Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.2005, Síða 50

Læknablaðið - 15.04.2005, Síða 50
UMRÆÐA & FRÉTTIR / SAMEINING HEILSUGÆSLUSTÖÐVA Turninn á bœjarskrifstof- allar settar undir eina miðstjórn urðu læknaráðin um Garðabœjar gnœfir óvirk. Eina ráðið sem er virkt er yfirlæknaráðið en yfir heilsugœslustöðina. það kemur ekkert frá grasrólinni.“ Sérkennileg stjórnsýsla Jón Steinar er sama sinnis um reynsluna frá Reykjavík. „Við höfum horl't upp á afar sérkenni- legar ákvarðanir Heilsugæslunnar í Reykjavík um þætti sem skipta máli fyrir þjónustu stöðvanna. Ég nefni sem dæmi þegar heimahjúkrun var færð út af stöðvunum og sett í eina miðlæga stofnun, svo ekki sé minnst á það þegar ákveðið var að taka aksturs- peninga af starfsfólki heimahjúkrunar. Við erum með hjúkrunarfræðing og sjúkraliða sem sinna þessari þjónustu og teldum það mikla afturför að missa hana.“ Jón Steinar nefndi einnig ákvörðun HR um að leggja niður rannsóknastofur á heilsugæslu- stöðvum og semja við Landspítalann um að sinna öllum rannsóknum. „Við höfum verið með rann- sóknastofu hér frá upphafi og þar hefur sami meinatæknir starfað allan tímann. Þar hefur verið lagt í fjárfestingu sem er mikilvægur hluti af starf- semi stöðvarinnar, þjónustu hennar og ásýnd,“ segir Jón Steinar. Á Sólvangi er einnig rekin rannsóknastofa sem Vilhjálmur Ari segir að sé vaxtarbroddur í starfsemi stöðvarinnar. „Við höfum verið sjálfum okkur nóg um rannsóknir og hér eru gerðar blóðrannsóknir alla daga. Stöðin er það stór að rannsóknarstofan er hagkvæm eining. Þjónustan sem þar er veitt hefur mælst afar vel fyrir og það væri skarð fyrir skildi ef hún yrði lögð niður," segir hann. Þá og nú Enginn dregur í efa að valdið er ráðherrans og hann hefur ákveðið að setja reglugerð um sam- einingu á næstu vikum. Auglýst verður eftir fram- kvæmdastjórum sem eiga að taka til starfa 1. júlí en þá verða stöður núverandi framkvæmdastjóra lagðar niður. Þeir verða þó áfram í starfi til næstu áramóta. Margir hafa bent á að ekki sé samræmi í þess- ari ákvörðun ráðherra og ummælum hans á þingi haustið 2003 þegar fram kom í stefnuræðu for- sætisráðherra að ríkisstjórnin vildi kanna hvort flytja bæri heilsugæsluna, smærri spítala og þjón- ustu við aldraða til sveitarfélaganna. Þá sagði Jón Kristjánsson meðal annars: „Hér erum við að tala um dæmigerða nærþjón- ustu. Við erum að tala um að gera mikilvæga þjón- ustu við íbúana gegnsæja og við erum að tala um að flytja ábyrgðina og eftirlitið með þjónustunni nær þeim sem nota hana. Við erum líka að tala um að fela sveitarstjórnunum að reka þjónustuna á þann hátt sem þær telja heppilegasta. Þetta er grunnhugsunin í kerfisbreytingunni sem við erum að tala um og ég vonast til að sveitarstjórnarmenn séu tilbúnir að kanna þetta með okkur og ganga til verksins með opinn huga.“ I minnisblaði sem bæjarfulltrúarnir Guðmundur Rúnar Árnason og Almar Grímsson birtu á heima- síðu Hafnarfjarðarbæjar eftir fund með ráðherra og ráðuneytismönnum 23. febrúar síðastliðinn kemur fram að ráðherra vísaði til þeirrar pattstöðu sem þá ríkti í viðræðum ríkis og sveitarfélaga um tekjustofna þeirra síðarnefndu. Á meðan sú staða er uppi væri tómt mál að tala um frekari yfirfærslu verkefna. Hann væri þó ekki horfinn frá þeirri stefnu að flytja bæri þessi verkefni nær íbúunum. Hins vegar hefði sameining heilbrigðisstofnana gefið góða raun á landsbyggðinni. Nú er þessi pattstaða leyst svo þess er ef til vill að vænta að ráðherra svari fljótlega bréfum þeirra sem óskað hafa eftir rökum og stefnu sem ákvörðun um sameiningu heilsugæslustöðvanna er reist á. 366 Læknablaðid 2005/91

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.