Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.2005, Síða 53

Læknablaðið - 15.04.2005, Síða 53
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ELDRI LÆKNAR Povl Riis í 49. Íslandsheímsókn sinni Á efstu myndinni stendur Povl Riis undir styttu af lífverði Danadrottningar sem Lœknablaðið fékk að gjöffrá danska lœknablaðinu. Til vinstri er Tómas Árni Jónasson að rekja feril Povls og hér að ofan fylgjast fundargestir með, meðal annars Ingvar E. Kjartansson, Tómas Helgason og Páll Gíslason. Povl Rns er íslenskum læknum að góðu kunnur, hann stýrði danska læknablaðinu um árabil, hefur tekið þátt í ýmsum félagsmálum lækna og lagt hönd á plóg við leit að svörum við siðfræðilegum álitamálum. Povl gerði stuttan stans á íslandi nú í mars, að eigin sögn var það í 49. sinn sem hann steig fæti á íslenska jörð og taldi hann að þessi tíðni heimsókna hans til landsins gæfi sterklega til kynna hversu illa haldinn hann væri af íslandsveirunni sem væri nota bene ólæknandi. Hann er annars eins og unglamb á vori, fæddur 1925. Læknafélag fslands og öldunga- deild félagsins buðu sameiginlega til fundar með Povl í húsakynnum lækna- félaganna að Hlíðasmára 8. Povl ræddi stuttlega um sín hugðarefni sem snúast nú æ meira um eldri borgara, einkum eldri lækna, og hvernig koma megi í kring farsælli skilum milli vinnu- dags og eftirlaunaaldurs. Hann sýndi fram á hinar afgerandi lýðfræðilegu breytingar sem eru í deiglunni, jarð- arbúum fjölgar hratt, tala eftirlauna- fólks stígur og öll viðmið fara á flot. Á Vesturlöndum og í Skandinavíu verð- ur fyrst vart þeirra breytinga í mann- fjöldapýramídanum að hann gildnar efst, eldri borgarar sem voru ekki alls fyrir löngu að fjölda 1:4 miðað við starfandi vinnukraft eru nú 1:2,5. Og í Danmörku er þegar farið að örla á skorti á sérfræðilæknum, 700 stöður lausar, og spár segja að árið 2020 muni skorta mannskap í 2000 slíkar stöður. Stór hluti starfandi danskra lækna er sirka 58 ára og eftirlaunaaldur þeirra er við 63 ára aldur. Þetta er til marks um stórfelldar breytingar á aldurs- samsetningu þjóðar og fjölda á vinnu- markaði. Povl benti á nokkrar leiðir til að milda þetta: afnema föst aldursviðmið til eftirlauna en halda eftirlaunarétti við ákveðinn aldur þannig að 63 ára gamlir læknar hefðu rétt til að velja að halda vinnu sinni að gefnum skilyrð- um, setja á laggirnar nýjar launaðar stöður, til dæmis 15-10 stundir í viku og eins til tveggja ára vinnusamninga. Hann rakti helstu niðurstöður skoskr- ar rannsóknar meðal lækna um vilja þeirra til að vinna eftir að eftirlaun- aaldri er náð. - Gestir fundarins voru ánægðir með boðskap Riis og köpp- uðu honum lof í lófa. Meðfylgjandi myndir voru teknir við umrætt tæki- færi. VS Læknablaðið 2005/91 369

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.