% 4,7 ± 2,6 2 15% 21% 38% 20% 6% 64% 4,5 ±2,6 3 22% 19% 28% 26% 5% 59% 4,3 ± 2,8 4 22% 19% 31% 23% 5% 59% 4,2 ± 2,8 5 19% 22% 33% 22% 4% 58% 4,2 ±2,6 6 18% 24% 33% 23% 2% 58% 4,2 ±2,5 7 20% 25% 32% 20% 3% 55% 4,1 ± 2,6 8 23% 27% 27% 20% 4% 51% 3,9 ±2,7 9 23% 24% 32% 19% 2% 53% 3,9 ± 2,6 10 31% 25% 17% 17% 11% 44% 3,8 ±3,3 11 27% 23% 29% 17% 5% 51% 3,8 ± 2,8 Meöaltal 21% 23% 31% 21% 5% 57% 4,2 ± 2,7 Tafla IX sýnir hversu stórt hlutfall vistaðra er á hvaöa stigi heilabilunar við vistun. Hverju hjúkrunarheimili á Höfuóborgarsvasðinu úthlutaö númeri í stað nafns hjúkrunarheimilisins. Þau hjúkrunarheimili sem vistuóu fasrri en 90 manns á tímabilinu voru skoðuð saman og fengu úthlutaö númerinu 2. biðtíma, svo sem lengri líftími kvenna sem þar af leið- andi eru oftar í stuðningshlutverki en karlar. Hjúkr- unarheimilin ættu að taka til athugunar að auka for- gang karla með mikla heilabilun því erfitt er að sinna mikið heilabiluðum einstaklingum heima. Jafnframt eru þessir einstaklingar oftar með hærri stig í öðrum þáttum vistunarmatsins sem ætti enn fremur að auka á forgang þeirra. Óljóst er af hverju karlar með væga heilabilun vist- ast hlutfallslega oftar en aðrir karlar. Hluti af skýring- unni kann að vera sú að karlar með væga heilabilun eru líklegri til að lifa fyrsta árið eftir vistunarmat og eru því auknar líkur á því að þeir nái að vistast þar Læknablaðið 2004/90 771
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.