Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.11.2004, Blaðsíða 61

Læknablaðið - 15.11.2004, Blaðsíða 61
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ÁRSFUNDUR WMA - En hvernig voru umræðurnar? - Þær voru töluvert fastar í forminu. Stjórnarmenn höfðu allir hljóðnema fyrir framan sig og tóku þátt í umræðum úr sætum sínum þegar þeim þótti tilefni til. Fyrir aðra fundarmenn voru hljóðnemar á nokk- rum stöðum í salnum og þurftu þeir að biðja um orðið sem þeir gerðu töluvert af og voru þeir stundum með tilbúnar ræður. í einstaka tilvikum fékk maður á til- finninguna að menn væru að vekja athygli á sjálfum sér og/eða sínu landi frekar en þeir hefðu brennandi áhuga á málefninu. Ekki er ósennilegt að þar að baki búi pólitísk sjónarmið með frama innan samtakanna í huga. Skilvirkur fundur - Var ekki menningarmunur innan svo fjölbreytts hóps? - Jú, en þó varð maður ekki svo mjög var við það á fundunum sjálfum þótt vissulega hafi mátt greina mis- mun í áherslum. í kaffihléum og öðrum viðburðum gegndi öðru máli og þá fannst mér ákaflega áberandi hversu miklu kurteisari Japanirnir voru en allir aðrir. Eg er ekki viss um að það hafi bara verið af því að þeir voru gestgjafar, menning þeirra gerir væntanlega þá kröfu að menn sýni hver öðrum tillitssemi. Kannski er það þéttbýlið sem veldur, ég veit það ekki. - Fannst þér þingið skilvirkt? Kom eitthvað út úr þessu? - Já, til dæmis hafa menn verið að endurskoða ákveðna grein Helsinki-yfirlýsingarinnar að undan- förnu og um hana ríkt töluverður ágreiningur milli heimssvæða. Menn áttu því alveg eins von á að hann héldi áfram en þegar til átti að taka var tillagan sem fyrir fundinum lá samþykkt athugasemdalaust. Það vakti líka athygli mína að þingið samþykkti að taka allar yfirlýsingar samtakanna sem orðnar eru 10 ára eða eldri til endurskoðunar, fella þær niður sem orðn- ar eru úreltar og uppfæra hinar. Upprunalegu yfirlýs- ingunum verður þó haldið til haga þannig að hægt sé að sjá hvað samþykkt hefur verið á hverjum tíma. Þarna var samþykkt yfirlýsing um samskipti lækna og lyfjafyrirtækja sem er mjög í þeim anda sem rætt hefur verið innan Læknafélags íslands. Einnig var sett af stað vinna við yfirlýsingu um offitu í sama anda og aðalfundur LÍ á dögunum ályktaði um. Þarna var því verið að ræða ýmis mál sem snerta íslenska lækna. Jarðskjálfti og fellibylur - Það heyrist oft að smáþjóð eins og Islendingar hafi ekkert að segja á svona stórum samkomum, stórþjóð- irnar hlusti ekkert á okkur. Fannst þér þið íslensku fulltrúarnir hafa eitthvað fram að færa á þessum fundi? - Svo sannarlega. Það vill nefnilega þannig til að núna eigum við fulltrúa í ráðinu sem er Jón Snædal. Það var ljóst að hann er mjög virkur í starfi samtak- anna og hann tók oft til máls. Það var greinilega tekið eftir því sem hann sagði enda tók ég eftir því að tví- vegis setti hann fram tillögur sem voru báðar sam- þykktar og sem leiddu til þess að menn losnuðu út úr klemmu sem umræðurnar voru komnar í. Hann er því mjög glæsilegur fulltrúi íslenskra lækna. Ég er á því að Jón væri verðugur kostur sem formaður þessara samtaka ef til þess kæmi. Það er líka gaman að geta þess að vegna þess hversu sterk staða íslands er um þessar mundir í sam- tökunum þá varð formaðurinn þess heiðurs aðnjót- andi að fá áheyrn hjá Japanskeisara, einn af örfáum fundarmönnum, sagði Gunnar. Þótt Japanir séu kurteis þjóð þá verður það sama ekki sagt um náttúruöflin því meðan á fundinum stóð lentu fundarmenn bæði í jarðskjálfta og fellibyl. - Já, það var heldur óskemmtileg reynsla að vera uppi á 23. hæð þegar jarðskjálfti af stærðinni 5,8 á Richter reið yfir. Það hristi upp í sálartetrinu. En þegar fellibylurinn skall á Tókýóborg af hvað mest- um þunga sátum við allan daginn á fundi á hótelinu og um kvöldið var lokahófið haldið á sama stað svo við áttum ekkert erindi út fyrir dyr. Það kom sér ákaflega vel því það rigndi óhemjumikið, á einni klukkustund síð- degis var úrkoman 69 millimetrar í borginni. Það er umtalsvert, segir Gunnar Ármannsson framkvæmdastjóri LI. Formaður og varaformað- ur LÍ fylgjast með umrœð- um á fundi WMA. Læknablaðið 2004/90 789
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.