Læknablaðið - 15.04.2005, Síða 13
FRÆÐIGREINAR / MELTINGARSJÚKDÓMAR
Faraldsfræðileg rannsókn á starfrænum
einkennum frá meltingarvegi
hjá Islendingum
Linda B.
Ólafsdóttir'
Hallgrímur
Guðjónsson2
Bjarni
Þjóðleifsson2
Nýyrði og skammstafanir sem
notuð eru í greininni:
Starfræn einkenni frá
meltingarvegi = SEM.
Samheiti yfir iðraólgu og
meltuónot.
Irritable bowel syndrome =
Iðraólga. Gengur einnig undir
nafninu ristilkrampar.
Functional dyspepsia =
Meltuónot.
‘GlaxoSmithKline, Þverholti
14,105 Reykjavík. 2LYF-1,
Landspítala Hringbraut, 101
Reykjavík
Fyrirspurnir og bréfaskipti:
Bjarni Þjóðleifsson, LYF-1,
Landspítala Hringbraut, 101
Reykjavík.
bjarnit@landspitali. is
Lykilorð: meltuónot, faralds-
frœði, iðraólga.
Ágrip
Tilgangur: Tilgangur rannsóknarinnar var að
kanna algengi starfrænna einkenna frá melting-
arvegi (SEM) hjá íslendingum og kanna tengsl
þeirra við einkenni frá öðrum líffærakerfum og
við lyf.
Efni og aðferðir: Spurningalisti var sendur til 2000
manna úrtaks íslendinga á aldrinum 18-75 ára.
Spurningalistinn innihélt 46 spurningar um SEM
og 42 spurningar um einkenni sem tengdust öðrum
líffærakerfum og einnig lýðfræðilegum og sállík-
amlegum þáttum. Spurningalistinn skipti SEM í
tvo flokka: meltuónot (functional dyspepsia) og
iðraólgu (irritable bowel syndrome).
Niðurstöður: Svarhlutfall var 67% sem er um 1%
þjóðarinnar á aldrinum 18-75 ára. Meltuónot á
kvarðanum meðal eða slærn komu fram hjá 17,8%
(15,3% karla, 20% kvenna, p<0,05). Þegar notuð
eru skilmerki Mannings sem greinir iðraólgu
þannig að viðkomandi þarf að hafa tvö af sex ein-
kennum að minnsta kosti sex sinnum á ársgrund-
velli ásamt verkjum í kvið, þá reyndust 30,9%
vera með iðraólgu (25,3% karla, 35,8% kvenna,
p<0,05). Yfir 90% skörun reyndist vera milli meltu-
ónota og iðraólgu en samtals voru 35% svarenda
með SEM.
Konur voru oftar greindar með SEM og al-
gengi minnkaði með aldrinum. Ekki reyndust
vera tengsl við lýðfræðilegra þætti. Tengsl fundust
á milli iðrólgu og þunglyndis, botnlangatöku og
tíðaverkja.
Umræða: Rannsókn okkar sýnir hátt algengi SEM
á íslandi og hærri tíðni en kemur fram í öðrum
rannsóknum, sem nota svipaðar skilgreiningar.
Orsakir þessa háa algengis er ekki ljósar en mögu-
legt er að félagslegir og sálfræðilegir þættir sér-
stakir fyrir ísland eigi hlut að máli.
Inngangur
Starfræn einkenni í meltingarvegi (SEM) (func-
tional bowel disorders) eru langvinn og endur-
tekin einkenni frá meltingarvegi sem ekki er hægt
að finna neinar vefrænar eða lífefnafræðilegar
skýringar á. SEM skiptast í tvo meginflokka: meltu-
ónot (functional dyspepsia) og heilkennið iðraólgu
(irritable bowel syndrome).
Meltuónot hafa verið skilgreind á marga
ENGLISH SUMMARY
Ólafsdóttir LB, Guðjónsson H, Þjóðleifsson B
Epidemiological study of functional bowel dis-
orders in lceland
Læknablaðið 2005; 91: 329-333
Objective: The aim of the present study was to evalu-
ate the prevalence of functional bowel disorders (FBD)
in a population-based sample and to assess FBD-relat-
ed health care seeking and medication in lceland.
Material and methods: A self-report questionnaire
was sent to a random sample of 2000 inhabitants,
18-75 years of age. The questionnaire addressed 46
gastrointestinal symptoms and 42 other health related,
sociodemograpic and psychosomtio symptom items.
The questionnaire classified subjects into two symptom
categories, dyspepsia and irritable bowel syndrome.
Results: The response rate was 67% which repre-
sents 1 % of the 18-75 year old population of lceland.
Dyspepsia in the year prior to the study was reported
by 17.8% who had symptoms that were defined as
moderate or severe (15.3% male, 20% female). Based
on the Manning Criteria, which define IBS as having
two or more abdominal symptoms out of six at least
six times in the previous year in addition to abdominal
pain, the crude prevalence of IBS was 30.9% (25.3%
men, 35.8% women) (X2= 15.77, p<0.05).
Both symptom categories were more common in
women and the prevalence decreased with age. No
correlation with socioeconomic status was found.
There was more than 90% overlap between the two
diagnostic categories. Irritable bowel syndrome was
found to be associated with depression, appendec-
tomy and dysmenorrhea.
Conclusions: This population-based study shows
a high prevalence of functional bowel disorders in
lceland and higher than reported in other studies
that use similar criteria. It can be speculated that the
reasons for this high prevalence are associated with
special features of the socio-psycological profile of the
lcelandic society.
Key words: functional bowel disorders, irritable bowel syn-
drome, dyspepsia, epidemiology.
Correspondence: Bjarni Þjóðleifsson, bjarnit@landspitali.is
vegu (1-3) og hefur þar að auki verið skipt í
fjóra undirflokkar (4). Orsakir eru óþekktar og
takmarkaður skilningur er á meingerð. Endur-
skilgreiningar og klínískar undirflokkanir hafa
Læknablaðið 2005/91 329