Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.11.2004, Blaðsíða 52

Læknablaðið - 15.11.2004, Blaðsíða 52
UMRÆÐA & FRÉTTIR / AÐALFUNDUR LÍ Ll á aðalfundi Páll Sigurðsson f. 9. nóvember 1925 í Reykjavík. Sigurbjörn Sveinsson formaður LÍ rœðir málin við Ragnheiði Guðmunds- dóttur, nýkjörinn heiðurs- félaga Lœknafélagsins, á aðalfundinum í Nesi. Páll Sigurðsson lauk kandídatsprófi í læknisfræði frá Háskóla íslands 31. janúar 1952. Hann varð sérfræð- ingur í bæklunarlækningum 1956. Hann fékk diploma- gráðu í lýðheilsufræði við háskólann í Bristol 1970 og sérfræðiviðurkenningu í embættislækningum 1972. Páll starfaði í sérgrein sinni, bæklunarlækningum, til 1970 en gegndi jafnframt stöðu tryggingayfirlæknis frá árinu 1960. Á þessum árum gegndi Páll fjölmörg- um trúnaðarstörfum fyrir lækna, sat í stjórnum félaga þeirra og var m.a. formaður Skurðlæknafélags Islands frá 1961 til 1964. Hann fór fyrir læknafélögin á 7. ára- tugnum ásamt Arinbirni Kolbeinssyni og Þórarni Guðnasyni til Finnlands og Bretlands til að kynna sér rekstur læknamiðstöðva. Um ferð þeirra má lesa ítar- lega og merkilega skýrslu í Læknablaðinu frá þessum tíma. Páll tók virkan þátt í stjórnmálum og sat meðal annars í borgarstjórn fyrir Alþýðuflokkinn. Páll varð ráðuneytisstjóri í heilbrigðis- og trygginga- ráðuneytinu þegar það var sett á stofn 1970 og gegndi því starfi þar til hann fékk lausn fyrir aldurssakir 1995. Hann tók þátt í undirbúningi aðstofnun heilbrigðisráðu- neytisins og á engan er hallað þó hann sé talinn einn aðalhöfundur laga um heilbrigðisþjónustu frá 1973 sem í megindráttum gilda enn. Páll var á sínum dögum í ráðuneytinu læknum ráðhollur og mátti treysta á að þau málefni fengju framgang sem hann tók að sér. Páll hefur ætíð verið virkur í félagsstarfi lækna og tjáð sig frjálslega um viðfangsefni og hagsmuni lækna, þó í embætti ráðuneytisstjóra hafi setið. Hann var fastur gestur á aðalfundum Læknafélags Islands, tók virkan þátt í umræðum, var tillögugóður og reyndi að snúa hverju máli læknum og almenningi í hag. Kjör Páls sem heiðursfélaga LÍ er m.a. til marks um það, að læknar virða þá félaga sína, sem gera emb- ættisstörf og stjórnsýslu í þágu lýðheilsu að ævistarfi. Ragnheiður Guðmundsdóttir f. 20. ágúst 1915 í Reykjavík. Ragnheiður Guðmundsdóttir lauk kandídatsprófi í læknisfræði frá Háskóla íslands 23. maí 1945. Hún var sjötta konan, sem lauk læknaprófi frá HI frá stofnun hans 1911. Hinar eru Kristín Ólafsdóttir, 1917, Katr- ín Thoroddsen, 1921, María Hallgrímsdóttir, 1931, Gerður Bjarnhéðinsdóttir, 1932, Sigrún Briem, 1940 og loks Ragnheiður 1945 eins og áður segir. Segja má að kona hafi útskrifast sem læknir frá HI með liðlega fimm ára fresti á þessum árum. Eru tímarnir sem betur fer breyttir í þessu sem öðru. Ragnheiður varð sérfræðingur í augnlækningum á Islandi 1966 en áður hafði hún lokið sérfræðiprófi í augnlækningum frá Escuela Professional de Oftalmologia í Barcelona 1964. Ragnheiður bjó sig meðal annars undir sérfræði- viðurkenningu sína í Kaliforníu og í Maine í Banda- ríkjunum. Ragnheiður gegndi störfum sem læknir hér á landi, á Spáni og í Bandaríkjunum. Hún var augnlæknir á Landakotsspítala en skipulagði jafnframt kennslu sjúkraliða á þeim spítala og annaðist kennslu þeirra. Ragnheiður mun hafa átt frumkvæði að kennslu sjúkraliða hér á landi eftir að hafa kynnst starfi þeirra erlendis. Ragnheiður starfaði að félagsmálum lækna. Hún var í stjórn augnlæknafélagsins og formaður þess 1972 til 1974. Ragnheiður hafði með höndum fjölda trúnaðarstarfa, sem hún valdist augljóslega til vegna læknisstarfsins. Hún sat í stjórnum Rauða kross deildar Reykjavíkur og í stjórn Rauða kross Islands, í læknanefnd Öldrunarfélags íslands og í öldungadeild Læknafélags íslands frá 1994 til 1996. Ragnheiður er heiðursfélagi Golfklúbbs Reykjavíkur. Það má hverjum manni vera ljóst, að það hefur ekki þótt sjálfsagt fyrir konu að hefja nám í læknisfræði á þeim árum sem Ragnheiður settist í læknadeild. Um það bera þær tölur glöggt vitni, sem ég nefndi hér að ofan. En Ragnheiður lét sér ekki almenna lækninga- leyfið duga, heldur aflaði sér framhaldsmenntunar til sérfræðiviðurkenningar víða og á fáförnum Islend- ingaslóðum. Kjör Ragnheiðar sem heiðursfélaga Læknafélags íslands er m.a. til marks um það, að læknar vilja sýna þeim konum virðingu, sem brutust gegn straumnum til mennta og voru sú hvatning kynsystrum sínum til að leggja stund á læknisfræði sem leitt hefur til jafnrar stöðu kvenna á við karla í læknadeild. 780 Læknablaðið 2004/90
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.