Læknablaðið - 15.04.2005, Page 50
UMRÆÐA & FRÉTTIR / SAMEINING HEILSUGÆSLUSTÖÐVA
Turninn á bœjarskrifstof- allar settar undir eina miðstjórn urðu læknaráðin
um Garðabœjar gnœfir óvirk. Eina ráðið sem er virkt er yfirlæknaráðið en
yfir heilsugœslustöðina. það kemur ekkert frá grasrólinni.“
Sérkennileg stjórnsýsla
Jón Steinar er sama sinnis um reynsluna frá
Reykjavík. „Við höfum horl't upp á afar sérkenni-
legar ákvarðanir Heilsugæslunnar í Reykjavík um
þætti sem skipta máli fyrir þjónustu stöðvanna. Ég
nefni sem dæmi þegar heimahjúkrun var færð út af
stöðvunum og sett í eina miðlæga stofnun, svo ekki
sé minnst á það þegar ákveðið var að taka aksturs-
peninga af starfsfólki heimahjúkrunar. Við erum
með hjúkrunarfræðing og sjúkraliða sem sinna
þessari þjónustu og teldum það mikla afturför að
missa hana.“
Jón Steinar nefndi einnig ákvörðun HR um
að leggja niður rannsóknastofur á heilsugæslu-
stöðvum og semja við Landspítalann um að sinna
öllum rannsóknum. „Við höfum verið með rann-
sóknastofu hér frá upphafi og þar hefur sami
meinatæknir starfað allan tímann. Þar hefur verið
lagt í fjárfestingu sem er mikilvægur hluti af starf-
semi stöðvarinnar, þjónustu hennar og ásýnd,“
segir Jón Steinar.
Á Sólvangi er einnig rekin rannsóknastofa sem
Vilhjálmur Ari segir að sé vaxtarbroddur í starfsemi
stöðvarinnar. „Við höfum verið sjálfum okkur nóg
um rannsóknir og hér eru gerðar blóðrannsóknir
alla daga. Stöðin er það stór að rannsóknarstofan er
hagkvæm eining. Þjónustan sem þar er veitt hefur
mælst afar vel fyrir og það væri skarð fyrir skildi ef
hún yrði lögð niður," segir hann.
Þá og nú
Enginn dregur í efa að valdið er ráðherrans og
hann hefur ákveðið að setja reglugerð um sam-
einingu á næstu vikum. Auglýst verður eftir fram-
kvæmdastjórum sem eiga að taka til starfa 1. júlí
en þá verða stöður núverandi framkvæmdastjóra
lagðar niður. Þeir verða þó áfram í starfi til næstu
áramóta.
Margir hafa bent á að ekki sé samræmi í þess-
ari ákvörðun ráðherra og ummælum hans á þingi
haustið 2003 þegar fram kom í stefnuræðu for-
sætisráðherra að ríkisstjórnin vildi kanna hvort
flytja bæri heilsugæsluna, smærri spítala og þjón-
ustu við aldraða til sveitarfélaganna. Þá sagði Jón
Kristjánsson meðal annars:
„Hér erum við að tala um dæmigerða nærþjón-
ustu. Við erum að tala um að gera mikilvæga þjón-
ustu við íbúana gegnsæja og við erum að tala um
að flytja ábyrgðina og eftirlitið með þjónustunni
nær þeim sem nota hana. Við erum líka að tala
um að fela sveitarstjórnunum að reka þjónustuna
á þann hátt sem þær telja heppilegasta. Þetta er
grunnhugsunin í kerfisbreytingunni sem við erum
að tala um og ég vonast til að sveitarstjórnarmenn
séu tilbúnir að kanna þetta með okkur og ganga til
verksins með opinn huga.“
I minnisblaði sem bæjarfulltrúarnir Guðmundur
Rúnar Árnason og Almar Grímsson birtu á heima-
síðu Hafnarfjarðarbæjar eftir fund með ráðherra
og ráðuneytismönnum 23. febrúar síðastliðinn
kemur fram að ráðherra vísaði til þeirrar pattstöðu
sem þá ríkti í viðræðum ríkis og sveitarfélaga um
tekjustofna þeirra síðarnefndu. Á meðan sú staða
er uppi væri tómt mál að tala um frekari yfirfærslu
verkefna. Hann væri þó ekki horfinn frá þeirri
stefnu að flytja bæri þessi verkefni nær íbúunum.
Hins vegar hefði sameining heilbrigðisstofnana
gefið góða raun á landsbyggðinni.
Nú er þessi pattstaða leyst svo þess er ef til
vill að vænta að ráðherra svari fljótlega bréfum
þeirra sem óskað hafa eftir rökum og stefnu sem
ákvörðun um sameiningu heilsugæslustöðvanna
er reist á.
366 Læknablaðid 2005/91